Íslenskur virðisaukaskattur á App Store

Allt utan efnis
Skjámynd

CendenZ
Stjórnandi
Póstar: 2859
Skráði sig: Fös 04. Apr 2003 08:54
Reputation: 217
Staðsetning: Á þessu spjalli
Staða: Ótengdur

Re: Íslenskur virðisaukaskattur á App Store

Pósturaf CendenZ » Þri 24. Júl 2012 14:07

Það mætti líka sópa götustígana fyrir hjólin ;)

Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4197
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1351
Staða: Ótengdur

Re: Íslenskur virðisaukaskattur á App Store

Pósturaf Klemmi » Þri 24. Júl 2012 14:10

CendenZ skrifaði:Það mætti líka sópa götustígana fyrir hjólin ;)

Og athuga vaskana á klósettinu á langa ganginum, það er alveg sama hvað maður skrúfar fyrir, það lekur alltaf úr þeim.

Svo mætti tappa lofti af ofnunum, það er alltaf eitthvað, eitthvað bank í þeim.

Skjámynd

tlord
Tölvutryllir
Póstar: 601
Skráði sig: Mið 30. Nóv 2011 17:28
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Íslenskur virðisaukaskattur á App Store

Pósturaf tlord » Þri 24. Júl 2012 14:18

Klemmi skrifaði:
CendenZ skrifaði:Það mætti líka sópa götustígana fyrir hjólin ;)

Og athuga vaskana á klósettinu á langa ganginum, það er alveg sama hvað maður skrúfar fyrir, það lekur alltaf úr þeim.

Svo mætti tappa lofti af ofnunum, það er alltaf eitthvað, eitthvað bank í þeim.

það mætti líka vera með 3 einkarekinn sjúkrahús, sem myndu keppa í að veita góða þjónustu á hagstæðu verði fyrir hið opinbera heilbrigðiskerfi.

Skjámynd

urban
Stjórnandi
Póstar: 3750
Skráði sig: Mán 06. Des 2004 01:26
Reputation: 474
Staðsetning: Undir hægra megin
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Íslenskur virðisaukaskattur á App Store

Pósturaf urban » Þri 24. Júl 2012 15:05

Klemmi skrifaði:Ég held að fæstir þingmenn séu einfaldlega á grunnlaunum, það safnast furðulega fljótt saman auka launin fyrir setu í hinum og þessum nefndum.
Enn fremur þá ætlar enginn að segja mér að flestir þingmenn vinni 8 tíma vinnudag nema þegar eitthvað mikið er í gangi, auk þess sem þeir fá ágætis þinghlé...

En grunnlaun alþingismanna eru bara án gríns alveg hlægilega lág laun.
Litli bróðir minn sem að er 18 ára er búinn að vera á hærri tekjum undanfarna mánuði en grunnlaun alþingismanna eru.

ok vissulega er það rétt að flestir þingmenn séu ekki á grunnlaunum.
en ef að við tökum sem dæmi forsætisráðherran okkar.
hver ætli hennar laun séu ? 1 og hálf milla ? eitthvað þar um bil.

ég verð bara að segja að manneskja með 30 ára starfsreynslu á þingi og sem forsætisráðherra íslands þá eru það alveg hlægilega lág laun í rauninni.
ef að þessi laun væru hærri þá væri nú hugsanlegt að hæfari manneskjur fengust til verksins.

Klemmi skrifaði:Ég vil ekki fá menn í þingstörf sem eru að eltast við launin, þingmenn og aðrir pólítíkusar, í hinum fullkomna heimi, ættu að vinna sína vinnu af hugsjón, á mannsæmandi launum, frekar en ofurlaunum. Ef þessir sömu menn geta setið og sagt að lágmarkslaun dugi fyrir framfærslu heimila, þá ættu þeir nú ekki að vera í vandræðum á 2-3 földum slíkum launum. Það er hræsni að segja annað.

Ég vill heldur alls ekki að menn fari að elta launin þegar að þeir fari á þing.
en ég vill að þingið sé að lágmarki samanburðarhæft.
þar sem að fólk sem að gæti verið góður kostur á þing, fer einfaldlega ekki þangað vegna þess að það getur fengið hærri laun annar staðar.
þetta er ekki spurning hvort að menn elti hugsjónina sína á mannsæmandi launum, heldur hvort að hugsjónafólkið mæti bara almennt á staðinn.

einsog ég segi, í raun þá eru alþingisstörf og æðstu störf ríkisins alveg hlægilega lágt launuð.
tlord skrifaði:það mætti líka vera með 3 einkarekinn sjúkrahús, sem myndu keppa í að veita góða þjónustu á hagstæðu verði fyrir hið opinbera heilbrigðiskerfi.

Heldur þú að þú hefðri efni á því að fara á einkarekið sjúkrahús ??
semsagt sjúkrahús sem að væri rekið utan við opinbera kerfið.

get alveg lofað þér því að það sjúkrahús væri bara fyrir forríka.

Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !

Skjámynd

Haxdal
Tölvutryllir
Póstar: 640
Skráði sig: Lau 14. Apr 2007 18:58
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Íslenskur virðisaukaskattur á App Store

Pósturaf Haxdal » Þri 24. Júl 2012 15:24

urban skrifaði:[hlægilegaláglaunrant]

Ég væri nú alveg til í að sitja eitt kjörtímabil á Alþingi á grunnlaunum alþingismanna án þess að taka auka þóknun fyrir nefndarsetu, heck.. væri til í að halda núverandi launum (sem eru aðeins minni en grunnlaunin þeirra) ef maður fengi fatastyrk þar sem ég á engin almennileg jakkaföt. (edit : gæti jafnvel sleppt því ef lögum um klæðaburð verði breytt, amk þá tókst hreyfingunni að aflétta Bindis dótinu.. væri miklu meira til í að mæta á þing í gallabuxum og skyrtu en jakkafötum)

Maður sem sækist eftir sæti á þingi útaf peningum á ekkert erindi á þing, og atvinnupólitíkusar eru hættulegir.. það ætti að hámarka setu allra þingmanna og forseta við 2 kjörtímabil. Ég lýt á setu á alþingi sem samfélagsvinnu, eitthvað til að hjálpa samfélaginu að færast áfram, og þegar fólk er farið í kjördæmapot, berjast fyrir sérhagsmuni, ríghalda í sætin sín, pota vinum og vandamönnum í opinberar stöður og þegar miklir fjármunir eru komnir í spilið þá býður það uppá ekkert nema spillingu og stöðnun.

Atvinnunörd - Part of the 2%
> FX8350 | Gigabyte 990FXA-UD3 | Nvidia GTX 760 | 8GB Somethingsomething | Corsair Graphite 600T <

Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4197
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1351
Staða: Ótengdur

Re: Íslenskur virðisaukaskattur á App Store

Pósturaf Klemmi » Þri 24. Júl 2012 15:28

Haxdal skrifaði:

x2

Skjámynd

Gúrú
Bannaður
Póstar: 5677
Skráði sig: Fös 17. Mar 2006 23:08
Reputation: 1
Staðsetning: ;)
Staða: Ótengdur

Re: Íslenskur virðisaukaskattur á App Store

Pósturaf Gúrú » Þri 24. Júl 2012 15:31

tlord skrifaði:rétti staðurin er hóllinn fyrir ofan Rauðavatn, það mætast Suðurlandsvegur og Vesturlansvegur. Þar eru greiðar samgöngur í allar áttir og nægt pláss.
fossvogur er ekki góður. þar gæti runnið hraun eða komið flóðbylgja af sjó. Líkur á því næstu 100 ár eru stærri en núll.

A) Source/Citation?
B) Það breytir engu sem að hann sagði. Það var ákveðið að hafa hann þarna vegna þess að það væri langhagkvæmast og skilvirkast en
hætt við hann út af því að það var hlustað á einhverja íbúa sem að vildu ekki hafa hraðbraut innan við 40 metra frá sér.
Þess vegna hefur engin hraðbraut komið þangað og endalaus umferð er á tveggja akreina Bústaðarveginum sem að er mjög óskilvirk leið með fjórum mikið notuðum gönguljósum.

Modus ponens

Skjámynd

urban
Stjórnandi
Póstar: 3750
Skráði sig: Mán 06. Des 2004 01:26
Reputation: 474
Staðsetning: Undir hægra megin
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Íslenskur virðisaukaskattur á App Store

Pósturaf urban » Þri 24. Júl 2012 15:52

Haxdal skrifaði:
urban skrifaði:[hlægilegaláglaunrant]

Ég væri nú alveg til í að sitja eitt kjörtímabil á Alþingi á grunnlaunum alþingismanna án þess að taka auka þóknun fyrir nefndarsetu, heck.. væri til í að halda núverandi launum (sem eru aðeins minni en grunnlaunin þeirra) ef maður fengi fatastyrk þar sem ég á engin almennileg jakkaföt. (edit : gæti jafnvel sleppt því ef lögum um klæðaburð verði breytt, amk þá tókst hreyfingunni að aflétta Bindis dótinu.. væri miklu meira til í að mæta á þing í gallabuxum og skyrtu en jakkafötum)

Maður sem sækist eftir sæti á þingi útaf peningum á ekkert erindi á þing, og atvinnupólitíkusar eru hættulegir.. það ætti að hámarka setu allra þingmanna og forseta við 2 kjörtímabil. Ég lýt á setu á alþingi sem samfélagsvinnu, eitthvað til að hjálpa samfélaginu að færast áfram, og þegar fólk er farið í kjördæmapot, berjast fyrir sérhagsmuni, ríghalda í sætin sín, pota vinum og vandamönnum í opinberar stöður og þegar miklir fjármunir eru komnir í spilið þá býður það uppá ekkert nema spillingu og stöðnun.

Ok byrja á því að koma þessu með hámarkssetu þingmanna og forseta, að sjálfsögðu á að hámarka hana, því er ég alveg sammála þér.

restina sem að þú talar um í seinni hlutanum hjá þér, á sér stað í dag, þannig að aukin laun kæmu ekki til með að breyta því.

En þú talar um að þú myndir alveg vilja vera á þingi og halda þínum launum, sem að þú tekur fram að séu lægri en laun alþingismanna í dag.

ég myndi alveg vilja vera á þingi fyrir grunnlaun alþingismanna í dag, þar sem að ég einsog staðan er, eru mín laun einfaldlega lægri en þeirra laun.

en það er bara akkurat ekki það sem að ég var að meina með þessu "ranti" mínu.
og akkurat það sem að ég reyndar reiknaði með því að menn myndu setja út á.

Vandamálið við of lág laun er einmitt að besta fólkið fer einfaldlega í hærri laun.

nú ætla ég að spyrja þig að einu, úr því að þú talaðir um það að þú myndir alveg fara á þing fyrir þeirra grunnlaun (eða þín laun)
myndir þú fara á þing og lækka þig um nokkur hundruð þúsund í laun ??

vandamálið er nefnilega akkurat það launin eru ekki samkeppnishæf, gott fólk fer annað.
alveg á sama hátt eru Ísland í raun ekki samkeppnishæft í launum þessi árin, hellingur af góðu fólki hefur flutt erlendis til að vinna.

Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !

Skjámynd

Tiger
Besserwisser
Póstar: 3849
Skráði sig: Sun 16. Mar 2003 13:22
Reputation: 265
Staða: Ótengdur

Re: Íslenskur virðisaukaskattur á App Store

Pósturaf Tiger » Þri 24. Júl 2012 15:58

Þetta er orðið officialy leiðinlegasti þráður vaktarinnar á þessu ári!

Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4197
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1351
Staða: Ótengdur

Re: Íslenskur virðisaukaskattur á App Store

Pósturaf Klemmi » Þri 24. Júl 2012 16:09

urban skrifaði:nú ætla ég að spyrja þig að einu, úr því að þú talaðir um það að þú myndir alveg fara á þing fyrir þeirra grunnlaun (eða þín laun)
myndir þú fara á þing og lækka þig um nokkur hundruð þúsund í laun ??

vandamálið er nefnilega akkurat það launin eru ekki samkeppnishæf, gott fólk fer annað.
alveg á sama hátt eru Ísland í raun ekki samkeppnishæft í launum þessi árin, hellingur af góðu fólki hefur flutt erlendis til að vinna.

Eftir nokkur ár, þegar ég verð búinn með virðingavert háskólanám og jafn vel búinn að vera einhvern tíma á vinnumarkaði, þá ætla ég að vona að ég verði ekki orðinn það háður peningum að ég hreyfi ekki á mér rassgatið fyrir minna en 700-800þús krónur á mánuði.

Þannig fólk er ekki bezta fólkið og þannig fólk vil ég ekki fá á þing.

Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16576
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2137
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Íslenskur virðisaukaskattur á App Store

Pósturaf GuðjónR » Þri 24. Júl 2012 16:12

Tiger skrifaði:Þetta er orðið officialy leiðinlegasti þráður vaktarinnar á þessu ári!

hahahah já og líklega sá mest offtopicaði líka :sleezyjoe

Skjámynd

urban
Stjórnandi
Póstar: 3750
Skráði sig: Mán 06. Des 2004 01:26
Reputation: 474
Staðsetning: Undir hægra megin
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Íslenskur virðisaukaskattur á App Store

Pósturaf urban » Þri 24. Júl 2012 16:13

Klemmi skrifaði:
urban skrifaði:nú ætla ég að spyrja þig að einu, úr því að þú talaðir um það að þú myndir alveg fara á þing fyrir þeirra grunnlaun (eða þín laun)
myndir þú fara á þing og lækka þig um nokkur hundruð þúsund í laun ??

vandamálið er nefnilega akkurat það launin eru ekki samkeppnishæf, gott fólk fer annað.
alveg á sama hátt eru Ísland í raun ekki samkeppnishæft í launum þessi árin, hellingur af góðu fólki hefur flutt erlendis til að vinna.

Eftir nokkur ár, þegar ég verð búinn með virðingavert háskólanám og jafn vel búinn að vera einhvern tíma á vinnumarkaði, þá ætla ég að vona að ég verði ekki orðinn það háður peningum að ég hreyfi ekki á mér rassgatið fyrir minna en 700-800þús krónur á mánuði.

Þannig fólk er ekki bezta fólkið og þannig fólk vil ég ekki fá á þing.

það var aftur á móti alls ekki spurningin sem að ég spurði þig að.
ef að þú ert búinn að vera með 800 þús kr. á mánuði í einhvern tíma, helduru að þú færir að vinna fyrir 550 þús.

eða, ef að þér er boðin vinna eftir háskólanám,
annars vegar sitja á þingi fyrir 550 þús hinsvegar sitja á skrifstofu fyrir 800 þús.

finnst þér líklegt að þú tækir vinnunni sem að væri með 250 þús króna lægri mánaðarlaun ?

Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !

Skjámynd

hagur
Besserwisser
Póstar: 3125
Skráði sig: Mið 17. Des 2003 16:11
Reputation: 455
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Íslenskur virðisaukaskattur á App Store

Pósturaf hagur » Þri 24. Júl 2012 16:18

urban skrifaði:
Klemmi skrifaði:Ég held að fæstir þingmenn séu einfaldlega á grunnlaunum, það safnast furðulega fljótt saman auka launin fyrir setu í hinum og þessum nefndum.
Enn fremur þá ætlar enginn að segja mér að flestir þingmenn vinni 8 tíma vinnudag nema þegar eitthvað mikið er í gangi, auk þess sem þeir fá ágætis þinghlé...

En grunnlaun alþingismanna eru bara án gríns alveg hlægilega lág laun.
Litli bróðir minn sem að er 18 ára er búinn að vera á hærri tekjum undanfarna mánuði en grunnlaun alþingismanna eru.

ok vissulega er það rétt að flestir þingmenn séu ekki á grunnlaunum.
en ef að við tökum sem dæmi forsætisráðherran okkar.
hver ætli hennar laun séu ? 1 og hálf milla ? eitthvað þar um bil.

ég verð bara að segja að manneskja með 30 ára starfsreynslu á þingi og sem forsætisráðherra íslands þá eru það alveg hlægilega lág laun í rauninni.
ef að þessi laun væru hærri þá væri nú hugsanlegt að hæfari manneskjur fengust til verksins.

Klemmi skrifaði:Ég vil ekki fá menn í þingstörf sem eru að eltast við launin, þingmenn og aðrir pólítíkusar, í hinum fullkomna heimi, ættu að vinna sína vinnu af hugsjón, á mannsæmandi launum, frekar en ofurlaunum. Ef þessir sömu menn geta setið og sagt að lágmarkslaun dugi fyrir framfærslu heimila, þá ættu þeir nú ekki að vera í vandræðum á 2-3 földum slíkum launum. Það er hræsni að segja annað.

Ég vill heldur alls ekki að menn fari að elta launin þegar að þeir fari á þing.
en ég vill að þingið sé að lágmarki samanburðarhæft.
þar sem að fólk sem að gæti verið góður kostur á þing, fer einfaldlega ekki þangað vegna þess að það getur fengið hærri laun annar staðar.
þetta er ekki spurning hvort að menn elti hugsjónina sína á mannsæmandi launum, heldur hvort að hugsjónafólkið mæti bara almennt á staðinn.

einsog ég segi, í raun þá eru alþingisstörf og æðstu störf ríkisins alveg hlægilega lágt launuð.
tlord skrifaði:það mætti líka vera með 3 einkarekinn sjúkrahús, sem myndu keppa í að veita góða þjónustu á hagstæðu verði fyrir hið opinbera heilbrigðiskerfi.

Heldur þú að þú hefðri efni á því að fara á einkarekið sjúkrahús ??
semsagt sjúkrahús sem að væri rekið utan við opinbera kerfið.
http://www.althingi.is/vefur/thingfarakaup.html
get alveg lofað þér því að það sjúkrahús væri bara fyrir forríka.

Þingfararkaup er í dag rúmar 600 þús krónur á mánuði. http://www.althingi.is/vefur/thingfarakaup.html

Endilega deildu með okkur hvar 18 ára gamall bróðir þinn er að vinna og hve margar vinnustundir liggja á bakvið hans mánaðarlaun.

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7595
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1193
Staða: Ótengdur

Re: Íslenskur virðisaukaskattur á App Store

Pósturaf rapport » Þri 24. Júl 2012 16:20

Tbot skrifaði:
rapport skrifaði:t...

Ríkið er með rammasamninga við fullt af fyrirtækjum sem gerir þeim kleyft að nálgast sömu vöru ansi oft.

Varðandi útboð er ansi oft hægt að leysa hlutina, svo hægt sé að fá það sem lagt er upp með... sett skilyrði í útboði og framhald þess. JAfnvel er hægt að komast framhjá mörgum hlutum í þeim.

Með vatnið kemur fram kunnáttuleysi þitt vegna fasteignagjalda. Einn liður í fasteignagjöldum í Reykjavik er fast verð á köldu vatni. Sum sveitarfélög úti á landi rukka kalt vatn eftir mæli.
Sumt er ódýrara hér á landi en margt annað dýrara.

lol - ég veit að við borgum fyrir vatnið einhverja þúsundkalla en það er peanuts í samanburði við hvað aðrar þjóðir þurfa að leggja á sig til að fá drykkjarvatn af sömu gæðum.

Veit ekki hver þekking þín er á innkaupum ríkisins en ég vinn við þetta. rammasamningar hjá íslenska ríkinu eru kjánalega margir og ástæðan er einföld. Ríkiskaup voru að skaffa sér tekjur því að þeir fá prósentur af rammasamningum en ekki einstökum útboðum.

Fyrir vikið eru til rammasaningar um allt og ekkert og ríkisfyrirtæki og stofnanir þurfa ætíð að fara í örútboð inna rammasaninga til að fá kröfum sínum um verð og gæði fullnægt.

Ríkiskaup eru eina stofnunin sem hefur aukið tekjur sínar eftir kreppu... ég bind miklar vonir við nýjan forstjóra ríkiskaupa sem nota-bene er fyrrum deildarstjóri innkaupadeildar LSH.

Flækjurnar í þessum málum eru miklar og þar sem spítalinn er stærsti kaupandinn ef ekki eini á ýmsum tækjum og búnaði, þá erum við nánast alltaf kærð fyrir ótrúlegustu smáatriði t.d. bara ef við erum að bjóða út fjarskipti eða skurðarborð...

Það má ekkert út af bera þá er það kært... jafnvel aðilar sem eru með samning við okkur kæra til að kaupa sér smá frest áður en sá næsti tekur við... en svona kærur kosta skildinginn fyrir ríkið/LSH sem þarf alltaf að taka til varna fyrir úrskurðarnefnd...

Þannig að einn forstjóri getur sent eitt bréf og skapað vinnu fyrir 2-3 hjá LSH, 5 manna úrskurðarnefnd, 1-2 hjá ríkiskaupum og svo ritara nefndarinnar...

Ein lítil kæra sem er um 4x60mínútur fyrir forstjórann sem kærir (kannski ráðfærir hann sig við lögfræðing (4*30 mín) = 6klst. hjá fyrirtæki...

Þær skapa vinnu hjá ríkinu upp á 4 * 8klst (væg áætlun að yfirfara öll útboðsgögn hjá LSH og ríkiskaupum, sannreyna kvörtun og útbúa svör sem þurfa að vera formleg og lagatæknilega rétt) + úrkurðarnefnd 5* 60 mín (lesa yfir öll gögn og úrskurða) + 2klst hjá ritara nefndarinnar. = fimm dagsverk og það er algjört lágmark því að svona mál kallar á mikla samhæfingu milli stofnana, leit að ráðgjöf utanaðkomandi lögfræðinga jafnvel og guð má vita hvað...

Því að ef kvörtunin er á rökum rétt þá á viðkomandi rétt á bótum, oft upp á einhverjar milljónir ef ríkið vinnur sitt verk ekki rétt...

Svo kallar fólk það vanhæfni ríkisins ef eitthvað klúðrast... sem er kannski rétt... en þetta er fokking fdrumskógur þetta kerfi og eitthvað sem var rétt hjá seinustu úrksurðarnefnd er ekki lengur rétt í dag hjá þeirri nýju...

Skjámynd

Haxdal
Tölvutryllir
Póstar: 640
Skráði sig: Lau 14. Apr 2007 18:58
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Íslenskur virðisaukaskattur á App Store

Pósturaf Haxdal » Þri 24. Júl 2012 16:23

urban skrifaði:nú ætla ég að spyrja þig að einu, úr því að þú talaðir um það að þú myndir alveg fara á þing fyrir þeirra grunnlaun (eða þín laun)
myndir þú fara á þing og lækka þig um nokkur hundruð þúsund í laun ??

Sé hvert þú ert að fara með þetta, en nei.. ég gæti ekki lifað á svo miklu minna en ég fæ núna miðað við mínar skuldbindingar til næstu ára án þess að það kæmi sér illa fyrir fjölskylduna.

En ég tel það vera stóran mun á því að ég fari úr launum sem telst til millistéttarinnar niður í láglaunastéttar og framfleyta fjölskyldu á sama tíma og á þeim sem eru í yfirstétt að fara í millistétt. Það er stór munur á því að ég hætti að reka litlu drusluna mína og fari yfir í strætó og fyrir þá að skipta út Benzinum eða BMWinum fyrir Corollu, eða ég fari úr lítilli íbúð sem er þegar of lítil fyrir mína fjölskyldu í ennþá minni íbúð eða fara úr einbýlishúsi í raðhús ... Það er munur á að missa lúxus og að missa nauðsynjar.

Atvinnunörd - Part of the 2%
> FX8350 | Gigabyte 990FXA-UD3 | Nvidia GTX 760 | 8GB Somethingsomething | Corsair Graphite 600T <

coldcut
Vaktari
Póstar: 2192
Skráði sig: Mið 21. Nóv 2007 02:25
Reputation: 0
Staðsetning: /dev/random
Staða: Ótengdur

Re: Íslenskur virðisaukaskattur á App Store

Pósturaf coldcut » Þri 24. Júl 2012 16:28

Tiger skrifaði:Þetta er orðið officialy leiðinlegasti þráður vaktarinnar á þessu ári!

hahaha bíddu bara þangað til einhver nær að snúa þessu í umræðu um hvort eigi að lögleiða kannabis eða ekki...

Skjámynd

urban
Stjórnandi
Póstar: 3750
Skráði sig: Mán 06. Des 2004 01:26
Reputation: 474
Staðsetning: Undir hægra megin
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Íslenskur virðisaukaskattur á App Store

Pósturaf urban » Þri 24. Júl 2012 16:28

Haxdal skrifaði:
urban skrifaði:nú ætla ég að spyrja þig að einu, úr því að þú talaðir um það að þú myndir alveg fara á þing fyrir þeirra grunnlaun (eða þín laun)
myndir þú fara á þing og lækka þig um nokkur hundruð þúsund í laun ??

Sé hvert þú ert að fara með þetta, en nei.. ég gæti ekki lifað á svo miklu minna en ég fæ núna miðað við mínar skuldbindingar til næstu ára án þess að það kæmi sér illa fyrir fjölskylduna.

En ég tel það vera stóran mun á því að ég fari úr launum sem telst til millistéttarinnar niður í láglaunastéttar og framfleyta fjölskyldu á sama tíma og á þeim sem eru í yfirstétt að fara í millistétt. Það er stór munur á því að ég hætti að reka litlu drusluna mína og fari yfir í strætó og fyrir þá að skipta út Benzinum eða BMWinum fyrir Corollu, eða ég fari úr lítilli íbúð sem er þegar of lítil fyrir mína fjölskyldu í ennþá minni íbúð eða fara úr einbýlishúsi í raðhús ... Það er munur á að missa lúxus og að missa nauðsynjar.

það var nú ekki það sem að ég átti við, hvort að þú myndir lækka þig úr núverandi launum.

heldur, myndir þú lækka þig úr t.d. 900 þús króna tekjum í 600 þús.
ég persónulega myndi ekki gera það.

Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !

Skjámynd

urban
Stjórnandi
Póstar: 3750
Skráði sig: Mán 06. Des 2004 01:26
Reputation: 474
Staðsetning: Undir hægra megin
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Íslenskur virðisaukaskattur á App Store

Pósturaf urban » Þri 24. Júl 2012 16:29

coldcut skrifaði:
Tiger skrifaði:Þetta er orðið officialy leiðinlegasti þráður vaktarinnar á þessu ári!

hahaha bíddu bara þangað til einhver nær að snúa þessu í umræðu um hvort eigi að lögleiða kannabis eða ekki...

hmmm ég gæti nú alveg reynt
en það er samt enginn ykkar hinna stjórnandanna að standa sig :D
þið gætuð allir skipt þessu upp í 2 þræði, ég nenni því bara engan vegin :)

Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !

Skjámynd

Haxdal
Tölvutryllir
Póstar: 640
Skráði sig: Lau 14. Apr 2007 18:58
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Íslenskur virðisaukaskattur á App Store

Pósturaf Haxdal » Þri 24. Júl 2012 16:35

urban skrifaði:það var nú ekki það sem að ég átti við, hvort að þú myndir lækka þig úr núverandi launum.

heldur, myndir þú lækka þig úr t.d. 900 þús króna tekjum í 600 þús.
ég persónulega myndi ekki gera það.

Ef það er það sem þú varst að meina þá já .. ég myndi gera það, gefið að ég gæti losnað úr þeim fjárhagsskuldbindingum sem ég væri þá örugglega bundinn af til að ég gæti tekið tekjumissinn.

Atvinnunörd - Part of the 2%
> FX8350 | Gigabyte 990FXA-UD3 | Nvidia GTX 760 | 8GB Somethingsomething | Corsair Graphite 600T <

Skjámynd

dori
Besserwisser
Póstar: 3606
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Reputation: 142
Staða: Ótengdur

Re: Íslenskur virðisaukaskattur á App Store

Pósturaf dori » Mið 25. Júl 2012 15:22

Ef við förum aftur að upprunalega umræðuefninu þá er ég ekki alveg sammála því að það eigi að vera sjálfsagt að rukkaður sé íslenskur virðisaukaskattur af vörum sem eru seldar yfir netið. Ég sé alveg tilfelli sem það er réttlátt og önnur tilfelli sem það er það eiginlega ekki. Netið og ferðalög fólk milli landa flækja þessa hluti svo rosalega mikið að mér finnst þetta vera miklu meira mál en að það sé bara hægt að smella 25,5% skatti á allt sem íslenskir notendur kaupa. Það er bara ósanngjörn og allt of þröngsýn leið til að líta á hlutina (þó svo að það sé auðveldast fyrir alla og best fyrir ríkissjóð).

Þetta er útfært þannig (hjá Apple, ekki ríkinu) að ég þarf að borga íslenskan virðisaukaskatt ef ég er skráður sem íslendingur. Til dæmis ef ég væri í Bandaríkjunum og myndi borga fyrir app sem er bara nothæft þar (s.s. fyrir einhverja semi-local þjónustu) af hverju er ég að borga virðisaukaskatt bara af því að ég er skráður til heimilis einhversstaðar annars staðar í heiminum. Ég fer ekkert að borga íslenskan virðisaukaskatt af dollaranum sem ég borgaði fyrir að láta leggja bílnum þegar ég kem heima aftur.

Borga ég íslenskan virðisaukaskatt ef "in-app purchase" þegar ég er staddur erlendis? Er gerður greinarmunur á því hvenær "in-app purchase" er fyrir vöru sem ég mun eiga áfram eða þjónustu sem rennur út?

Þetta er orðinn svolítið flókinn heimur þegar þú ert kominn með tæki á netinu sem eru að kaupa vörur/þjónustu og svo ferðast fólk á milli landa ofan á það.

Skjámynd

Tiger
Besserwisser
Póstar: 3849
Skráði sig: Sun 16. Mar 2003 13:22
Reputation: 265
Staða: Ótengdur

Re: Íslenskur virðisaukaskattur á App Store

Pósturaf Tiger » Mið 25. Júl 2012 15:27

dori skrifaði:Ef við förum aftur að upprunalega umræðuefninu þá er ég ekki alveg sammála því að það eigi að vera sjálfsagt að rukkaður sé íslenskur virðisaukaskattur af vörum sem eru seldar yfir netið. Ég sé alveg tilfelli sem það er réttlátt og önnur tilfelli sem það er það eiginlega ekki. Netið og ferðalög fólk milli landa flækja þessa hluti svo rosalega mikið að mér finnst þetta vera miklu meira mál en að það sé bara hægt að smella 25,5% skatti á allt sem íslenskir notendur kaupa. Það er bara ósanngjörn og allt of þröngsýn leið til að líta á hlutina (þó svo að það sé auðveldast fyrir alla og best fyrir ríkissjóð).

Þetta er útfært þannig (hjá Apple, ekki ríkinu) að ég þarf að borga íslenskan virðisaukaskatt ef ég er skráður sem íslendingur. Til dæmis ef ég væri í Bandaríkjunum og myndi borga fyrir app sem er bara nothæft þar (s.s. fyrir einhverja semi-local þjónustu) af hverju er ég að borga virðisaukaskatt bara af því að ég er skráður til heimilis einhversstaðar annars staðar í heiminum. Ég fer ekkert að borga íslenskan virðisaukaskatt af dollaranum sem ég borgaði fyrir að láta leggja bílnum þegar ég kem heima aftur.

Borga ég íslenskan virðisaukaskatt ef "in-app purchase" þegar ég er staddur erlendis? Er gerður greinarmunur á því hvenær "in-app purchase" er fyrir vöru sem ég mun eiga áfram eða þjónustu sem rennur út?

Þetta er orðinn svolítið flókinn heimur þegar þú ert kominn með tæki á netinu sem eru að kaupa vörur/þjónustu og svo ferðast fólk á milli landa ofan á það.

Væri þetta local app yfir höfuð nokkuð til í Íslenska Appstore?? Veit að locak app's eru það sjaldnast, eins og t.d. app SKY sjónvarpsstöðvarinar, það er bara til í UK store. Þannig að þú gætir ekki keypt það þótt þú værir staddur í UK en værir með íslenskt acount í appstore. Þannig að þetta dæmi þitt gengur líklega ekki upp.

Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16576
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2137
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Íslenskur virðisaukaskattur á App Store

Pósturaf GuðjónR » Mið 25. Júl 2012 15:29

Sko þegar þú skráir Apple ID ið þitt þá tekur þú fram hvar þú ert.
Ef þú skráir þig á íslandi þá skiptir engu máli þó þú sért staddur í útlöndum þegar kaupin eiga sér stað þú borgar alltaf VSK.
En ef þú kaupir forritið út úr búð í útlöndum þá gerir þú það ekki.

Svona fyrirkomulag leiðir til þess að fólk fer að:
a) stela forritum (apps)
b) skráir sig í öðru landi en á íslandi
c) sættir sig við ofríkið og borgar þegjandi og hljóðalaust

Skjámynd

Tiger
Besserwisser
Póstar: 3849
Skráði sig: Sun 16. Mar 2003 13:22
Reputation: 265
Staða: Ótengdur

Re: Íslenskur virðisaukaskattur á App Store

Pósturaf Tiger » Mið 25. Júl 2012 15:57

GuðjónR skrifaði:Sko þegar þú skráir Apple ID ið þitt þá tekur þú fram hvar þú ert.
Ef þú skráir þig á íslandi þá skiptir engu máli þó þú sért staddur í útlöndum þegar kaupin eiga sér stað þú borgar alltaf VSK.
En ef þú kaupir forritið út úr búð í útlöndum þá gerir þú það ekki.

Svona fyrirkomulag leiðir til þess að fólk fer að:
a) stela forritum (apps)
b) skráir sig í öðru landi en á íslandi
c) sættir sig við ofríkið og borgar þegjandi og hljóðalaust

Þú gleymdir lið d
d) fattar að hugbúnaður er ekkert öðruvísi en aðrar vörur og því 100% skiljanlegt að greiða vsk af þeim kaupum.

Og ef þú greiðir fyrir forritð útí búð erlendis þá hefuru ákveðna upphæð sem þú mátt versla fyrir skattfrjálst, ef þú ferð yfir það þá ættiru í raun að greiða af forritinu við komuna til landsins ;)

Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16576
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2137
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Íslenskur virðisaukaskattur á App Store

Pósturaf GuðjónR » Mið 25. Júl 2012 16:38

Já tæknilega rétt hjá þér Tiger, þetta er frekar huglægur pirringur að borga þetta.
Kannski af því að maður hefur komist upp með það hingað til að gera það ekki.

Skjámynd

natti
Tölvutryllir
Póstar: 663
Skráði sig: Fös 10. Jan 2003 09:59
Reputation: 61
Staðsetning: 107
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Íslenskur virðisaukaskattur á App Store

Pósturaf natti » Mið 25. Júl 2012 16:54

GuðjónR skrifaði:Já tæknilega rétt hjá þér Tiger, þetta er frekar huglægur pirringur að borga þetta.
Kannski af því að maður hefur komist upp með það hingað til að gera það ekki.

Eða kannski huglægur pirringur því maður horfir á peningana sína hverfa í ríkissjóð og á sama tíma er "velferðarkerfið" skorið niður en ekki betrumbætt og við sjáum hundruði milljóna skattpeninga fara í styrki til stjórmálaflokka eða aðra "vitleysu".
Þá er voðalega auðvelt að pirra sig á því þegar sköttum er bætt við eða skattinnheimta hert/aukin.

Mkay.