Ljósleiðarinn bilerí ?

Allt utan efnis

Greck
Nýliði
Póstar: 5
Skráði sig: Þri 27. Jan 2026 22:23
Reputation: 10
Staða: Ótengdur

Re: Ljósleiðarinn bilerí ?

Pósturaf Greck » Fös 30. Jan 2026 18:20

Sæll Ponzer.

Rétt athugað með asymmetric routing. Það er tekið fram í "Um Netvaktina" (undir Hvað mælist ekki?) að mælingin gildi fyrir útleiðina, einmitt þar sem leiðirnar eru ekki alltaf samhverfar.

Varðandi RIPE Atlas og BGP tól:
Þau eru vissulega öflug, en markmiðið með þessu hjá mér er að einfalda þessar upplýsingar. Ég vil geta svarað spurningunni "Er internetið í lagi?" á mannamáli fyrir Ísland.

Síður eins og bgp.he.net eru ekki læsilegar fyrir almenning. Ég hugsaði þetta meira sem "Veðurstöð" fyrir fólkið, ekki bara "Barometer" fyrir veðurfræðinga.

Staðan núna er experimental
Þetta er fyrsta útgáfa og ég er enn að gera tilraunir með bestu aðferðafræðina og því frábært að fá innlegg um þetta.
Núverandi gögn eru takmörkuð við minn mælipunkt.
Til að þetta verði marktækara þarf fleiri mælipunkta:
Ég er búinn að pakka "Probunni" í Docker gám sem er tilbúinn til keyrslu. Ef þú (eða aðrir) eruð til í að keyra gáminn og hjálpa til við að stækka mælinetið, endilega heyrið í mér.




Greck
Nýliði
Póstar: 5
Skráði sig: Þri 27. Jan 2026 22:23
Reputation: 10
Staða: Ótengdur

Re: Ljósleiðarinn bilerí ?

Pósturaf Greck » Lau 28. Feb 2026 21:25

Sælir aftur og takk kærlega fyrir hjálpina hjá ykkur sem eruð byrjaðir að keyra mæla (probes)! Það er strax farið að gefa miklu skemmtilegri og nákvæmari mynd af því hvernig mismunandi ISP-ar eru að beina umferðinni sinni.

Út frá umræðunni okkar hérna um daginn (t.d. pælingunum um asymmetric routing) fór ég að dunda mér við að uppfæra kerfið aðeins:

1. Mælingar í báðar áttir: Núna er hægt að skipta á milli „Frá Íslandi“ (outbound) og „Til Íslands“ (inbound). Þannig fáum við að sjá hvernig leiðin til baka lítur út frá erlendu mælunum.
2. Nýtt „Rauntímakort“ (Subway Map): Ég henti í smá tilraun á framendanum til að gera rutinguna aðeins myndrænni. Hugmyndin er að sýna pakkana „fljúga“ yfir á milli landa í rauntíma og sjá nákvæmlega hvaða strengir (IRIS, Farice, Danice, Greenland Connect) eru notaðir af hvaða ISP.

Þetta er ennþá mjög experimental hjá mér og langt í frá fullkomið, svo mig langaði að fá smá "sanity check" frá ykkur.

Endilega kíkjið á kortið á http://netvaktin.is og segið mér hvað ykkur finnst. Er þessi nýja sýn eitthvað að gera gagn eða er þetta bara of mikið sjónrænt klúður? Og sjáið þið eitthvað skrítið í rutingunni hjá ykkar ISP á rauntímakortinu?

Öll gagnrýni, hugmyndir og pælingar vel þegnar!

(Og ef fleiri vilja hýsa Docker gám og hjálpa til við að stækka netið þá er það alltaf velkomið!)