Tollur & Tollmeðferð
-
- Ofur-Nörd
- Póstar: 288
- Skráði sig: Þri 19. Ágú 2014 12:23
- Reputation: 34
- Staða: Ótengdur
Re: Tollur & Tollmeðferð
Já þetta eru skrítin vinnubrögð sem eru að einhverju leiti þeim í hag, og auðvelt að halda fram að álagið sé mikið í kringum jólin. Ég nefnilega þekki til fólks sem var að lenda í nákvæmlega því sama og reddaði gjöfunum í gær (og greiddu að sjálfsögðu aukalega fyrir flýtimeðferð fyrir mistök póstsins).
-
- Internetsérfræðingur
- Póstar: 6799
- Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
- Reputation: 940
- Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Tollur & Tollmeðferð
KermitTheFrog skrifaði:Nú verð ég að segja að ég sé nokkuð hissa á vinnubrögðum þarna.
Ég pantaði jólagjöf handa litla frænda mínum af eBay seint í nóvember. ETA á pakkanum var á milli 10. des og 5. jan. Mér datt nú í hug að þetta yrði frekar í fyrra lagi, þar sem það er mín reynsla af því að versla þarna. Þeir virðast oftast gefa sér rúman sendingartíma.
Nema hvað. Nú er Þorláksmessa og ég fattaði að ef ég fengi þetta ekki í dag þá þyrfti ég að finna eitthvað annað til að gefa krílinu þar sem ég er að vinna í kvöld og á morgun. Ég hringdi í þjónustuborð póstsins og vildi athuga hvort það sæist eitthvað um þetta í kerfinu hjá þeim og viti menn, pakkinn er búinn að liggja uppi á Stórhöfða síðan 5. des að bíða eftir afriti af reikningi. Stúlkan í þjónustuverinu segir mér að það sé búið að prenta út tilkynningu og ítrekun. Hvorugt hefur skilað sér til mín.
Ég þurfti því að gera mér ferð upp á Stórhöfða og borga 500 kr. aukalega fyrir þetta flýtigjald þar sem það var "hæpið" að þetta myndi nást fyrir jól ef þetta færi venjulegu leiðina. Frekar fúlt þar sem annað hvort hefur Tollmiðlun póstsins klikkað á að senda þessa pappíra til mín, eða Pósturinn ekki skilað þessu inn um lúguna.
Stundum rata þessi bréf ekki rétta leið, til dæmis ef lögheimili er annað en heimili sendanda, ef viðtakandi á bögglinum er ekki sá sami og nafn sem er skráð á heimilisfangið(á bjöllu eða þjóðskrá), ef nafnið eða heimilisfang er vitlaust skrifað á pakkann osfrv. Ekki það að það hafi endilega gerst í þessu tilviki, en auðvitað getur þeim orðið á mistök eins og öðru fólki. Maður getur varla ýmindað sér álagið hjá póstþjónustum í desember.
En maður spyr sig, hvort þú hefðir ekki getað heyrt í þeim fyrr? Það er nú einusinni desember!
I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things
Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB
Ryzen 3600X 2070S 16GB
-
- Vaktari
- Póstar: 2730
- Skráði sig: Mán 15. Des 2003 21:11
- Reputation: 159
- Staða: Ótengdur
Re: Tollur & Tollmeðferð
KermitTheFrog skrifaði:Nú verð ég að segja að ég sé nokkuð hissa á vinnubrögðum þarna.
Ég pantaði jólagjöf handa litla frænda mínum af eBay seint í nóvember. ETA á pakkanum var á milli 10. des og 5. jan. Mér datt nú í hug að þetta yrði frekar í fyrra lagi, þar sem það er mín reynsla af því að versla þarna. Þeir virðast oftast gefa sér rúman sendingartíma.
Nema hvað. Nú er Þorláksmessa og ég fattaði að ef ég fengi þetta ekki í dag þá þyrfti ég að finna eitthvað annað til að gefa krílinu þar sem ég er að vinna í kvöld og á morgun. Ég hringdi í þjónustuborð póstsins og vildi athuga hvort það sæist eitthvað um þetta í kerfinu hjá þeim og viti menn, pakkinn er búinn að liggja uppi á Stórhöfða síðan 5. des að bíða eftir afriti af reikningi. Stúlkan í þjónustuverinu segir mér að það sé búið að prenta út tilkynningu og ítrekun. Hvorugt hefur skilað sér til mín.
Ég þurfti því að gera mér ferð upp á Stórhöfða og borga 500 kr. aukalega fyrir þetta flýtigjald þar sem það var "hæpið" að þetta myndi nást fyrir jól ef þetta færi venjulegu leiðina. Frekar fúlt þar sem annað hvort hefur Tollmiðlun póstsins klikkað á að senda þessa pappíra til mín, eða Pósturinn ekki skilað þessu inn um lúguna.
Ég fæ alltaf tölvupóst um að það vanti reikning, ertu ekki með tölvupóstfangið skráð hjá þeim?
-
- Kóngur
- Póstar: 4273
- Skráði sig: Mán 07. Júl 2008 23:32
- Reputation: 67
- Staða: Ótengdur
Re: Tollur & Tollmeðferð
SolidFeather skrifaði:Ég fæ alltaf tölvupóst um að það vanti reikning, ertu ekki með tölvupóstfangið skráð hjá þeim?
Nei ég kannski kíki á það. Getur maður skráð sig á netinu eða þarf maður að hringja í þá?
En ætli það sé tilviljun að tilkynningarnar hafi báðar komið inn um lúguna hjá mér í dag?
Sallarólegur skrifaði:Stundum rata þessi bréf ekki rétta leið, til dæmis ef lögheimili er annað en heimili sendanda, ef viðtakandi á bögglinum er ekki sá sami og nafn sem er skráð á heimilisfangið(á bjöllu eða þjóðskrá), ef nafnið eða heimilisfang er vitlaust skrifað á pakkann osfrv. Ekki það að það hafi endilega gerst í þessu tilviki, en auðvitað getur þeim orðið á mistök eins og öðru fólki. Maður getur varla ýmindað sér álagið hjá póstþjónustum í desember.
En maður spyr sig, hvort þú hefðir ekki getað heyrt í þeim fyrr? Það er nú einusinni desember!
Það er ekki tilfellið hér. Þessi bréf komu bæði inn um lúguna í dag. Eitt stimplað 5. des og hitt 19. des. Hefur bara fallið einhversstaðar á milli og gleymst get ég ímyndað mér.
En jú, ég hefði alveg getað heyrt í þeim fyrr. Það er að sjálfsögðu minn feill. Beið bara alltaf eftir bréfinu. Mér hefur áður mætt hálfgerður skætingur ef ég hringi og forvitnast um pakka sem eru ekki með tracking númer.
machinefart skrifaði:Já þetta eru skrítin vinnubrögð sem eru að einhverju leiti þeim í hag, og auðvelt að halda fram að álagið sé mikið í kringum jólin. Ég nefnilega þekki til fólks sem var að lenda í nákvæmlega því sama og reddaði gjöfunum í gær (og greiddu að sjálfsögðu aukalega fyrir flýtimeðferð fyrir mistök póstsins).
Já ég var ekki sá eini sem var þarna uppfrá að sækja pakka.
Síðast breytt af KermitTheFrog á Mið 24. Des 2014 00:07, breytt samtals 1 sinni.
-
- Vaktari
- Póstar: 2730
- Skráði sig: Mán 15. Des 2003 21:11
- Reputation: 159
- Staða: Ótengdur
Re: Tollur & Tollmeðferð
KermitTheFrog skrifaði:SolidFeather skrifaði:Ég fæ alltaf tölvupóst um að það vanti reikning, ertu ekki með tölvupóstfangið skráð hjá þeim?
Nei ég kannski kíki á það. Getur maður skráð sig á netinu eða þarf maður að hringja í þá?
En ætli það sé tilviljun að tilkynningarnar hafi báðar komið inn um lúguna hjá mér í dag?Sallarólegur skrifaði:Stundum rata þessi bréf ekki rétta leið, til dæmis ef lögheimili er annað en heimili sendanda, ef viðtakandi á bögglinum er ekki sá sami og nafn sem er skráð á heimilisfangið(á bjöllu eða þjóðskrá), ef nafnið eða heimilisfang er vitlaust skrifað á pakkann osfrv. Ekki það að það hafi endilega gerst í þessu tilviki, en auðvitað getur þeim orðið á mistök eins og öðru fólki. Maður getur varla ýmindað sér álagið hjá póstþjónustum í desember.
En maður spyr sig, hvort þú hefðir ekki getað heyrt í þeim fyrr? Það er nú einusinni desember!
Það er ekki tilfellið hér. Þessi bréf komu bæði inn um lúguna í dag. Eitt stimplað 5. des og hitt 19. des. Hefur bara fallið einhversstaðar á milli og gleymst get ég ímyndað mér.
En jú, ég hefði alveg getað heyrt í þeim fyrr. Það er að sjálfsögðu minn feill. Beið bara alltaf eftir bréfinu.machinefart skrifaði:Já þetta eru skrítin vinnubrögð sem eru að einhverju leiti þeim í hag, og auðvelt að halda fram að álagið sé mikið í kringum jólin. Ég nefnilega þekki til fólks sem var að lenda í nákvæmlega því sama og reddaði gjöfunum í gær (og greiddu að sjálfsögðu aukalega fyrir flýtimeðferð fyrir mistök póstsins).
Já ég var ekki sá eini sem var þarna uppfrá að sækja pakka.
Minnir að ég hafi bara skráð mig í gegnum netið.
-
- Kóngur
- Póstar: 4273
- Skráði sig: Mán 07. Júl 2008 23:32
- Reputation: 67
- Staða: Ótengdur
Re: Tollur & Tollmeðferð
sverrirgu skrifaði:http://www.postur.is/pakkar/fra-utlondum/tilkynning-um-tollsendingu/
Snilld, þá lendir maður ekki í þessu aftur.
-
- Gúrú
- Póstar: 570
- Skráði sig: Þri 22. Apr 2008 20:00
- Reputation: 38
- Staða: Ótengdur
Re: Tollur & Tollmeðferð
Svo er líka hægt að skrá sig í kerfið hjá þeim í póstinum að um og leið og sending er skönnuð inní hillu á pósthúsi þá fær maður SMS. Þá þarf maður ekki að biða eftir að það komi tilkynning innum lúguna að það bíði manns sending á pósthúsi
-
- Gúrú
- Póstar: 510
- Skráði sig: Lau 07. Jan 2006 02:16
- Reputation: 20
- Staðsetning: Grafarvogur
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Tollur & Tollmeðferð
Ég átti von á pakka í gær að dyrum sem búið var að borga kostnaðinn fyrir, hringdi uppeftir og spurði hvort það væri ekki í lagi að sækja hann sjálfur því ég vissi ekki hvort ég myndi vera heima og til að gulltryggja að ég myndi fá pakkann fyrir jól, jújú ekkert mál en það kostar 500kr.
What? Kostar aukalega að sækja pakkan þegar það er búið að borga fyrir heimkeyslu.
What? Kostar aukalega að sækja pakkan þegar það er búið að borga fyrir heimkeyslu.
Lian Li O11 Mini * NZXT B650e (black) * AMD Ryzen 7 7700x * 64GB Corsair VENGEANCE 6000MHz CL36 EXPO * Zotac GTX1080 AMP Extreme * 1TB M.2 970 EVO Plus NVMe * Corsair iCUE H115i RGB ELITE AIO
-
- Kóngur
- Póstar: 4273
- Skráði sig: Mán 07. Júl 2008 23:32
- Reputation: 67
- Staða: Ótengdur
Re: Tollur & Tollmeðferð
roadwarrior skrifaði:Svo er líka hægt að skrá sig í kerfið hjá þeim í póstinum að um og leið og sending er skönnuð inní hillu á pósthúsi þá fær maður SMS. Þá þarf maður ekki að biða eftir að það komi tilkynning innum lúguna að það bíði manns sending á pósthúsi
Ég er greinilega bara svona gamaldags. Fylgist reyndar alltaf með þegar það er tracking númer með pakkanum. Þá er ég oftast búinn að sækja pakkann áður en tilkynningin kemur inn um lúguna.
astro skrifaði:Ég átti von á pakka í gær að dyrum sem búið var að borga kostnaðinn fyrir, hringdi uppeftir og spurði hvort það væri ekki í lagi að sækja hann sjálfur því ég vissi ekki hvort ég myndi vera heima og til að gulltryggja að ég myndi fá pakkann fyrir jól, jújú ekkert mál en það kostar 500kr.
What? Kostar aukalega að sækja pakkan þegar það er búið að borga fyrir heimkeyslu.
Þessi fimmhundruðkall er "flýtimeðferðargjald" eða gjald fyrir að taka pakkann "úr ferli."
Basically bara filter. Ef fólk er til í að borga þennan pening þá má það alveg fá pakkann. En ef það væri frítt þá færu allir og amma þeirra þarna uppeftir í staðinn fyrir að bíða og fá þetta á sitt pósthús. Staðurinn myndi sennilega ekki anna því.