Síða 1 af 1

Nýr sími .....

Sent: Mið 03. Sep 2025 18:47
af emil40
200mp Flex Story

Dagurinn sem Emil varð 200 MP maður

Þriðjudagurinn 3. september 2025 – dagurinn sem netheimurinn sjálfur fékk skjálfta. Emil sat við tölvuna, fingurinn á músinni, skjárinn logandi svartur með pöntunarsíðu. Og svo smellti hann.

Redmi Note 14 Pro+ 512 GB – Svartur. Verð: 84.995 kr. Sending: 1.690 kr. Samtals: 86.685 kr.

Skjárinn blikkaði: „TAKK FYRIR OG EIGÐU GÓÐAN DAG!“ En þetta var meira en góðan dag – þetta var nýtt upphaf.

Það var eins og heimurinn staldraði við í smástund. Emil hafði farið úr A-seríunni, úr öruggu „hakk í sama farinu“, yfir í 200 MP flex, 512 GB af bitamyndum, 120W hraðhleðslu og WRARRR-faktor sem enginn í kringum hann gat toppað.

Þarna var hann orðinn 200 MP maðurinn – sá sem segir vinum sínum með flissi og glampa í augum:

„Minn er með tvöhundruð MEGAPIXLUM, bitch!“ \:D/ \:D/ \:D/

Re: Nýr sími .....

Sent: Fim 04. Sep 2025 09:48
af GuðjónR
tl;dr: Emil fékk sér Redmi Note 14 Pro+ og varð „200MP gaurinn“ sem enginn toppar! \:D/

Re: Nýr sími .....

Sent: Fim 04. Sep 2025 13:08
af gRIMwORLD
Haha til hamingju með 200mp.

Hlakka til að sjá póst frá þér eftir 1 ár þar sem þú segir okkur hversu oft þú actually notaðir 200mp upplausnina :)

Re: Nýr sími .....

Sent: Fim 04. Sep 2025 13:19
af Viggi
120W hleðslan er mest næs. Orðið frekar vandræðalegt að apple er enþá fast í 25w og verður að fá þér galaxy ultra til að fá 45W

Re: Nýr sími .....

Sent: Fim 04. Sep 2025 16:56
af ÓmarSmith
Nauðsynlega vantar annað skrifborð þarna sem getur hýst monitorana ;) [ og mögulega laga snúruvesenið þarna ]
Mæli með IKEA hackinu, fór í það 2016 og það er enn fullkomið.
tók 186cm 50% gegnheila borðplötu sem má pússa 2x til 3x auðveldlega.

Ég nota ekki neina stöng í miðjunni, það þarf ekki með semi gegnheila plötu, hún er það massíf og þung :)

Þessa: https://ikea.is/is/products/eldhusinnre ... t-70335189

Þá áttu skrifborð næstu áratugina þessvegna.

Re: Nýr sími .....

Sent: Fim 04. Sep 2025 19:03
af emil40
Ég tók þetta

https://jysk.is/stok-vara/HALSTED-leikj ... 5056bc4a5e

Ljómandi fínt borð og það er gat á því fyrir snyrtilegann snúrufrágang tekur allt upp í 40 kg.

Re: Nýr sími .....

Sent: Fim 04. Sep 2025 21:11
af Lexxinn
emil40 skrifaði:Ég tók þetta

https://jysk.is/stok-vara/HALSTED-leikj ... 5056bc4a5e

Ljómandi fínt borð og það er gat á því fyrir snyrtilegann snúrufrágang tekur allt upp í 40 kg.


Átta mig aldrei á því hvernig menn séu með hátt í milljón í tölvukassanum en tími ekki að kaupa sér almennilegt skrifborð eða geymslu fyrir rassinn þegar verið er að nota tölvuna.

Re: Nýr sími .....

Sent: Fim 04. Sep 2025 22:33
af emil40
ég er með rafmagnshjólastól undir rassinn á mér ....

það er c.a. 1,3-1,4 í tölvukassanum og á borðinu enda er þetta sértryggt. Ég er löngu kominn yfir milljón kallinn, bara skjákortið var hálf kúla.