Ljósleiðarinn bilerí ?

Allt utan efnis

Greck
Nýliði
Póstar: 6
Skráði sig: Þri 27. Jan 2026 22:23
Reputation: 10
Staða: Ótengdur

Re: Ljósleiðarinn bilerí ?

Pósturaf Greck » Fös 30. Jan 2026 18:20

Sæll Ponzer.

Rétt athugað með asymmetric routing. Það er tekið fram í "Um Netvaktina" (undir Hvað mælist ekki?) að mælingin gildi fyrir útleiðina, einmitt þar sem leiðirnar eru ekki alltaf samhverfar.

Varðandi RIPE Atlas og BGP tól:
Þau eru vissulega öflug, en markmiðið með þessu hjá mér er að einfalda þessar upplýsingar. Ég vil geta svarað spurningunni "Er internetið í lagi?" á mannamáli fyrir Ísland.

Síður eins og bgp.he.net eru ekki læsilegar fyrir almenning. Ég hugsaði þetta meira sem "Veðurstöð" fyrir fólkið, ekki bara "Barometer" fyrir veðurfræðinga.

Staðan núna er experimental
Þetta er fyrsta útgáfa og ég er enn að gera tilraunir með bestu aðferðafræðina og því frábært að fá innlegg um þetta.
Núverandi gögn eru takmörkuð við minn mælipunkt.
Til að þetta verði marktækara þarf fleiri mælipunkta:
Ég er búinn að pakka "Probunni" í Docker gám sem er tilbúinn til keyrslu. Ef þú (eða aðrir) eruð til í að keyra gáminn og hjálpa til við að stækka mælinetið, endilega heyrið í mér.




Greck
Nýliði
Póstar: 6
Skráði sig: Þri 27. Jan 2026 22:23
Reputation: 10
Staða: Ótengdur

Re: Ljósleiðarinn bilerí ?

Pósturaf Greck » Lau 28. Feb 2026 21:25

Sælir aftur og takk kærlega fyrir hjálpina hjá ykkur sem eruð byrjaðir að keyra mæla (probes)! Það er strax farið að gefa miklu skemmtilegri og nákvæmari mynd af því hvernig mismunandi ISP-ar eru að beina umferðinni sinni.

Út frá umræðunni okkar hérna um daginn (t.d. pælingunum um asymmetric routing) fór ég að dunda mér við að uppfæra kerfið aðeins:

1. Mælingar í báðar áttir: Núna er hægt að skipta á milli „Frá Íslandi“ (outbound) og „Til Íslands“ (inbound). Þannig fáum við að sjá hvernig leiðin til baka lítur út frá erlendu mælunum.
2. Nýtt „Rauntímakort“ (Subway Map): Ég henti í smá tilraun á framendanum til að gera rutinguna aðeins myndrænni. Hugmyndin er að sýna pakkana „fljúga“ yfir á milli landa í rauntíma og sjá nákvæmlega hvaða strengir (IRIS, Farice, Danice, Greenland Connect) eru notaðir af hvaða ISP.

Þetta er ennþá mjög experimental hjá mér og langt í frá fullkomið, svo mig langaði að fá smá "sanity check" frá ykkur.

Endilega kíkjið á kortið á http://netvaktin.is og segið mér hvað ykkur finnst. Er þessi nýja sýn eitthvað að gera gagn eða er þetta bara of mikið sjónrænt klúður? Og sjáið þið eitthvað skrítið í rutingunni hjá ykkar ISP á rauntímakortinu?

Öll gagnrýni, hugmyndir og pælingar vel þegnar!

(Og ef fleiri vilja hýsa Docker gám og hjálpa til við að stækka netið þá er það alltaf velkomið!)



Skjámynd

depill
Stjórnandi
Póstar: 1612
Skráði sig: Mán 04. Júl 2005 17:09
Reputation: 267
Staðsetning: Reykjavík, Iceland
Staða: Ótengdur

Re: Ljósleiðarinn bilerí ?

Pósturaf depill » Sun 01. Mar 2026 18:43

Þetta er geggjað flott effort og margt mjög skemmtilegt við þetta. Hins vegar rauntímakortið lætur mann frekar efast enn að segja manni eithvað.

Þar sem Ísland er teiknað sem skiptistöð, enn til dæmis Halifax og Grænlandspakkar eru örugglega að fara til EU og svo yfir þar sem ég held að enginn ISPi sé að rúta activt yfir Greenland Connect á Íslandi í dag ( gæti haft rangt fyrir mér ).

Svo í latency þá er ég stundum að hugsa um hvort það sé ekki gott að hafa tenginguna og jafnvel hvar hún er. Munurinn í latency út getur hreinlega verið útskýrð á því að tengingin hjá einum ISPa sé á Ísafirði og hin sé í Rvk.

Væri fáranlega gaman að sjá svipað og Smokeping https://virvir.rhnet.is/smokeping/?targ ... nds.Vortex þar sem það gefur innsýn inní hvort að þetta sé álagstengd vandamál á móti rauntímastöðu.



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17255
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2378
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Tengdur

Re: Ljósleiðarinn bilerí ?

Pósturaf GuðjónR » Sun 01. Mar 2026 20:26

Þetta er mjög flott! ... Sérstaklega lénarnafnið :D




Greck
Nýliði
Póstar: 6
Skráði sig: Þri 27. Jan 2026 22:23
Reputation: 10
Staða: Ótengdur

Re: Ljósleiðarinn bilerí ?

Pósturaf Greck » Sun 01. Mar 2026 20:55

Sælir og takk kærlega fyrir þessa rýni, þetta er akkúrat það "sanity check" sem ég var að leita að! Þú hittir naglann á höfuðið með báða punkta.

Grænland og Rauntímakortið (Subway Map)
Þú hefur algjörlega rétt fyrir þér. Það er enginn að rúta beint vestur um Greenland Connect, en UI-ið á kortinu er núna að teikna beina línu. Þegar latency til Grænlands er 100+ ms þá er það að fara "trombone" leiðina (Ísland - Evrópa. Ég er að fara að endurskrifa lógíkina á kortinu þannig að það verði meira "Cable-Centric". Þá mun línan fyrir grænland teiknast frá Íslandi, í gegnum Farice/Iris,. það ætti að útskýra þetta "tromboning" miklu betur sjónrænt og sýna raunverulegu leiðina.


Baseline og Landafræðileg skekkja
100% sammála. Ljósleiðari í bænum vs. kopar úti á landi skekkir RTT tölurnar. Næsta skref í viðmótinu er að tagga mælana almennilega (t.d. "Hringdu Ljósleiðari - RVK") til að hreinsa þetta noise" og gera samanburðinn eðlilegan.

3. Smokeping / Söguleg Gögn
Þetta er nákvæmlega það sem Zabbix bakendinn er að gera núna Hann safnar þessu öllu. Framendinn er bara ekki farinn að teikna gröfin ennþá. Næsta uppfærsla verður uppfærsla á "Stöðugleiki" flipanum þar sem hægt verður að sjá historical gröf (eins og Smokeping) til að aðgreina Netflix-álag að kveldi frá raunverulegu BGP flökti.

Takk aftur fyrir gagnrýnina. Ef þú hefur tök á og vilt hjálpa til við að fá betri yfirsýn þá er Docker gámurinn klár á GitHub!

@Guðjón lénanafnið var að sjálfsögðu innblásið af þessum vef :)