Umferðin í Reykjavík

Allt utan efnis
Skjámynd

Henjo
FanBoy
Póstar: 706
Skráði sig: Mán 15. Júl 2013 03:44
Reputation: 256
Staða: Ótengdur

Re: Umferðin í Reykjavík

Pósturaf Henjo » Mið 05. Jún 2024 03:18

Yeap, gatnakerfið þolir alveg umferðina. Það er enginn umferð 90% af tímanum. Vandamalið er að við þurfum öll ap ferðast a sama tíma.

Annars er eg með góðar frettir, eg keyrði Reykjanesbrautina áðan og mer synist þeir vera gera önnur mislæg gatnamót rétt framhja álverinu. Framtíðin er björt.

Skjámynd

Höfundur
rapport
Kóngur
Póstar: 7670
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1205
Staða: Ótengdur

Re: Umferðin í Reykjavík

Pósturaf rapport » Mið 05. Jún 2024 10:42

appel skrifaði:Eitt sem ég hef tekið eftir undanfarið og tel vera nokkuð stóra breytingu í umferðarmynstri í Rvk.
Á leið heim úr vinnu þá keyri ég í austur-átt á Miklubraut. En finnst hinsvegar vera meiri umferð í vestur-átt, niður af Ártúnsbrekku. Maður sá þetta aldrei áður, alltaf var umferðin í austur-átt stífluð síðdegis.

Svo er það að yfirvöld, ríki og borg, og bæjir, eru stærsti sökudólgurinn í hvernig umferð dreifist, enda eru stærstu vinnustaðirnir. Það er bæði staðsetning þessara vinnustaða sem veldur álagi og einnig samstillt tímasetning á opnunartíma. Bara með því að dreifa þessu, opnunartíma um hálftima eða klukkutíma, og dreifa starfssemi betur um borg og bæji, þá þarf ekki að fara í billjóna fjárfestingar á gatnainnviðum.

Vá! Sammála.

Dagvinnutími er milli 8 og 18.

Það væri mikill plús ef sumar stofnanir væru opnar 10-18 svo að vinnandi fólk ætti séns að fá þjónustu án þess að taka sér frí frá vinnu.

Skjámynd

jericho
Geek
Póstar: 827
Skráði sig: Mið 21. Jan 2004 14:23
Reputation: 153
Staða: Ótengdur

Re: Umferðin í Reykjavík

Pósturaf jericho » Fös 23. Ágú 2024 11:47

Til hamingju höfuðborgarsvæðið með uppfærðan samgöngusáttmála.

Reyndar finnst mér of miklu púðri eytt í einkabílinn, en það er bara sama sagan og síðan 1960. Það veit hver heilvita maður að við getum ekki haldið áfram á sömu braut og síðustu áratugi. Breyttar ferðavenjur er það eina sem leysir umferðarvandann og þar er áhrifaríkasta lausnin stórefling almenningssamgangna (ha? Sagði einhver Borgarlínan?), en ekki mislæg gatnamót - umferðarlíkön styðja þetta.

Góðir hjólastígar eru líka áhrifaríkir, en það sem gleymist oft í umræðunni er sú fjarlægð sem fólk þarf að fara milli heimilis og vinnu. Það er nefninlega ástæða fyrir vaxtamörkum sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu (N.B. ekki bara Reykjavíkurborg, heldur allir hinir xD-bæirnir í kring líka) og af hverju það er verið að reyna að byggja inn á við en ekki sprawl'a út um allar trissur. Því afleiðing sprawls er að fjarlægð milli heimila og vinnu lengist og þá er líklegra að fólk velji einkabílinn. Reykjavíkurflugvöllur er t.d. á besta stað í Reykjavík og hægt væri að nýta svæðið til að byggja stærðarinnar hverfi, sem myndi stytta meðalferðatíma fólks til vinnu. Samfélagslega séð, þá er svo mikill no-brainer að flytja þennan flugvöll upp í Keflavík og af hverju ætli sá valkostur hafi ekki verið skoðaður þegar Rögnunefndin var við störf? Líklegast því sá valkostur kæmi of vel út - en það er mín kenning (/tekur niður álhattinn).

Allavega, það er bjart framundan í samgöngumálum, sérstaklega með aðkomu ríkisins að rekstri almeninngssamgangna og stóreflingu þeirra.
Síðast breytt af jericho á Fös 23. Ágú 2024 12:24, breytt samtals 3 sinnum.

5600x | DH-15 | RTX 3070 FE | MSI B550m Pro-VDH | Samsung Evo 970 1TB | Corsair LPX 2x8GB | Seasonic Prime Fanless 600W | Fractal Meshify C | Asus ROG Swift PG279Q

Skjámynd

brain
</Snillingur>
Póstar: 1069
Skráði sig: Lau 19. Apr 2014 10:11
Reputation: 150
Staða: Tengdur

Re: Umferðin í Reykjavík

Pósturaf brain » Fös 23. Ágú 2024 12:47

jericho skrifaði:Til hamingju höfuðborgarsvæðið með uppfærðan samgöngusáttmála.

Reyndar finnst mér of miklu púðri eytt í einkabílinn, en það er bara sama sagan og síðan 1960. Það veit hver heilvita maður að við getum ekki haldið áfram á sömu braut og síðustu áratugi. Breyttar ferðavenjur er það eina sem leysir umferðarvandann og þar er áhrifaríkasta lausnin stórefling almenningssamgangna (ha? Sagði einhver Borgarlínan?), en ekki mislæg gatnamót - umferðarlíkön styðja þetta.

Góðir hjólastígar eru líka áhrifaríkir, en það sem gleymist oft í umræðunni er sú fjarlægð sem fólk þarf að fara milli heimilis og vinnu. Það er nefninlega ástæða fyrir vaxtamörkum sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu (N.B. ekki bara Reykjavíkurborg, heldur allir hinir xD-bæirnir í kring líka) og af hverju það er verið að reyna að byggja inn á við en ekki sprawl'a út um allar trissur. Því afleiðing sprawls er að fjarlægð milli heimila og vinnu lengist og þá er líklegra að fólk velji einkabílinn. Reykjavíkurflugvöllur er t.d. á besta stað í Reykjavík og hægt væri að nýta svæðið til að byggja stærðarinnar hverfi, sem myndi stytta meðalferðatíma fólks til vinnu. Samfélagslega séð, þá er svo mikill no-brainer að flytja þennan flugvöll upp í Keflavík og af hverju ætli sá valkostur hafi ekki verið skoðaður þegar Rögnunefndin var við störf? Líklegast því sá valkostur kæmi of vel út - en það er mín kenning (/tekur niður álhattinn).

Allavega, það er bjart framundan í samgöngumálum, sérstaklega með aðkomu ríkisins að rekstri almeninngssamgangna og stóreflingu þeirra.

Er Jerico nickname: Dagur B ? :p Alveg einsog talað úr hans munni.

littli-Jake
Skrúfari
Póstar: 2408
Skráði sig: Sun 06. Sep 2009 18:19
Reputation: 154
Staðsetning: Árbærinn
Staða: Ótengdur

Re: Umferðin í Reykjavík

Pósturaf littli-Jake » Fös 23. Ágú 2024 12:57

Ohhhh

Í excel skjali er þetta sjálfsagt voða einfalt. En einhvernvegin gleymist örlítill þáttur í þessu öllu. Ísland

Ég var í London fyrir örfáum dögunum síðan. Þar til dæmis tók ég neðanjarðarlestina á háanna tíma. Það er ömurlegt. Það er þröngt. Það er hávært. Það er vond lykt. Það er troðningur og engin sæti.
Mér finnst þetta samt snild. Þú ert að ferja rosalegt magn af fólki rosalega hratt. Og ef þú ert svo óheppinn að missa af lestinni er biðin svona 3 mín í næstu.
Á Íslandi er ekki verið að ferja rosalega mikið af fólki. Og það er svo sannarlega ekki að fara að vera 3 mín bið í næstu ferð.

Í mörgum löndum er mikið af beinum, breiðum og sléttum hjólreiðastígum. Það er snild. Það er voða þægilegt að hjóla á beinum, breiðum, sléttum stíg. Þú kemst hratt og örugglega yfir og þarft lítið sem ekkert að hafa áhyggjur af því að það verði keyrt yfir þig. Sem er kostur.
En alveg sama hversu góður stígurinn er þá er leiðinlegt að hjóla í leiðinlegu veðri. Það er líka leiðinlegt að hjóla upp brekkur. Hvar skildum við finna bæði.

Á leiðinni heim úr vinnu lendi ég í tveimur leiðinlegum hnútum. Annarsvegar í beigjunni hjá Sprengisandi upp í Ártúnsbrekku. Þann hnút mætti leysa með því að loka fráreininni talsvert ofarlega þannig að 10-15 prósent af þeim sem eru að fara þessa leið gætu ekki verið fávitar, fylgt röðinni fram yfir ljós og troðið sér svo inní.

Hitt er rétt við Smáralind þar sem aðrein sameinast og fólk kemur inná á allt of litlum hraða. Það skrifast á að þetta er í aflíðandi beigju og fólk sér ekki fram á vegginn og vill þessvegna komast sem fyrst inná, iðulega allt of snemma. Með því að lengja þessa aðrein, helst alla leið í fráreinina upp í Breiðholti væri þetta vandamál úr sögunni.

Við erum örfáar hræður. Það er bara ekkert mál að ganga þannig frá hlutum að einkabíls umferð gangi vandræðalaust.

i5 3570K - Gigabyte z77x - GTX 1070 OC - Crucial M4 128 GB - 16GB DDR3 - Toughpower XT 675W - BenQ GW2450HM - Antec-P180

Skjámynd

rostungurinn77
Ofur-Nörd
Póstar: 254
Skráði sig: Fim 30. Nóv 2023 12:01
Reputation: 91
Staða: Ótengdur

Re: Umferðin í Reykjavík

Pósturaf rostungurinn77 » Fös 23. Ágú 2024 13:05

littli-Jake skrifaði:

Í mörgum löndum er mikið af beinum, breiðum og sléttum hjólreiðastígum. Það er snild. Það er voða þægilegt að hjóla á beinum, breiðum, sléttum stíg. Þú kemst hratt og örugglega yfir og þarft lítið sem ekkert að hafa áhyggjur af því að það verði keyrt yfir þig. Sem er kostur.
En alveg sama hversu góður stígurinn er þá er leiðinlegt að hjóla í leiðinlegu veðri. Það er líka leiðinlegt að hjóla upp brekkur. Hvar skildum við finna bæði.

Rafhjól leysa þetta vandamál fyrir fólk sem vill ekki svitna á leiðinni í vinnuna.

littli-Jake
Skrúfari
Póstar: 2408
Skráði sig: Sun 06. Sep 2009 18:19
Reputation: 154
Staðsetning: Árbærinn
Staða: Ótengdur

Re: Umferðin í Reykjavík

Pósturaf littli-Jake » Fös 23. Ágú 2024 13:11

Vissulega. En þau bjarga þér ekki frá rigningu og vind.

i5 3570K - Gigabyte z77x - GTX 1070 OC - Crucial M4 128 GB - 16GB DDR3 - Toughpower XT 675W - BenQ GW2450HM - Antec-P180

Skjámynd

rostungurinn77
Ofur-Nörd
Póstar: 254
Skráði sig: Fim 30. Nóv 2023 12:01
Reputation: 91
Staða: Ótengdur

Re: Umferðin í Reykjavík

Pósturaf rostungurinn77 » Fös 23. Ágú 2024 13:12

jericho skrifaði: Samfélagslega séð, þá er svo mikill no-brainer að flytja þennan flugvöll upp í Keflavík og af hverju ætli sá valkostur hafi ekki verið skoðaður þegar Rögnunefndin var við störf? Líklegast því sá valkostur kæmi of vel út - en það er mín kenning (/tekur niður álhattinn).

Ef samfélagið í þessu tilfelli eru bara þeir sem búa á höfuðborgarsvæðinu þá er þetta no-brainer.

Ef þú tekur alla þjóðina þá verður þetta minna augljóst. Reykjavík er jú höfuðborg Íslands.

Fulltrúar ríkisins eru líka fulltrúar landsbyggðarinnar.

Skjámynd

rostungurinn77
Ofur-Nörd
Póstar: 254
Skráði sig: Fim 30. Nóv 2023 12:01
Reputation: 91
Staða: Ótengdur

Re: Umferðin í Reykjavík

Pósturaf rostungurinn77 » Fös 23. Ágú 2024 13:16

littli-Jake skrifaði:Vissulega. En þau bjarga þér ekki frá rigningu og vind.

Þeir sem hæst tala láta stundum eins og hér séu 32 m/s og rigning 24 tíma sólarhringsins, 365 daga ársins.

Tíðni skítaveðurs er stórlega ofmetin og erfiðleikastigið við að hjóla í vindi á rafhjóli er það líka.

Það er ekki flókið að henda í vatnsheldan jakka og buxur. Það er einföld lausn fyrir þá sem vilja hafa það val að hjóla.

Eða fólk getur tekið strætó eða farið á bílnum þessa daga sem veðrið er verst. Sem eru mun færri dagar en margir vilja láta.

Skjámynd

jericho
Geek
Póstar: 827
Skráði sig: Mið 21. Jan 2004 14:23
Reputation: 153
Staða: Ótengdur

Re: Umferðin í Reykjavík

Pósturaf jericho » Fös 23. Ágú 2024 13:31

brain skrifaði:
jericho skrifaði:Er Jerico nickname: Dagur B ? :p Alveg einsog talað úr hans munni.

Málefnalegt, but you do you.

5600x | DH-15 | RTX 3070 FE | MSI B550m Pro-VDH | Samsung Evo 970 1TB | Corsair LPX 2x8GB | Seasonic Prime Fanless 600W | Fractal Meshify C | Asus ROG Swift PG279Q

Skjámynd

Höfundur
rapport
Kóngur
Póstar: 7670
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1205
Staða: Ótengdur

Re: Umferðin í Reykjavík

Pósturaf rapport » Fös 23. Ágú 2024 16:55

littli-Jake skrifaði:
Á leiðinni heim úr vinnu lendi ég í tveimur leiðinlegum hnútum. Annarsvegar í beigjunni hjá Sprengisandi upp í Ártúnsbrekku. Þann hnút mætti leysa með því að loka fráreininni talsvert ofarlega þannig að 10-15 prósent af þeim sem eru að fara þessa leið gætu ekki verið fávitar, fylgt röðinni fram yfir ljós og troðið sér svo inní.

Hitt er rétt við Smáralind þar sem aðrein sameinast og fólk kemur inná á allt of litlum hraða. Það skrifast á að þetta er í aflíðandi beigju og fólk sér ekki fram á vegginn og vill þessvegna komast sem fyrst inná, iðulega allt of snemma. Með því að lengja þessa aðrein, helst alla leið í fráreinina upp í Breiðholti væri þetta vandamál úr sögunni.

Ég vil snarfækka öllum þessum vinstri beygjum/þverunum inn á stofnbrautir s.s. Miklubraut, Kringlumýrarbraut, Sæbraut, Reykjanesbraut t.d. þessari, hafa bara hægribeygju og fólk þarf þá að fara til hægri og snúa við í næstu lykkju/hringtorgui eða fer aðra leið.... það er í bíl og að vera í bíl er þægilegt, bíllinn þarf ekki alltaf að fara stystu leið.

Og plís plís plís... getur borgin farið að nota snjallljós þar sem almennur biðtími er lágmarkaður með því að hafa grænt ljós logandi í lengri tíma þegar enginn er að fara yfir... og að leyfa bílum sem eru fullir af fólki að nota strætóakreinina... svoleiðis yrði til að bæta nýtingu einkabílsins (já, það má nota einkabílana betur).

Skjámynd

jericho
Geek
Póstar: 827
Skráði sig: Mið 21. Jan 2004 14:23
Reputation: 153
Staða: Ótengdur

Re: Umferðin í Reykjavík

Pósturaf jericho » Fös 23. Ágú 2024 20:38

rostungurinn77 skrifaði:Ef samfélagið í þessu tilfelli eru bara þeir sem búa á höfuðborgarsvæðinu þá er þetta no-brainer.

Ef þú tekur alla þjóðina þá verður þetta minna augljóst. Reykjavík er jú höfuðborg Íslands.

Fulltrúar ríkisins eru líka fulltrúar landsbyggðarinnar.

Það er engin regla að það skuli vera flugvöllur í miðborg hverrar höfuðborgar. Taktu Osló sem dæmi. Þar var innanlandsflugvöllur í úthverfi borgarinnar. Það þótti ekki góð nýting á landsvæði, sérstaklega þar sem Gardermoen var aðeins 45 mínútur frá miðborginni. Svo innanlandsflugvöllurinn var fluttur til Gardermoen - og Osló er höfuðborg líka.

5600x | DH-15 | RTX 3070 FE | MSI B550m Pro-VDH | Samsung Evo 970 1TB | Corsair LPX 2x8GB | Seasonic Prime Fanless 600W | Fractal Meshify C | Asus ROG Swift PG279Q

Skjámynd

rostungurinn77
Ofur-Nörd
Póstar: 254
Skráði sig: Fim 30. Nóv 2023 12:01
Reputation: 91
Staða: Ótengdur

Re: Umferðin í Reykjavík

Pósturaf rostungurinn77 » Fös 23. Ágú 2024 21:42

jericho skrifaði:
rostungurinn77 skrifaði:Ef samfélagið í þessu tilfelli eru bara þeir sem búa á höfuðborgarsvæðinu þá er þetta no-brainer.

Ef þú tekur alla þjóðina þá verður þetta minna augljóst. Reykjavík er jú höfuðborg Íslands.

Fulltrúar ríkisins eru líka fulltrúar landsbyggðarinnar.

Það er engin regla að það skuli vera flugvöllur í miðborg hverrar höfuðborgar. Taktu Osló sem dæmi. Þar var innanlandsflugvöllur í úthverfi borgarinnar. Það þótti ekki góð nýting á landsvæði, sérstaklega þar sem Gardermoen var aðeins 45 mínútur frá miðborginni. Svo innanlandsflugvöllurinn var fluttur til Gardermoen - og Osló er höfuðborg líka.

Þetta dæmi væri sambærilegt ef Osló væri eina borgin í Noregi.

Ísland er borgríki. Noregur er það ekki

Ákveðinn hópur og eflaust meirihluti landsbyggðafólks vill hafa flugvöllinn þar sem hann er. Sérstaklega vegna nálægðar við spítalann. Þegar ríkið kemur að málum þá þessi hópur sinn fulltrúa.

Ég persónulega myndi leggja flugvöllinn niður en ég skil samt afstöðu þeirra úti á landi sem vilja ekki að hann fari.

littli-Jake
Skrúfari
Póstar: 2408
Skráði sig: Sun 06. Sep 2009 18:19
Reputation: 154
Staðsetning: Árbærinn
Staða: Ótengdur

Re: Umferðin í Reykjavík

Pósturaf littli-Jake » Lau 24. Ágú 2024 16:21

rapport skrifaði:
littli-Jake skrifaði:
Á leiðinni heim úr vinnu lendi ég í tveimur leiðinlegum hnútum. Annarsvegar í beigjunni hjá Sprengisandi upp í Ártúnsbrekku. Þann hnút mætti leysa með því að loka fráreininni talsvert ofarlega þannig að 10-15 prósent af þeim sem eru að fara þessa leið gætu ekki verið fávitar, fylgt röðinni fram yfir ljós og troðið sér svo inní.

Hitt er rétt við Smáralind þar sem aðrein sameinast og fólk kemur inná á allt of litlum hraða. Það skrifast á að þetta er í aflíðandi beigju og fólk sér ekki fram á vegginn og vill þessvegna komast sem fyrst inná, iðulega allt of snemma. Með því að lengja þessa aðrein, helst alla leið í fráreinina upp í Breiðholti væri þetta vandamál úr sögunni.

Ég vil snarfækka öllum þessum vinstri beygjum/þverunum inn á stofnbrautir s.s. Miklubraut, Kringlumýrarbraut, Sæbraut, Reykjanesbraut t.d. þessari, hafa bara hægribeygju og fólk þarf þá að fara til hægri og snúa við í næstu lykkju/hringtorgui eða fer aðra leið.... það er í bíl og að vera í bíl er þægilegt, bíllinn þarf ekki alltaf að fara stystu leið.

Og plís plís plís... getur borgin farið að nota snjallljós þar sem almennur biðtími er lágmarkaður með því að hafa grænt ljós logandi í lengri tíma þegar enginn er að fara yfir... og að leyfa bílum sem eru fullir af fólki að nota strætóakreinina... svoleiðis yrði til að bæta nýtingu einkabílsins (já, það má nota einkabílana betur).

Djöfull er ég sammála þér.

i5 3570K - Gigabyte z77x - GTX 1070 OC - Crucial M4 128 GB - 16GB DDR3 - Toughpower XT 675W - BenQ GW2450HM - Antec-P180

mikkimás
Gúrú
Póstar: 597
Skráði sig: Mán 03. Feb 2014 18:02
Reputation: 116
Staða: Ótengdur

Re: Umferðin í Reykjavík

Pósturaf mikkimás » Lau 24. Ágú 2024 19:20

rapport skrifaði:Ég vil snarfækka öllum þessum vinstri beygjum/þverunum inn á stofnbrautir s.s. Miklubraut, Kringlumýrarbraut, Sæbraut, Reykjanesbraut t.d. þessari, hafa bara hægribeygju og fólk þarf þá að fara til hægri og snúa við í næstu lykkju/hringtorgui eða fer aðra leið.... það er í bíl og að vera í bíl er þægilegt, bíllinn þarf ekki alltaf að fara stystu leið.

Mig langar oft að öskra þegar ég sé fólk bíða heillengi eftir því að geta gönnað í vinstri beygju út frá Elkó/Krónunni í Skeifunni þegar hægra megin við það er hringtorg í bókstaflega 20 metra fjarlægð.

Ég meina, kom fokking on!

agnarkb
Tölvutryllir
Póstar: 663
Skráði sig: Fös 03. Okt 2008 20:36
Reputation: 118
Staða: Ótengdur

Re: Umferðin í Reykjavík

Pósturaf agnarkb » Lau 24. Ágú 2024 19:43

mikkimás skrifaði:

Það er búið að banna vinstri beygju út úr þessu bílastæði en fólk fer nú ekkert eftir því samt.

Annars þá þarf ég að fara í Skeifuna 2-3 í viku og þetta hefur alltaf verið hörmung að keyra þarna í gegn en ekkert í líkingu við hvernig það hefur verið í ár eftir að þeir lokuðu Grensás til suðurs milli Suðurlandsbraut og Ármúla. Átti að opna aftur í lok mai, en þar sem þetta er nú framkvæmd á Íslandi þá hefur því verið frestað þrisvar sinnum, þykjast ætla að opna aftur núna í lok ágúst.

Leikjavél | ROG Strix X570-E | 5800x3D | LF II 240| RTX 3090 | 32GB Flare X 3200Mhz | RM850x | Fractal Design North
Server | ASRock H610M-ITX/ac | i5 12400 | Dark Rock TF2 | 32GB | 14 TB | Unraid Basic

Skjámynd

SolidFeather
Vaktari
Póstar: 2730
Skráði sig: Mán 15. Des 2003 21:11
Reputation: 159
Staða: Ótengdur

Re: Umferðin í Reykjavík

Pósturaf SolidFeather » Sun 25. Ágú 2024 01:25

Skjámynd

Höfundur
rapport
Kóngur
Póstar: 7670
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1205
Staða: Ótengdur

Re: Umferðin í Reykjavík

Pósturaf rapport » Sun 25. Ágú 2024 09:19

SolidFeather skrifaði:

Fyrir utan þetta náttúrulega, það hafa aldrei fleiri aldraðir verið á bíl í umferðinni.

Það mætti alveg skoða að innleiða Uber hérna svo að leigubílaþjónustan verði ódýrari og aðgengilegri fyrir aldraða EN líka öruggari fyrir alla. Uber er með meiri rekjanleika hver fór í ferð með hvaða bílstjóra en nokkurntíman gamaldags leigubílastöðvar.

Mynd
Síðast breytt af rapport á Sun 25. Ágú 2024 09:21, breytt samtals 1 sinni.

Skjámynd

jericho
Geek
Póstar: 827
Skráði sig: Mið 21. Jan 2004 14:23
Reputation: 153
Staða: Ótengdur

Re: Umferðin í Reykjavík

Pósturaf jericho » Mán 26. Ágú 2024 15:27

https://www.visir.is/g/20242612474d/8-a ... ferdahnuta

"Breyttar ferðavenjur eru einfaldlega langódýrasta og skynsamlegasta leiðin til að takast á við fjölþætt samfélags vandamál eins og umferðarteppur, mengun, olíubrennslu og lýðsheilsu."

5600x | DH-15 | RTX 3070 FE | MSI B550m Pro-VDH | Samsung Evo 970 1TB | Corsair LPX 2x8GB | Seasonic Prime Fanless 600W | Fractal Meshify C | Asus ROG Swift PG279Q

Skjámynd

Höfundur
rapport
Kóngur
Póstar: 7670
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1205
Staða: Ótengdur

Re: Umferðin í Reykjavík

Pósturaf rapport » Lau 07. Des 2024 10:31

Af hverju er ekki byrjað að nota AI til að bæta flæðið og koma með lausnir á umferðavandanum?

Það væri fróðlegt að sjá hvernig AI sæi fyrir vandamál og lausnir á borgarskipulagi.

Skjámynd

cocacola123
Ofur-Nörd
Póstar: 211
Skráði sig: Þri 29. Sep 2009 20:38
Reputation: 14
Staða: Ótengdur

Re: Umferðin í Reykjavík

Pósturaf cocacola123 » Lau 07. Des 2024 11:27

rapport skrifaði:Af hverju er ekki byrjað að nota AI til að bæta flæðið og koma með lausnir á umferðavandanum?

Það væri fróðlegt að sjá hvernig AI sæi fyrir vandamál og lausnir á borgarskipulagi.

Ég spurði ChatGPT:

Improving the traffic system in Reykjavík, where car dependency is high, requires a multifaceted approach that considers public transportation, urban planning, and sustainable mobility. Here are some potential solutions:

1. Enhanced Public Transportation

• Expand Bus Service: Increase the frequency, reliability, and routes of the Strætó bus system to make it a more viable alternative to driving.
• Bus Rapid Transit (BRT): Create dedicated bus lanes for faster, uninterrupted service, especially during peak hours.
• Electric and Sustainable Buses: Transition to an electric bus fleet to align with Reykjavík’s sustainability goals.
2. Cycling and Walking Infrastructure
3. Encourage Carpooling and Ride-Sharing

etc etc.

Samgöngu kerfið í Reykjavík var byggt fyrir einkabíla og hefur alltaf viðhaldið því.
Vissulega hent inn bærilegu strætókerfi fyrir lúðana sem eiga ekki efni á að reka bíl en það er ekki nóg.
Það þarf að gera strætókerfið sambærilega þægilegt og að eiga einkabíl til þess að fleiri hafi áhuga á að nota það.
Stundvísir strætóar, reglulegri ferðir á háanna tímum, fórna einni akgrein á öllum þriggja akgreina vegum í strætó (á meðan the long awaited borgarlínan er byggð) bara sem dæmi.

Ef ég ætla í strætó kl 08:00 til að fara í vinnuna í dag verð ég að gera ráð fyrir að hann mæti seinn útaf hann er fastur í umferðinni og ég verði minnst þrefalt lengur á leiðinni en á einkabíl (ef ekki lengur ef ég þarf að skipta um strætó á leiðinni). Því verð ég bara að nota bíl.

Sorry rant over. Mig langar ekki að eiga bíl. Mig langar að spila Belatro í strætó eða lest á leiðinni í vinnuna og spara mér helling af peningum.
Síðast breytt af cocacola123 á Lau 07. Des 2024 11:29, breytt samtals 1 sinni.

Drekkist kalt!

Skjámynd

rostungurinn77
Ofur-Nörd
Póstar: 254
Skráði sig: Fim 30. Nóv 2023 12:01
Reputation: 91
Staða: Ótengdur

Re: Umferðin í Reykjavík

Pósturaf rostungurinn77 » Lau 07. Des 2024 11:42

Þó svo að ChatGPT sé gervigreind þá er gervigreind != chatGPT.

Skjámynd

Höfundur
rapport
Kóngur
Póstar: 7670
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1205
Staða: Ótengdur

Re: Umferðin í Reykjavík

Pósturaf rapport » Lau 07. Des 2024 18:17

cocacola123 skrifaði:
rapport skrifaði:Af hverju er ekki byrjað að nota AI til að bæta flæðið og koma með lausnir á umferðavandanum?

Það væri fróðlegt að sjá hvernig AI sæi fyrir vandamál og lausnir á borgarskipulagi.

Ég spurði ChatGPT:

Improving the traffic system in Reykjavík, where car dependency is high, requires a multifaceted approach that considers public transportation, urban planning, and sustainable mobility. Here are some potential solutions:

1. Enhanced Public Transportation

• Expand Bus Service: Increase the frequency, reliability, and routes of the Strætó bus system to make it a more viable alternative to driving.
• Bus Rapid Transit (BRT): Create dedicated bus lanes for faster, uninterrupted service, especially during peak hours.
• Electric and Sustainable Buses: Transition to an electric bus fleet to align with Reykjavík’s sustainability goals.
2. Cycling and Walking Infrastructure
3. Encourage Carpooling and Ride-Sharing

etc etc.

Samgöngu kerfið í Reykjavík var byggt fyrir einkabíla og hefur alltaf viðhaldið því.
Vissulega hent inn bærilegu strætókerfi fyrir lúðana sem eiga ekki efni á að reka bíl en það er ekki nóg.
Það þarf að gera strætókerfið sambærilega þægilegt og að eiga einkabíl til þess að fleiri hafi áhuga á að nota það.
Stundvísir strætóar, reglulegri ferðir á háanna tímum, fórna einni akgrein á öllum þriggja akgreina vegum í strætó (á meðan the long awaited borgarlínan er byggð) bara sem dæmi.

Ef ég ætla í strætó kl 08:00 til að fara í vinnuna í dag verð ég að gera ráð fyrir að hann mæti seinn útaf hann er fastur í umferðinni og ég verði minnst þrefalt lengur á leiðinni en á einkabíl (ef ekki lengur ef ég þarf að skipta um strætó á leiðinni). Því verð ég bara að nota bíl.

Sorry rant over. Mig langar ekki að eiga bíl. Mig langar að spila Belatro í strætó eða lest á leiðinni í vinnuna og spara mér helling af peningum.

Hugmyndin væri að taka þetta á annað kevel en bara texta, sjá hvort að AI ljósastýring gæti aukið flæði, hvort að AI mundi fjölga eða fækka umferðarljósum, hvort að AI mundi sjá hag í að nota sporvagna, neðanjarðarlest o.þ.h.

agnarkb
Tölvutryllir
Póstar: 663
Skráði sig: Fös 03. Okt 2008 20:36
Reputation: 118
Staða: Ótengdur

Re: Umferðin í Reykjavík

Pósturaf agnarkb » Sun 08. Des 2024 00:53

Ekki kannski beint nöldur um umferðina per se en hafa fleirri en ég tekið eftir síðustu misseri aukningu á ökumönnum sem eru að keyra með stór og mikil noise cancelling heyrnartól? Keyrði frá Höfða í Skipholt um daginn og varð var við amk. þrjá einstaklinga með þau á sér í mikilli umferð.

Leikjavél | ROG Strix X570-E | 5800x3D | LF II 240| RTX 3090 | 32GB Flare X 3200Mhz | RM850x | Fractal Design North
Server | ASRock H610M-ITX/ac | i5 12400 | Dark Rock TF2 | 32GB | 14 TB | Unraid Basic

Skjámynd

kizi86
Vaktari
Póstar: 2237
Skráði sig: Lau 26. Sep 2009 18:08
Reputation: 173
Staða: Ótengdur

Re: Umferðin í Reykjavík

Pósturaf kizi86 » Sun 08. Des 2024 20:56

svo lengi sem almenningsamgöngukerfið er rekið af fyrirtæki sem á að vera hagnaðardrifið, þá mun það aldrei standa undir neinu..

ASRock B650E PG-ITX WiFi AMD Ryzen 9 7950X PowerColor "Red Devil" RX 7900 XTX 24GB G.Skill Trident Z5 RGB 32GB (2 x 16GB) DDR5-6000 stýrikerfi: wd black sn850x 2TB WD RED 4TB WD RED 4TB 65" LG B8 OLED TV