Síða 1 af 1

Valve hardware

Sent: Mið 12. Nóv 2025 20:06
af gunnimikki
Ný fjarstýring, tölva og VR frá valve

https://store.steampowered.com/sale/hardware

Alveg kúl

Re: Valve hardware

Sent: Mið 12. Nóv 2025 20:21
af Henjo
Þetta er geggjað. Flott að það er hérna fyrirtæki sem stýður frelsi okkar sem notendur. Þetta kemur með Linux kerfi frá Valve, en öllum er auðvitað frjálst að installa t.d. Windows ef slík sjálfspynting er til staðar hjá fólki.

Er spenntur fyrir þessu.

Re: Valve hardware

Sent: Mið 12. Nóv 2025 20:33
af ABss
Magnað, það virðist enn langt í skítvæðinguna (e. enshitification) hjá Steam!

Þetta er í fyrsta skipti í... Jah, einn eða tvo áratugi sem mig langar í raun og veru í eitthvað leikjadót. Og tölvan væri ekki bara leikjatölva heldur væri hún líka gagnleg í annað.

Miðað við þetta, 10/10!

Það verður forvitnilegt að sjá verðin, en mögulega er hægt að nota krakkana til að réttlæta þetta :⁠-⁠)

P.s. Held enn tryggð við steam eftir að þeir gerðu tölvuleikjastuldur óþarfa!

Re: Valve hardware

Sent: Mið 12. Nóv 2025 23:16
af TheAdder
Það verður mjög freistandi að bæta við Frame og Controller 2 við Steam Hardware safnið.

Re: Valve hardware

Sent: Fim 13. Nóv 2025 08:09
af Hausinn
Þessi nýja fjarstýring minnir mig svolítið á Atari Jaguar fjarstýringarnar. :lol:

En það er frábært að leikjatölvumarkaðurinn sé að fá annan keppinaut sem byggist á frelsi. Stór ástæða fyrir því af hverju ég hætti að kaupa leikjatölvur er akkúrat því að ég finnst of margar takmarkanir á því hvað hægt sé að gera nema maður moddar þær.

Re: Valve hardware

Sent: Fim 13. Nóv 2025 08:39
af Viggi
Frame lúkkar rosalega næs en manni langar svo í oled inn í þessi gleraugu. Kanski frame 2 komi með það :8) fyrir utan það er ég sold.

En alveg geggjað hvað þeir standa sig vel í að styðja við open source.

Re: Valve hardware

Sent: Fim 13. Nóv 2025 09:35
af GuðjónR
Þetta er kúl svo lengi sem þeir skemma það ekki með himinháum áskriftargjöldum...

Re: Valve hardware

Sent: Fim 13. Nóv 2025 09:39
af TheAdder
GuðjónR skrifaði:Þetta er kúl svo lengi sem þeir skemma það ekki með himinháum áskriftargjöldum...

Hefur eitthvað bent til þess að það verði einhver áskriftargjöld?

Re: Valve hardware

Sent: Fim 13. Nóv 2025 11:08
af gnarr
Valve hefur bókstaflega aldrei verið með eina einustu áskrift í boði, svo að mér þykir það gífurlega ólíklegt.

Re: Valve hardware

Sent: Fim 13. Nóv 2025 11:11
af TheAdder
gnarr skrifaði:Valve hefur bókstaflega aldrei verið með eina einustu áskrift í boði, svo að mér þykir það gífurlega ólíklegt.

Nema náttúrulega áskrift að veskinu hjá manni í þessum árlegu útsölum sínum. :guy

Re: Valve hardware

Sent: Fim 13. Nóv 2025 12:12
af Mondieu
gnarr skrifaði:Valve hefur bókstaflega aldrei verið með eina einustu áskrift í boði, svo að mér þykir það gífurlega ólíklegt.


Dota 2, einn stærsti leikur Valve, er með áskriftarmódel til margra ára sem heitir Dota Plus, þannig að það eru fordæmi fyrir einhvers konar áskrift af hálfu Valve. Leikurinn er þó ókeypis og þetta er ekki nauðsynleg áskrift. Mér þykir ólíklegt að þeir fari að keyra á einhverjum áskriftum.

Re: Valve hardware

Sent: Fös 14. Nóv 2025 10:50
af Hannesinn
Mér líst alveg ótrúlega vel á þetta. Lítur út fyrir að vera smekkleg "smátölva", sem auðvelt verður fyrir fólk að planta í stofunni með sjónvarpinu og hinum leikjavélunum.

Þetta er reyndar ekkert nýtt fyrir þá sem hafa notað Steamdeck eða linux, en það hefur aldrei hentað vel fyrir Dúdda majones úti í bæ. Svona vél hins vegar gerir það.

LTT talaði um það í gær að vélin verði verðlögð eins og entry-level PC tölva, því þó þessar tölvur séu í samkeppni við leikjatölvur er ekkert sem kemur í veg fyrir að fyrirtæki kaupi svona vélar fyrir desktop vinnslu og því éti upp niðurgreiðsluna sem annars ynnist upp með leikjasölu, eins og xbox/playstation hafa gert seinustu áratugina.

En mér þykja þetta spennandi fréttir og á eflaust eftir að kaupa eina þegar þær koma á markað fyrri hluta næsta árs.

Re: Valve hardware

Sent: Lau 15. Nóv 2025 08:36
af DJOli
Fleiri flott tæki fyrir console-gamera til að lýta í kringum sig og kynna sér alvöru leikjahagkerfi þar sem þú tekur leikina þína með þér yfir í næstu tölvu, svo gott sem sama hvað, og þarft næstum aldrei að hugsa út í compatibility nema ef þú ert með 15-20 ára gamla leiki. Jaaaaafnvel þá, þá virkar t.d. cs 1.6 enn hjá mér í gegnum Steam án þess að þurfa að fara í einhverjar aðgerðir. Sama með fyrstu tvo Rollercoaster Tycoon leikina.

Mig minnir að Worms Armageddon hafi þurft fix vegna þess að frá og með sirka Windows 7 startast leikurinn með invertaða liti. Hef ekki sannreynt það aftur og nenni ekki að staðfesta það núna.

Re: Valve hardware

Sent: Lau 15. Nóv 2025 12:47
af GuðjónR
Er búinn að sjá meira og meira af þessu á TikTok og verð að segja að þetta er spennandi kostur, sérstaklega í samkeppni við aðrar leikjatölvur.

Re: Valve hardware

Sent: Mán 12. Jan 2026 15:33
af calibr
Jæja spjallarar, hvernig ætli það sé síðan best að fara að því að nálgast þessar Valve vörur þegar þær koma út?

Við á skerinu höfum ekki fengið að panta hardware í gegnum Steam. Lumið þið á einhverjum góðum leiðum til að geta pantað þetta þegar þetta kemur í sölu?

Re: Valve hardware

Sent: Mán 12. Jan 2026 19:14
af ABss
Kíkja til USA? Ég fer þangað eftir 2-3 mánuði, er vitað hvenær þetta fer í sölu?

Re: Valve hardware

Sent: Mán 12. Jan 2026 22:18
af C3PO
Eru menn ekkert að setja saman AMD vèl og prufa proton ?
Þarf svo sem ekkert að kaupa vèlina frà Steam.

Re: Valve hardware

Sent: Þri 13. Jan 2026 00:02
af Henjo
C3PO skrifaði:Eru menn ekkert að setja saman AMD vèl og prufa proton ?
Þarf svo sem ekkert að kaupa vèlina frà Steam.


Proton styður bæði AMD og Nvidia :D

Er búin að spila proton á Nvidia korti síðan það kom út fyrir nærri því átta árum. SteamOS hinsvegar styður ekki Nvidia og þarf þá AMD skjákort. En það eru önnur svipuð Linux distro eins og Bazzite, sem gefur sambærilega upplifun og styður bæði AMD og Nvidia skjákort.

Mæli mikið með að prófa.

Það er auðvitað rétt að það þarf ekki að kaupa vélina frá Steam, en það er líka form factorin sem fólk lýst vel á. Kassi sem er ekki nema 15cm. Er það ekki bara liggur við stærð við venjulegan aflgjafa? Og já, ekkert power brick. Innbyggður aflgjafi.

Re: Valve hardware

Sent: Þri 13. Jan 2026 12:40
af calibr
C3PO skrifaði:Eru menn ekkert að setja saman AMD vèl og prufa proton ?
Þarf svo sem ekkert að kaupa vèlina frà Steam.


Ég var nú aðallega að pæla í Steam Frame og fjarstýringuna :D

Re: Valve hardware

Sent: Þri 13. Jan 2026 16:52
af Knud
Varðandi að nálgast þetta þegar þetta kemur út er coolshop líklegt til þess að bjóða vingjarnlegri verð heldur en t.d Elko
Hjá coolshop er t.d OLED 512gb á 99.000, hjá Elko á 129.000

Re: Valve hardware

Sent: Þri 13. Jan 2026 22:42
af calibr
Heyrðu, ég var búinn að steingleyma að Steam hardware væri komið í Elko og Coolshop. Jæja, þá er vonin ekki úti að maður geti nálgast þetta. Takk fyrir ábendinguna.

Re: Valve hardware

Sent: Fim 15. Jan 2026 09:24
af cocacola123
C3PO skrifaði:Eru menn ekkert að setja saman AMD vèl og prufa proton ?
Þarf svo sem ekkert að kaupa vèlina frà Steam.


Nú er ég nýbúinn að græja mini ITX tölvu í sjónvarps skenkinn.
Það er alveg svolítið vesen að ná góðri blöndu af size / price / fan noise / performance.
Ég vill performance en konan vill ekki að það sjáist í tölvuna né heyrist í henni.
Ef hún verður á undir 800-1000 dollurum þá held ég að Steam machine verði geggjuð kaup.

Re: Valve hardware

Sent: Fös 16. Jan 2026 18:10
af ABss
Ég er aðallega spenntur fyrir því að kaupa þetta því ég er svo ánægður með framtakið. Verðið ræður auðvitað mestu, en mér finnst þetta gríðarlega jákvæð þróun. Mótvægi við Microsoft og leikjatölvuframleiðendur og þessháttar.

Re: Valve hardware

Sent: Fös 16. Jan 2026 21:44
af thor2025
Lítur hrikalega vel út. Hef verið spenntur fyrir að þeir gefi út sýna vél frá því að þeir byrjuðu fyrst að brasa í þessu gaming fyrir linux dæmi, hafa verið rosalegar framfarir þar síðan. Ef verðið er rétt held að þetta verði mjög fyrsta flokks kostur til að hafa í stofunni þar sem mér hefur aldrei líkað við consoles.