jonsig skrifaði:hver er eða var ManOfIce ?
idk, einn admininn minnir mig
ég frétti af þessu þannig að einn gaur í vinnunni sagði mér frá DC deiliforritum sem væru til til að bítta efni við aðra á netinu
svo ég sótti og setti upp en fyrst var maður ekki með nóg lágmarks deilimagnið
svo var maður ekki með nógu áhugavert efni til að bítta slottum við suma lol
svo ég bara henti engu sem ég niðurhalaði og keypti nýja diska þegar vantaði pláss
svo varð þetta hátt "share" score en á venjulegri heimilistengingu og með mest eldra efni
og svo þótti það víst líka voða flott að eiga yfir Tb af share í þá tíð, svo virkaði hvetjandi á að halda því uppi sem lengst.
Saknaði persónugagnanna á C drifinu og spjallsins á hubbunum. ég fékk eitthvern 80gb disk til baka frá löggunni sem gæti hafa verið C drifið en hann var ónýtur svo náði aldrei neinum gögnum aftur af honum, þeir skiluðu líka öllu dvd skrifuðu diskunum sem var mest drasl, minnir að hafi verið í vikunni eftir að SKRATI fórst í sjóslysinu
held þeir hafi gert sér grein fyrir að lokum að það var spilað með þá eins og okkur.
btw ég stofnaði eitthvað sem hét "Samfélag Margmiðlunar Áhugamanna á ÍSlandi"
og keypti lén nokkuð með séríslenskum stöfum "smáís.is" þann 14. desember 2006
og hef haldið því léni allann tímann ef ske kynni að fyndi eitthver frekari not fyrir það
en það er í parking eins og er..