Fott grein hjá Halldóru Mogensen - Er ekki kominn tími á að loka Microsoft búllunni fyrir fullt og allt?
Hvað segja Vaktarar?
https://www.visir.is/g/20252753829d/ad- ... in-innvidi
K.
Að leigja okkar eigin innviði...
Re: Að leigja okkar eigin innviði...
Svona "heróp" koma fram á yfirborðið reglulega, að fara yfir í opinn hugbúnað, en ekkert breytist, því það er ómögulegt.
Opinn hugbúnaður er svo langt á eftir að það er ekki fyndið, og margar ástæður fyrir því.
Jafnvel Kína og Rússland geta ekki dömpað Microsoft þrátt fyrir mikinn vilja. Það er ekkert stýrikerfi sem virkar í staðinn fyrir Windows. (jafnvel makkar geta verið erfiðir í fyrirtækjaumhverfi)
LibreOffice í stað Office? Fæ smá kjánahroll yfir þessari yfirlýsingu, því einhver hugbúnaður til að skrifa word skjöl skiptir ekki neinu máli, eiginlega doldill 90's hugsunarháttur. Allt tölvukerfið er í skýjinu, þ.e. office 365. Eitthvað libreoffice dæmi leysir ekkert slíkt af hólmi.
Microsoft er með um 230 þúsund starfsmenn, og ótal mörg undirfyrirtæki og verktaka ásamt gríðarlegu fjármagni.
Svo ertu með eitthvað dæmi einsog opinn hugbúnað sem er sinnt svona sisona af örfáum sem fá ekkert borgað. Vonlaust dæmi.
En hví getur "Evrópa" ekki keppt? Evrópa er ekki eitt land með eina menningu, eitt tungumál, einn gjaldmiðil, einn markað.
Þó ESB eigi að auðvelda allt þá eru allskonar erfiðleikar jafnvel innan ESB ímynda ég mér hvað svona varðar. T.d. myndi Frakkland aldrei vilja að "silicon valley Evrópu" yrði í öðru landi en sínu eigin, sama gildir með önnur evrópulönd, þau vilja öll koma sér upp eigin "silicon valley", var ekki talað um Vatnsmýrina sem "þekkingarþorp" fyrir einhverjum árum síðan. Fyrir vikið ertu með mjög fragmentað tækniumhverfi í Evrópu, ekkert land vill sjá eftir sínu tæknifólki annarsstaðar. En í BNA fara bara allir til Kaliforníu og í kísildalinn þar. Þannig hefur BNA byggt upp yfirburði sína, ásamt fáránlega sterku fjármagnskerfi.
Evrópa mun held ég aldrei geta keppt. Kína gæti gert það, og er í raun að gera á einhverjum vígstöðvum. En hvað Microsoft varðar þá er held ég ómögulegt að skipta því út.

Síðast breytt af appel á Þri 22. Júl 2025 23:53, breytt samtals 1 sinni.
*-*
-
- Besserwisser
- Póstar: 3259
- Skráði sig: Mið 07. Okt 2009 20:54
- Reputation: 594
- Staðsetning: ::1
- Staða: Ótengdur
Re: Að leigja okkar eigin innviði...
Ekkert að því að spurja sig gagrýnna spurninga og skoða möguleikana okkar. Eins og ég skil hlutina þá er Danmörk að færa sig frá Office 365 með LibreOffice og færa sig frá einhverjum skýjaþjónustum en ekki að færa sig frá Windows stýrikerfinu að svo stöddu. Væri alveg hægt að skoða lausnir eins og Nextcloud samhliða þessu skrefi en ég er sammála Appel að mörgu leyti að þessar lausnir eru ekki samkeppnishæfar hvað varðar productivity og þetta er lausn sem flestir notendur þekkja og að fara að þjálfa upp alla notendur í að nota aðrar lausnir er mjög hressandi verkefni og pant ekki vera sá gæi 
Edit: Sjálfur er ég þeirrar skoðunnar að það er í góðu lagi að nota open source hugbúnað ef hann er traustur og einfaldlega betri en annar valkostur og hentar í þau verkefni sem á að nota hugbúnað í og maður vill oftar en ekki geta treyst á að fá aðgang að þjónustaðila ef á reynir en ekki treysta á aðila í einhverju hobbý samfélagi sem þróar launsina. Stundum erfitt að rökræða við Pjúrista sem sjá ekkert annað en Open source hugbúnað sem valkost því allt þarf að vera open source. Þarfgreining er lykilatriði og ekki byggja upp lausn sem er byggð á sandi.

Síðast breytt af Hjaltiatla á Mið 23. Júl 2025 09:42, breytt samtals 4 sinnum.
Just do IT
√
√
Re: Að leigja okkar eigin innviði...
Góð grein sem snertir marga punkta sem eiga meira við undanfarin ár en fyrri. Eldri punktur sem hefur alltaf átt við er að Microsoft er algjör einokunarbúlla og notar mikið af þeirra fé í að halda því þannig. Mér finnst svo skrýtið hvernig eitt af hlutverkum ríkisins er að stuðla að frjálsum markaði, koma í veg fyrir markaðsráðandi stöður og hegðun svo að kaptítalisminn sé heilbrigður. En þegar kemur að því að fylla senda skjal til ríkisins þá bara "Fylltu út þetta .docx skjál og sendu til baka á okkur og ef það renderast ekki rétt á tölvunni þinni keyptu þér Windows 11 og Office lúser"
AMDip boii
Jarðeldsneytis- og koníaklaust Ísland 2030
Jarðeldsneytis- og koníaklaust Ísland 2030
Re: Að leigja okkar eigin innviði...
Nú er ég enginn sérfræðingur, en í greininni er talað um lokun á tölvupóstþjóni:
Það hlýtur að vera hægt að leysa tölvupóstmálin með öðrum hætti en Microsoft (Outlook). En varðandi stýrikerfið þá er það örugglega meiriháttar mál.
Síðasta febrúar lokaði Microsoft á tölvupóstreikning alþjóðlegs saksóknara á vegum stríðsglæpadómstólsins vegna þess að bandarísk stjórnvöld sögðu þeim að gera það. Sú stund olli titring um alla Evrópu.
Það hlýtur að vera hægt að leysa tölvupóstmálin með öðrum hætti en Microsoft (Outlook). En varðandi stýrikerfið þá er það örugglega meiriháttar mál.
Síðast breytt af jericho á Mið 23. Júl 2025 10:43, breytt samtals 1 sinni.
Ryzen 7 7800X3D | DH-15 | Radeon RX 9700 XT | MSI MAG B650 Tomahawk | Samsung Evo 990 2TB | G.Skill Ripjaws S5 2x16GB | Corsair RM850x | Fractal Meshify C | Asus ROG Swift PG279Q
-
- Kóngur
- Póstar: 8335
- Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
- Reputation: 1330
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Að leigja okkar eigin innviði...
Mér finnst þetta söluræða fyrir einhverja pólitíska punkta sem höfða lítið til mín.
Jú, ég væri til í að nota eitthvað annað en M365 en það er ekkert sem er sambærilegt, og ef það er til eitthvað sambærilegt þá er ekki til þekking til að reka það almennilega.
Ríkið á ekkert alltaf að vera leiðandi í nýsköpun eða vera sá aðili sem er að disrupta markaðinn.
Í þessum efnum þá á ríkið bara að elta markaðinn en ekki finna upp hjólið.
Þegar ég var hjá Reykjavíkurbrog vorum við gagnrýnd endalaust fyrir að vera þróa vefinn og vefþjónustur (draga úr skjalaskilum) og það dróg svakalega úr móralnum að vera endlaust að fá þessa gagnrýni + endalausar ákúrur og fyrirspurnir frá flokki fólksins. Man eftir að hafa skrifað 40+ bls. svar við fyrirspurn Kolbrúnar Baldurs sem örugglega var aldrei lesið.
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2021 ... utgjoldin/

- spjallið.is
- Póstar: 446
- Skráði sig: Fim 30. Nóv 2023 12:01
- Reputation: 151
- Staða: Ótengdur
Re: Að leigja okkar eigin innviði...
Síðan er spurning hvað er satt og rétt í þessu.
https://www.politico.eu/article/microso ... on-google/

Microsoft did not stop or suspend its services to the International Criminal Court, the company’s President Brad Smith said, following reporting that it canceled the email address of the court’s chief prosecutor targeted by American sanctions.
-
- Tölvutryllir
- Póstar: 679
- Skráði sig: Fös 10. Jan 2003 09:59
- Reputation: 93
- Staðsetning: 107
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Að leigja okkar eigin innviði...
Hjaltiatla skrifaði:Ekkert að því að spurja sig gagrýnna spurninga og skoða möguleikana okkar.
^^- pretty much sums it up.
Hið besta mál að skoða stöðuna af og til, og hvað er í boði.
Er þetta ekki bara grein sem samtökin eru að nota til að ná smá athygli og "búa til umræðui" ?
Allsskonar útum allt, rosalega fluffy og ekki augljóst að sjá hvert pointið í greininni er, og fullyrðingar sem standast ekki skoðun.
Samtökin eru líka með mynd frá Pause-AI mótmælum á síðunni sinni - sem bendir til þess að samtökin séu fylgjandi því að stöðva þróun AI og banna notkun tóla eins og ChatGPT og sambærilegt hérlendis.
Erum við ekki öll fylgjandi því að stjórnvöld myndu keyra í gegn lög sem myndu loka á ChatGPT, copilot og annað fyrir okkur meðan fundið er út úr öllum mögulegum ethical sjónarmiðum?
Mkay.
-
- Besserwisser
- Póstar: 3259
- Skráði sig: Mið 07. Okt 2009 20:54
- Reputation: 594
- Staðsetning: ::1
- Staða: Ótengdur
Re: Að leigja okkar eigin innviði...
natti skrifaði:Hjaltiatla skrifaði:Ekkert að því að spurja sig gagrýnna spurninga og skoða möguleikana okkar.
Er þetta ekki bara grein sem samtökin eru að nota til að ná smá athygli og "búa til umræðui" ?
Allsskonar útum allt, rosalega fluffy og ekki augljóst að sjá hvert pointið í greininni er, og fullyrðingar sem standast ekki skoðun.
Líklega, en það væri betra ef fullyrðingar standist rök sammála því.
Vonandi skapar þetta einhverja umræðu því það hafa oftar en ekki komið upp alls konar álitamál á seinustu árum t.d hvernig Umbra er að reka M365 Tenanta , Stafrænt Ísland er í AWS og þau nota Xroad Strauminn sem á að vera þeirra hryggjastykki og gleymum ekki Oracle og öllum helstu hugbúnaðarbáknum sem þarf að reka. Mig grunar að það sé engin heildar yfirsýn og einhver skýr markmið hvert við erum að stefna því allir virðast vera soldið í sínu horni að sinna sínu.
Just do IT
√
√
-
- Kóngur
- Póstar: 8335
- Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
- Reputation: 1330
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Að leigja okkar eigin innviði...
Hjaltiatla skrifaði:natti skrifaði:Hjaltiatla skrifaði:Ekkert að því að spurja sig gagrýnna spurninga og skoða möguleikana okkar.
Er þetta ekki bara grein sem samtökin eru að nota til að ná smá athygli og "búa til umræðui" ?
Allsskonar útum allt, rosalega fluffy og ekki augljóst að sjá hvert pointið í greininni er, og fullyrðingar sem standast ekki skoðun.
Líklega, en það væri betra ef fullyrðingar standist rök sammála því.
Vonandi skapar þetta einhverja umræðu því það hafa oftar en ekki komið upp alls konar álitamál á seinustu árum t.d hvernig Umbra er að reka M365 Tenanta , Stafrænt Ísland er í AWS og þau nota Xroad Strauminn sem á að vera þeirra hryggjastykki og gleymum ekki Oracle og öllum helstu hugbúnaðarbáknum sem þarf að reka. Mig grunar að það sé engin heildar yfirsýn og einhver skýr markmið hvert við erum að stefna því allir virðast vera soldið í sínu horni að sinna sínu.
Held að þessi tenantar hjá ríkinu séu að spara ýmiskonar og endalaus umræða um að sameina meira til að hagræða meira.
Skil ekki AWS pælingu island.is en "X-road/straumurinn" er basic API hugmyndafræði sem á að "enabla" einkageirann í að vinna með opinber gögn og forrita lausnir sem vinna með þau. Ég bara skil ekki af hverju það er ekki sett sem ófrávíkjanleg regla hjá hinu opinbera að nota API líkt og Amazon gerði á sínum tíma - https://nordicapis.com/the-bezos-api-ma ... alization/
Oracle kerfi ríkisins, orri.is (OeBS) er mjög gamaldags kerfi en er miklu miklu miklu betra en önnur kerfi sem maður hefur kynnst t.d. illa upp sett Dynamics AX, Unit4 Agresso, SAP ofl.
Það var þannig hjá RVK á sínum tíma að rafrænir reikningar voru vistaðir sem PDF til að hægt væri að senda þá af stað í samþykktarferlið... hreyfingalistar og skýrslur þar voru skelfilegar í samanburði við Orrann.
En sammála, það má fara huga að því hvað skuli taka við, Orrinn er ekki framtíðin.
Hef miklu meiri trú á FJS (þrátt fyrir braindrain þessi misserin) og Island.is en UMBRU en skil líka að það sé þörf fyrir að aðskilja "business rekstur kerfa - vörustýringu" og svo "tæknilegan rekstur".
Re: Að leigja okkar eigin innviði...
appel skrifaði:Svona "heróp" koma fram á yfirborðið reglulega, að fara yfir í opinn hugbúnað, en ekkert breytist, því það er ómögulegt.
Opinn hugbúnaður er svo langt á eftir að það er ekki fyndið, og margar ástæður fyrir því.
Jafnvel Kína og Rússland geta ekki dömpað Microsoft þrátt fyrir mikinn vilja. Það er ekkert stýrikerfi sem virkar í staðinn fyrir Windows. (jafnvel makkar geta verið erfiðir í fyrirtækjaumhverfi)
LibreOffice í stað Office? Fæ smá kjánahroll yfir þessari yfirlýsingu, því einhver hugbúnaður til að skrifa word skjöl skiptir ekki neinu máli, eiginlega doldill 90's hugsunarháttur. Allt tölvukerfið er í skýjinu, þ.e. office 365. Eitthvað libreoffice dæmi leysir ekkert slíkt af hólmi.
Microsoft er með um 230 þúsund starfsmenn, og ótal mörg undirfyrirtæki og verktaka ásamt gríðarlegu fjármagni.
Svo ertu með eitthvað dæmi einsog opinn hugbúnað sem er sinnt svona sisona af örfáum sem fá ekkert borgað. Vonlaust dæmi.
En hví getur "Evrópa" ekki keppt? Evrópa er ekki eitt land með eina menningu, eitt tungumál, einn gjaldmiðil, einn markað.
Þó ESB eigi að auðvelda allt þá eru allskonar erfiðleikar jafnvel innan ESB ímynda ég mér hvað svona varðar. T.d. myndi Frakkland aldrei vilja að "silicon valley Evrópu" yrði í öðru landi en sínu eigin, sama gildir með önnur evrópulönd, þau vilja öll koma sér upp eigin "silicon valley", var ekki talað um Vatnsmýrina sem "þekkingarþorp" fyrir einhverjum árum síðan. Fyrir vikið ertu með mjög fragmentað tækniumhverfi í Evrópu, ekkert land vill sjá eftir sínu tæknifólki annarsstaðar. En í BNA fara bara allir til Kaliforníu og í kísildalinn þar. Þannig hefur BNA byggt upp yfirburði sína, ásamt fáránlega sterku fjármagnskerfi.
Evrópa mun held ég aldrei geta keppt. Kína gæti gert það, og er í raun að gera á einhverjum vígstöðvum. En hvað Microsoft varðar þá er held ég ómögulegt að skipta því út.
Evrópa er ekki eitt land, ein menning, eitt tungumál, einn gjaldmiðil, einn markaður blabla. En samt eru hlutir eins og Airbus til? Sem er bókstaflega fyrirtæki þar sem framleiðendur frá öllum þessum löndum sameinuðust í eitt og er í dag fremsti þotuframleiðandi í heimi. Og er framleiðsla í gangi í mörgum Evrópulöndum í einu í dag.
Hvaða máli skiptir í BNA að allir tala sama tungumálið, eru með gjaldmiðill eða markað. Ef þau fara öll á sama stað sem er silicon valley? sem btw, margir einstaklingar og fyrirtæki jafnvel frá evrópu flytja sig til.
Ef rök þín um afhverju USA gengur svona vel, en ekki evrópa, ætti þá ekki kína að koma núna og rústa BNA þegar kemur að hugbúnaði?
Það er ekki hægt að skipta út MS þangað til það er hægt. Fyrsta skrefið værið að taka smá pening af þessum endalaustum milljörðum sem er dælt til MS og setja þau í önnur verkefni.
Og svo það sé á hreinu, þá eru fyrirtæki í Evrópu sem framleiða opin hugbúnað með mörg hundruð/þúsund starfsmanna. Þetta er ekki allt gert af fólki sem fá ekkert borgað. Það er bara algjör vitleysa í þér.
-
- Vaktari
- Póstar: 2109
- Skráði sig: Fim 24. Jún 2010 01:58
- Reputation: 178
- Staðsetning: Heima
- Staða: Ótengdur
Re: Að leigja okkar eigin innviði...
Það ætti náttúrulega að vera miklu meiri umræða um að draga innviðina okkar í land aftur. Á meðan ég skil fyllilega sportið, skilvirknina og hagkvæmnina í að reka o365 kerfi hvar og hvenær sem kostur er, þá er ég bara ekkert allt of hress með að kerfin okkar virðast að mestu leiti vera annaðhvort hýst erlendis eða vera háð að ákveðið handaband ákveðins erlends kerfis takist upp á að öll fyrirtæki á Íslandi sem styðjast við o365 fái að fúnkera þann daginn.
Sem betur fer er allur vélbúnaður að verða skilvirkari og skilvirkari með hverjum eins og hálfum áratugnum, og þar með 'léttast' ýmis kerfi í rekstri.
Því ætti þannig séð, ekkert að vera það mikið hlutunum til fyrirstöðu að gerð yrði sú krafa að kerfin væru rekin héðan frá Íslandi, jafnvel þótt væri með samstarfi við þessi erlendu fyrirtæki, sem gætu þá sett upp sjálfstætt gagnaver hérlendis sem gæti fúnkerað skyldi samband rofna, og myndi þá frekar treysta á erlent samband fyrir nauðsynleg erlend sambönd, eins og t.d. kannski backup, tölvupósta og þannig lagað.
Eins ætti alveg að vera inni í dæminu að ríkisútibú ættu að geta 'haldið sambandi' við innri kerfi án auth frá ytra staðfestingarkerfi í 12 mánuði frá því að samband slitnar, að því gefnu að ríkisútibúið hafi verið í föstu samstarfi og áskrift að þeim kerfum. Sá hluti mætti einmitt heyra inn á Íslensk-hýstu kerfin miðuð við síðustu samskipti, en þó ekki gilda endilega út þáverandi leyfi, heldur ætti að gera ráð fyrir að leyfið yrði endurnýjað komi upp eitthvað massíft 'outage' við erlendar höfuðstöðvar fimm mínútur í endurnýjun.
Ég sé í raun ekkert að því að svona worst-case, hálfgert doomsday scenario væri pre-documentað svo væri allavega til á pappír hvað í fokkanum ætti eiginlega að gera öðruvísi en það sem gert er dags-daglega.

Síðast breytt af DJOli á Mið 23. Júl 2025 18:50, breytt samtals 1 sinni.
i7-11700KF|64gb(2x32gb) ddr4|RTX 4060Ti-16gb|1tb Samsung 980 Pro nvme m.2|1tb Samsung 990 Evo nvme m.2|Corsair HX1200
Re: Að leigja okkar eigin innviði...
appel skrifaði:Svona "heróp" koma fram á yfirborðið reglulega, að fara yfir í opinn hugbúnað, en ekkert breytist, því það er ómögulegt.
Opinn hugbúnaður er svo langt á eftir að það er ekki fyndið, og margar ástæður fyrir því.
Jafnvel Kína og Rússland geta ekki dömpað Microsoft þrátt fyrir mikinn vilja. Það er ekkert stýrikerfi sem virkar í staðinn fyrir Windows. (jafnvel makkar geta verið erfiðir í fyrirtækjaumhverfi)
LibreOffice í stað Office? Fæ smá kjánahroll yfir þessari yfirlýsingu, því einhver hugbúnaður til að skrifa word skjöl skiptir ekki neinu máli, eiginlega doldill 90's hugsunarháttur. Allt tölvukerfið er í skýjinu, þ.e. office 365. Eitthvað libreoffice dæmi leysir ekkert slíkt af hólmi.
Microsoft er með um 230 þúsund starfsmenn, og ótal mörg undirfyrirtæki og verktaka ásamt gríðarlegu fjármagni.
Svo ertu með eitthvað dæmi einsog opinn hugbúnað sem er sinnt svona sisona af örfáum sem fá ekkert borgað. Vonlaust dæmi.
En hví getur "Evrópa" ekki keppt? Evrópa er ekki eitt land með eina menningu, eitt tungumál, einn gjaldmiðil, einn markað.
Þó ESB eigi að auðvelda allt þá eru allskonar erfiðleikar jafnvel innan ESB ímynda ég mér hvað svona varðar. T.d. myndi Frakkland aldrei vilja að "silicon valley Evrópu" yrði í öðru landi en sínu eigin, sama gildir með önnur evrópulönd, þau vilja öll koma sér upp eigin "silicon valley", var ekki talað um Vatnsmýrina sem "þekkingarþorp" fyrir einhverjum árum síðan. Fyrir vikið ertu með mjög fragmentað tækniumhverfi í Evrópu, ekkert land vill sjá eftir sínu tæknifólki annarsstaðar. En í BNA fara bara allir til Kaliforníu og í kísildalinn þar. Þannig hefur BNA byggt upp yfirburði sína, ásamt fáránlega sterku fjármagnskerfi.
Evrópa mun held ég aldrei geta keppt. Kína gæti gert það, og er í raun að gera á einhverjum vígstöðvum. En hvað Microsoft varðar þá er held ég ómögulegt að skipta því út.
Microsoft er líka búið að koma sér þægilega fyrir sem "defense contractor" Um allan heim. Held að mest ef ekki öll tölvukerfi hjá öllum hergreinum BNA séu keyrð af MS cloud þjónustu og hugbúnaði. Þeir voru meira segja með sérstaka útgáfu af windows fyrir flotann "windows for warships"
-
- Kóngur
- Póstar: 8335
- Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
- Reputation: 1330
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Að leigja okkar eigin innviði...
DJOli skrifaði:Ég sé í raun ekkert að því að svona worst-case, hálfgert doomsday scenario væri pre-documentað svo væri allavega til á pappír hvað í fokkanum ætti eiginlega að gera öðruvísi en það sem gert er dags-daglega.
Í dómsdags scenario og í alvöru neyðarviðbragði þá eru tölvukerfi og almenn UT virkni ekki á topp 10. Það eru fjarskiptaleiðir (Tetra) og orka, matur ... en mikilvægast af öllu er líklega kalda vatnið.
Jú endureisnaráætlanir eru virkjaðar til að byggja upp UT þjónustu og áætlanir um samfelldan rekstur eru virkjaðar en þær eiga að tryggja sem mesta business virkni m.t.t. hvort og hvaða UT er up and running.
Held að svona sé mikið til aðgengilegt öllum á vef almannavarna.
Umfremd í "capacity" og "redundancy" í gegnum allar UT þjónustur þarf að vera samræmt. Veit sð LSH gerir/gerði þetta vel.
Tryggja net t.d. með eigin búnaði og leigu á dark fiber en ekki treysta á ISP.
Hafa speglaða vélasali milli location og max álag 30-40% á hvorn svo einn ráði við krísuástand.
ofl. ofl.
Svakalegustu áætlanirnar sem maður hefur heyrt af snúast um matvælin, vöruhúsin o.þ.h. ef aðföng til landsins mundu hætta að berast. Trúi þeim varla.