Flugi Play seinkar um 6,5 tíma

Allt utan efnis

Höfundur
frjáls
Nýliði
Póstar: 9
Skráði sig: Fös 03. Feb 2023 16:49
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Flugi Play seinkar um 6,5 tíma

Pósturaf frjáls » Mán 01. Apr 2024 20:20

Kæru félagar og gleðilega Páska. Við hjónin lentum í því fyrir nokkru að flugi með Play seinkaði um 6,5 tíma. Við vorum á leið frá Íslandi til Evrópu. Vitið þið hver er réttur okkar? Ég er búinn að fá svar og inneign frá þeim en konan mín virðist algjörlega hunsuð eftir að ég fékk þetta og þeir svara henni ekki. Er ekki rétt skilið að hver farþegi á rétt á 400€ bótum ?



Skjámynd

Snaevar
Nörd
Póstar: 114
Skráði sig: Lau 26. Jún 2021 17:43
Reputation: 10
Staðsetning: Reykjanesbær
Staða: Ótengdur

Re: Flugi Play seinkar um 6,5 tíma

Pósturaf Snaevar » Mán 01. Apr 2024 20:53

Ég er ekki alveg klár á upphæðinni sem á að vera greidd út í svona tilfelli, en flugfélag hefur þó allt að sex vikur til að svara fyrirspurnum eins og þessum.

Ef flugið þitt kemur á áfangastað meira en 3 klst of seint OG seinkunin er af völdum flugfélagsins þá áttu rétt á bótum (upphæð bóta fer eftir lengd flugsins).
Bæturnar eru hinsvegar EKKI greiddar ef seinkunin er af aðstæðum sem flugfélagið hefur ekki stjórn á, það er smá loðið hvað telst sem ,,ekki stjórn á" en dæmi rá Samgöngustofu er t.d. slæmt veður, náttúruhamfarir, tafir vegna ákvarðana flugumferðarstjórnar, verkföll og ófyrirséð öryggisvandamál.

Einnig, ef það er mikil seinkun á fluginu (Samgöngustofa segir 2klst+, þá verður flugfélagið að veita þér ,,þjónustu og stuðning" svo sem máltíð eða hressingu.

Getur skoðað nánar hér: https://island.is/rettindi-flugfarthega


PC
CPU: Intel Core i7 8700K MB: Asus Prime Z370-A GPU: Gigabyte Aorus Master RTX 3070 8Gb RAM: Corsair Vengeance 2x16Gb 3200Mhz

Unraid Server
CPU: Intel Core i5 8600K MB: Asus Prime Z370-A GPU: Nvidia 1660 Super 6Gb RAM: Corsair Vengeance 4x8Gb 3200Mhz Storage: 8TB Seagate Ironwolf + 8TB Seagate Exos + 500GB Samsung SSD (Cache)

Skjámynd

Snaevar
Nörd
Póstar: 114
Skráði sig: Lau 26. Jún 2021 17:43
Reputation: 10
Staðsetning: Reykjanesbær
Staða: Ótengdur

Re: Flugi Play seinkar um 6,5 tíma

Pósturaf Snaevar » Mán 01. Apr 2024 20:55

Einnig áttirðu líka rétt á að fá bætur greiddar inn á bankareikning nema annað fyrirkomulag hafi verið samþykkt.
Sjá 11. grein hér: https://island.is/reglugerdir/nr/1048-2012
Síðast breytt af Snaevar á Mán 01. Apr 2024 20:55, breytt samtals 1 sinni.


PC
CPU: Intel Core i7 8700K MB: Asus Prime Z370-A GPU: Gigabyte Aorus Master RTX 3070 8Gb RAM: Corsair Vengeance 2x16Gb 3200Mhz

Unraid Server
CPU: Intel Core i5 8600K MB: Asus Prime Z370-A GPU: Nvidia 1660 Super 6Gb RAM: Corsair Vengeance 4x8Gb 3200Mhz Storage: 8TB Seagate Ironwolf + 8TB Seagate Exos + 500GB Samsung SSD (Cache)


T-bone
Fiktari
Póstar: 95
Skráði sig: Mið 25. Mar 2020 13:44
Reputation: 39
Staða: Ótengdur

Re: Flugi Play seinkar um 6,5 tíma

Pósturaf T-bone » Mán 01. Apr 2024 21:34

Mæli 300% með því að fá þessa eða sambærilegt til að græja þetta fyrir þig. Við konan gerðum það og fengum meira til baka en flugið kostaði.
Það eru miklu meiri líkur á að þú fáir bætur ef þú ferð í gegnum svona heldur en ef þú reynir sjálfur.

https://flugbaetur.is/


Mynd


Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4194
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1338
Staða: Tengdur

Re: Flugi Play seinkar um 6,5 tíma

Pósturaf Klemmi » Mán 01. Apr 2024 21:44

Lenti í þessu hjá WOW, blessuð sé minning þeirra.

Fyllti bara út eitthvað form og fékk peninga einhverjum vikum seinna.

Ég held ég myndi alveg reyna á þetta sjálfur gagnvart íslensku flugfélagi, en ég myndi líklega nota eitthvað eins og Flugbætur gagnvart erlendu félagi.



Skjámynd

hagur
Besserwisser
Póstar: 3120
Skráði sig: Mið 17. Des 2003 16:11
Reputation: 454
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Flugi Play seinkar um 6,5 tíma

Pósturaf hagur » Mán 01. Apr 2024 21:55

Við lentum í þessu í sumarið 2022 hjá Play. Sóttum bara um sjálf og það var minnsta mál í heimi. Fengum c.a 4x400 evrur endurgreiddar möglunarlaust og á frekar skömmum tíma. Þau buðu okkur reyndar að fá bæturnar greiddar sem gjafabréf frekar en peninga og þá hærri upphæð per haus, en við ákváðum að taka frekar peningana. Satt best að segja var ég með hálfgert samviskubit að fá þessar bætur, þar sem við vorum nánast að fá flugið endurgreitt, vegna 3-4 klst seinkunar (man ekki alveg hversu mikil seinkunin var). Ég sé ekki þörfina á að díla við batterí eins og flugbaetur.is, nema kannski ef um er að ræða erlent flugfélag, eins og Klemmi bendir á.




jonfr1900
Vaktari
Póstar: 2796
Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
Reputation: 349
Staðsetning: Danmark
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Flugi Play seinkar um 6,5 tíma

Pósturaf jonfr1900 » Mán 01. Apr 2024 23:22

T-bone skrifaði:Mæli 300% með því að fá þessa eða sambærilegt til að græja þetta fyrir þig. Við konan gerðum það og fengum meira til baka en flugið kostaði.
Það eru miklu meiri líkur á að þú fáir bætur ef þú ferð í gegnum svona heldur en ef þú reynir sjálfur.

https://flugbaetur.is/


Það er miklu betra að forðast þetta, hvað sem það er sem þessar flugbætur eru.

Heyrðu fyrst frá blaða­manni um dóms­málið og að þau hefðu tapað því (Vísir.is)



Skjámynd

Moldvarpan
Vaktari
Póstar: 2553
Skráði sig: Fös 16. Mar 2007 21:31
Reputation: 474
Staða: Ótengdur

Re: Flugi Play seinkar um 6,5 tíma

Pósturaf Moldvarpan » Þri 02. Apr 2024 07:07

Þessar flugbætur eru út úr kú. Þær eru alltof háar fyrir alltof lítið. Nokkra klukkutíma seinkun og flugfélagið þarf nánast að gefa öllum flugið frítt?

Hvaða geggjun er það? Þetta er gríðarlega þungur baggi fyrir flugfélög. Sérstaklega ef félögin eru lággjalda og reyna halda álagningunni í skefjum.



Skjámynd

rostungurinn77
has spoken...
Póstar: 190
Skráði sig: Fim 30. Nóv 2023 12:01
Reputation: 77
Staða: Ótengdur

Re: Flugi Play seinkar um 6,5 tíma

Pósturaf rostungurinn77 » Þri 02. Apr 2024 09:30

T-bone skrifaði:Mæli 300% með því að fá þessa eða sambærilegt til að græja þetta fyrir þig. Við konan gerðum það og fengum meira til baka en flugið kostaði.
Það eru miklu meiri líkur á að þú fáir bætur ef þú ferð í gegnum svona heldur en ef þú reynir sjálfur.

https://flugbaetur.is/


Varst þú að skríða út úr helli ?

https://www.visir.is/g/20242546488d/fol ... ga-thoknun


Brynhildur segir að það séu nokkur fyrirtæki sem auglýsi aðstoð við að sækja flugbætur til flugfélaga. „Þetta er alltaf þóknun upp á að minnsta kosti tuttugu prósent auk virðisaukaskatts og þeim hefur gengið furðuvel að koma sér inn á þennan markað,“ segir hún.

Þið viljið hvetja fólk til að gera þetta sjálft?

„Já, af því lögmaðurinn gerir það ekki. Það er allajafna jafn mikil vinna fyrir þig að senda honum flugnúmer, kennitölu og gefa honum umboð eins og að finna eyðublaðið og setja inn flugnúmer, kennitölu og aðrar upplýsingar,“ segir Brynhildur.



Skjámynd

Kongurinn
Fiktari
Póstar: 64
Skráði sig: Þri 12. Des 2023 15:05
Reputation: 11
Staða: Ótengdur

Re: Flugi Play seinkar um 6,5 tíma

Pósturaf Kongurinn » Þri 02. Apr 2024 10:44

í tvö skipti sem ég hef þurft að græja eitthvað svona hef ég notast við https://www.airhelp.com/

taka eitthver x % sem hefur aldrei truflað mig en sé svo það er hægt að kaupa eitthvern PLUS aðgang, mun gera það næst þegar ég lendi í veseni




Jónas Þór
Græningi
Póstar: 35
Skráði sig: Mán 20. Júl 2009 11:40
Reputation: 5
Staða: Ótengdur

Re: Flugi Play seinkar um 6,5 tíma

Pósturaf Jónas Þór » Þri 02. Apr 2024 11:44

Ég hef staðið í þessu nokkru sinnum.

Þið sendið beint á flugfélagið, það tekur 4-5 vikur að svara.
Ef svarið er jákvætt (þér í hag) -> profit
Ef það er neikvætt og þú telur þig eiga rétt á tafarbótum þá færðu samgöngustofu í málið og þeir gera þetta fyrir þig án þess að taka %.
https://island.is/kvortun-flugferd

Vinsamlegast ekki nota þessar bótaskrifstofur.




DabbiGj
Gúrú
Póstar: 529
Skráði sig: Mið 10. Mar 2010 16:11
Reputation: 43
Staða: Ótengdur

Re: Flugi Play seinkar um 6,5 tíma

Pósturaf DabbiGj » Þri 02. Apr 2024 15:21

Moldvarpan skrifaði:Þessar flugbætur eru út úr kú. Þær eru alltof háar fyrir alltof lítið. Nokkra klukkutíma seinkun og flugfélagið þarf nánast að gefa öllum flugið frítt?

Hvaða geggjun er það? Þetta er gríðarlega þungur baggi fyrir flugfélög. Sérstaklega ef félögin eru lággjalda og reyna halda álagningunni í skefjum.


Hvað ef þú missir af tengiflugi ?

Seinasta skiptið sem ég flaug með WOW seinkuðu þeir brottför til að koma farþegum sínum áfram sem olli því að ég missti af mínu tengiflugi jafnvel þótt það hefðu verið 4 tímar á milli þess að lenda og næstu brottfarar.

Ég þurfti að bóka nýtt flug sem kostaði mig $700 og standa í gífurlegu veseni þegar að ég lenti.



Skjámynd

Graven
Ofur-Nörd
Póstar: 237
Skráði sig: Mán 21. Nóv 2011 21:59
Reputation: 86
Staðsetning: Rvk
Staða: Ótengdur

Re: Flugi Play seinkar um 6,5 tíma

Pósturaf Graven » Þri 02. Apr 2024 17:58

DabbiGj skrifaði:
Moldvarpan skrifaði:Þessar flugbætur eru út úr kú. Þær eru alltof háar fyrir alltof lítið. Nokkra klukkutíma seinkun og flugfélagið þarf nánast að gefa öllum flugið frítt?

Hvaða geggjun er það? Þetta er gríðarlega þungur baggi fyrir flugfélög. Sérstaklega ef félögin eru lággjalda og reyna halda álagningunni í skefjum.


Hvað ef þú missir af tengiflugi ?

Seinasta skiptið sem ég flaug með WOW seinkuðu þeir brottför til að koma farþegum sínum áfram sem olli því að ég missti af mínu tengiflugi jafnvel þótt það hefðu verið 4 tímar á milli þess að lenda og næstu brottfarar.

Ég þurfti að bóka nýtt flug sem kostaði mig $700 og standa í gífurlegu veseni þegar að ég lenti.


Hljómar eins og 1st world problem, sjálfumgleðin skín hjá aurapúkum.


Have never lost an argument. Fact.


Mondieu
Græningi
Póstar: 34
Skráði sig: Mán 24. Apr 2017 00:19
Reputation: 5
Staða: Ótengdur

Re: Flugi Play seinkar um 6,5 tíma

Pósturaf Mondieu » Mið 03. Apr 2024 13:13

Það er minnsta mál í heimi að fá þessar bætur greiddar. Ég myndi aldrei borga lögfræðingi til að sjá um eitthvað svona einfalt dæmi. Flugfélagið getur í sjálfu sér lítið gert annað en að greiða þessar bætur út ef seinkunin er meiri en 3 tímar (minnir mig) og seinkunin er "þeim að kenna".

Við hjónin sóttum bætur fyrir alla fjölskylduna og fengum svar fljótlega þar sem allt var samþykkt. Play hefur verið svolítið í því að gefa inneign í staðinn fyrir að greiða út bætur. Í okkar tilfelli buðu þeir 64 þús. kr. í staðinn fyrir ~50 þús. kr. sem við hefðum annars átt rétt á að fá greiddar út.



Skjámynd

Climbatiz
Ofur-Nörd
Póstar: 280
Skráði sig: Mið 11. Maí 2005 21:28
Reputation: 54
Staðsetning: Breidholt
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Flugi Play seinkar um 6,5 tíma

Pósturaf Climbatiz » Mið 03. Apr 2024 13:20

lenti í þvi i PLAY að þurfa borga "fyrir aðra tösku" varðandi fartölvutöskuna mína, hef aldrei lent í þessu með öðrum "low-cost" flugfélugum, fannst einsog PLAY vildi bara þéna eins mikið og hægt er fyrst þetta er nýtt flugfélag


ef ég skrifa kb þá meina ég kilobyte!!!

Skjámynd

Daz
Besserwisser
Póstar: 3835
Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
Reputation: 157
Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
Staða: Ótengdur

Re: Flugi Play seinkar um 6,5 tíma

Pósturaf Daz » Mið 03. Apr 2024 16:40

Graven skrifaði:
DabbiGj skrifaði:
Moldvarpan skrifaði:Þessar flugbætur eru út úr kú. Þær eru alltof háar fyrir alltof lítið. Nokkra klukkutíma seinkun og flugfélagið þarf nánast að gefa öllum flugið frítt?

Hvaða geggjun er það? Þetta er gríðarlega þungur baggi fyrir flugfélög. Sérstaklega ef félögin eru lággjalda og reyna halda álagningunni í skefjum.


Hvað ef þú missir af tengiflugi ?

Seinasta skiptið sem ég flaug með WOW seinkuðu þeir brottför til að koma farþegum sínum áfram sem olli því að ég missti af mínu tengiflugi jafnvel þótt það hefðu verið 4 tímar á milli þess að lenda og næstu brottfarar.

Ég þurfti að bóka nýtt flug sem kostaði mig $700 og standa í gífurlegu veseni þegar að ég lenti.


Hljómar eins og 1st world problem, sjálfumgleðin skín hjá aurapúkum.


Afskaplega metur þú þinn eigin tíma lítils ef þú ert tilbúinn að gefa einhverju fyrirtæki hann. Flugfélögin eru ekkert að borga bætur fyrir allar tafir, bara þær sem eru þeim sjálfum að kenna. Gott aðhald að þau viti af þessum skaðabótum sem þarf greiða.




DabbiGj
Gúrú
Póstar: 529
Skráði sig: Mið 10. Mar 2010 16:11
Reputation: 43
Staða: Ótengdur

Re: Flugi Play seinkar um 6,5 tíma

Pósturaf DabbiGj » Fim 18. Apr 2024 21:12

Graven skrifaði:
DabbiGj skrifaði:
Moldvarpan skrifaði:Þessar flugbætur eru út úr kú. Þær eru alltof háar fyrir alltof lítið. Nokkra klukkutíma seinkun og flugfélagið þarf nánast að gefa öllum flugið frítt?

Hvaða geggjun er það? Þetta er gríðarlega þungur baggi fyrir flugfélög. Sérstaklega ef félögin eru lággjalda og reyna halda álagningunni í skefjum.


Hvað ef þú missir af tengiflugi ?

Seinasta skiptið sem ég flaug með WOW seinkuðu þeir brottför til að koma farþegum sínum áfram sem olli því að ég missti af mínu tengiflugi jafnvel þótt það hefðu verið 4 tímar á milli þess að lenda og næstu brottfarar.

Ég þurfti að bóka nýtt flug sem kostaði mig $700 og standa í gífurlegu veseni þegar að ég lenti.


Hljómar eins og 1st world problem, sjálfumgleðin skín hjá aurapúkum.


Þjáistu af þriðja heims vandamálum ?
Þarftu að bera vatn heim til þín og berjast við sjálfskipaða stríðsherra ?

Eða ertu bara að reyna að vera dónalegur og getur ekki bætt neinu nema leiðindum í þessa umræðu ?