Norskur eldislax í íslenskum ám

Allt utan efnis

dadik
Tölvutryllir
Póstar: 639
Skráði sig: Lau 14. Sep 2002 11:21
Reputation: 112
Staðsetning: Reykjavik
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Eldislax í íslenskum ám

Pósturaf dadik » Fös 22. Sep 2023 15:26

Þannig að slepping á 6 milljón seiðum hefur engin áhrif en að nokkrir laxar úr sjókví leggjar árnar í rúst?

Ertu efnislega ósammála einhverju í þessum pistli eða er þetta bara á tilfinningalegum nótum hjá þér?


ps5 ¦ zephyrus G14


vesley
Kóngur
Póstar: 4257
Skráði sig: Mán 08. Sep 2008 19:39
Reputation: 192
Staðsetning: við talvuna
Staða: Ótengdur

Re: Eldislax í íslenskum ám

Pósturaf vesley » Fös 22. Sep 2023 17:38

dadik skrifaði:Þannig að slepping á 6 milljón seiðum hefur engin áhrif en að nokkrir laxar úr sjókví leggjar árnar í rúst?

Ertu efnislega ósammála einhverju í þessum pistli eða er þetta bara á tilfinningalegum nótum hjá þér?



Þetta er ekki íslenskur lax í eldi hér heima heldur af norskum uppruna svo þar er grundvallarmunur. Ásamt því að búið er að erfðabreyta laxinum

Seiðin voru ræktuð úr íslenskum villtum lax og engin erfðabreyting gerð.


Hafrannsóknarstofnun er þegar búin að mæla að það er komin erfðablöndun í villta laxinn sem er næst sjókvíareldi.

Svo að já ég stend fast við það að þessi pistill er algjört kjaftæði.



Skjámynd

einarhr
Vaktari
Póstar: 2011
Skráði sig: Þri 27. Maí 2008 10:12
Reputation: 276
Staðsetning: 110 Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Eldislax í íslenskum ám

Pósturaf einarhr » Fös 22. Sep 2023 19:14

vesley skrifaði:
dadik skrifaði:https://www.bb.is/2023/09/laxinn-storfelldar-sleppingar-um-aratugaskeid-an-merkis-um-erfdablondun/




Seiðasleppingar frá þeim tíma í samanburði við eldislaxinn er fáránlegur útúrsnúningur. Fyrir það fyrsta að þó að eitthvað hafi verið gert áður þýðir ekki að það ætti að gera það aftur.

Svo er eldislaxinn í dag margur hver erfðabreyttur/úrkynjaður/skaddaður.
Ræðir líka um strangt regluverk þegar staðfest er að regluverkið er út í hött og gagnslaust vegna skorts á fjármagni tengdu eftirliti.

Get ekki tekið mark á einu orði í þessum pistil.



Nákvæmlega, þessi varðhundur auðvaldsins bullar bara eins og vanalega.
https://www.althingi.is/altext/cv/is/?nfaerslunr=386


| Ryzen 7 5800X 32GB |RTX 3070Ti| Server i7 6700K 16GB |


dadik
Tölvutryllir
Póstar: 639
Skráði sig: Lau 14. Sep 2002 11:21
Reputation: 112
Staðsetning: Reykjavik
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Eldislax í íslenskum ám

Pósturaf dadik » Fös 22. Sep 2023 21:13

Ég sé að tilfinningarnar eru að bera menn ofurliði hérna. Búið að ræsa út Andra Snæ og Bubba. Vantar bara "en hver hugsar um börnin?".

Það sem þessi pistill bendir ósköp einfaldlega á er að það var stunduð skipulögð erfðablöndun í íslenskum laxveiðiám svo áratugum skipti. Enginn gerði athugasemd við þessa kynblöndun. Því þetta var ekkert annað en kynblöndun. Allir sem hafa veitt lax sjá mun á fiskum frá mismunandi vatnasvæðum. Jafnvel tvær ár hlið við hlið geta verið með mismunandi stofna - t.d. Víðidalsá og Fitjá. Samt sem áður lifðu þessir stofnar af - þrátt fyrir vel skipulagða ræktun þar sem 6 milljónum seiða var sleppt.

Svo sleppa nokkrir laxar úr sjókví og það verður allt vitlaust. Menn fara að nota orða á borð við "úrkynjun", "skemmdur", "erfðabreyttur". Gott ef þeir eru ekki kommúnistar líka.

Það er heldur engin efnisleg athugasemd við innihald þessarar greinar, bara eitthvað ad-hominem dót.

Staðreyndin er sú að ræktunin á árum áður er ekki sambærileg við þessa strokulaxa, einfaldlega af því að hún var svo miklu umfangsmeiri. Við getum líka stillt þessu upp svona - af hverju var óhemju fé og fyrirhöfn eytt í þetta seiðaeldi, áratugum saman, ef það var hægt að kynbæta íslenskar laxveiðiár með því að rækta nokkra laxa í hafbeit og sleppa þeim svo beint í árnar, með broti af tilkostnaðinum.

Ef fólk hefur virkilegar áhyggjur af stöðu íslenska laxastofnsins eru miklu mikilvægari spurningar sem þyrfti að skoða. Af hverju hefur laxveiði farið minnkandi ár eftir ár? Jafnvel þótt að veiða og sleppa hafi verið stundað árum saman t.d. í Vatnsdalsá hefur veiðin ekki náð því sem best var á árum áður. Á sama tíma er búið að kaupa upp nánast alla netaveiði auk þess sem laxveiðar í sjó hafa verið bannaðar í áratugi. Núna telja fiskifræðingar að það þurfi 2.000 seiði til að koma upp einum laxi, en sambærileg tala var 1.000 seiði per lax fyrir um 20 árum síðan.

Á sama tíma er farið að landa allt að 170 þúsund tonnum á ári af makríl sem að stórum hluta veiðist innan íslensku lögsögunnar - sem er svipað og við værum að veiða 68 milljónir af 5 punda löxum. Á sama tíma er laxveiðin í íslenskum ám árið 2023 ef komin í rúm 37.000 fiska samkvæmt Landsambandi Veiðifélaga. En þetta hefur náttúrlega engin áhrif, þetta er allt strokulaxinum að kenna.

Þannig að já - það eru önnur atriði sem hafa meiri áhrif og nei, þetta er ekki sambærilegt.


ps5 ¦ zephyrus G14

Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 5599
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1054
Staða: Ótengdur

Re: Eldislax í íslenskum ám

Pósturaf appel » Fös 22. Sep 2023 21:39

Afi minn rak laxveiðiá. Hans mesta umkvörtunarefni hvað það varðar voru selirnir sem voru að gleypa alla laxana. Enginn kvartaði yfir því að laxaseiðin voru ræktuð á þeim tíma, man eftir því að keyra með laxaseiði í pokum í laxveiðiár. 30 ár síðan.
"Hreinn íslenskur lax" hvaða bull er þetta. Þetta er allt ræktað meira og minna. Séð kerin og allt, þessir "villtu laxar" eru ekki "villtir laxar", líklega er þetta allt afsprengi síló á suðurlandi. Þeir sem þekkja þessa ræktun vita hvað ég er að tala um. Allir eigendur laxveiðiáa hafa plantað þessum seiðum þar til að gera þær eftirsóttar. Villtur lax varð útdauður fyrir 50 árum. Í dag er eldislax að keppa við eldislax.
Síðast breytt af appel á Fös 22. Sep 2023 21:49, breytt samtals 1 sinni.


*-*


Höfundur
Tóti
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 374
Skráði sig: Fös 04. Jún 2004 23:52
Reputation: 33
Staða: Ótengdur

Re: Eldislax í íslenskum ám

Pósturaf Tóti » Lau 23. Sep 2023 14:10




Skjámynd

joekimboe
Ofur-Nörd
Póstar: 201
Skráði sig: Sun 06. Apr 2014 18:52
Reputation: 22
Staða: Ótengdur

Re: Eldislax í íslenskum ám

Pósturaf joekimboe » Lau 23. Sep 2023 19:11

appel skrifaði:Afi minn rak laxveiðiá. Hans mesta umkvörtunarefni hvað það varðar voru selirnir sem voru að gleypa alla laxana. Enginn kvartaði yfir því að laxaseiðin voru ræktuð á þeim tíma, man eftir því að keyra með laxaseiði í pokum í laxveiðiár. 30 ár síðan.
"Hreinn íslenskur lax" hvaða bull er þetta. Þetta er allt ræktað meira og minna. Séð kerin og allt, þessir "villtu laxar" eru ekki "villtir laxar", líklega er þetta allt afsprengi síló á suðurlandi. Þeir sem þekkja þessa ræktun vita hvað ég er að tala um. Allir eigendur laxveiðiáa hafa plantað þessum seiðum þar til að gera þær eftirsóttar. Villtur lax varð útdauður fyrir 50 árum. Í dag er eldislax að keppa við eldislax.


Þú ert að bera saman epli og appelsínur. Það að sleppa seiðum og grafa hrogn er ekki sambærilegt við að sleppa fullorðnum kynþroska vanþroskuðum fiskum í vistkerfið. Það er enn enginn að kvarta yfir laxaseiðum heldur fullvaxta kynþroska fiskum sem hafa sloppið út í nàttúruna. Þetta er erfðabreytt rusl við hliðina á “villtum” fisk. Það sést á holdi, krafti og útliti fisksins í kerinu.




Höfundur
Tóti
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 374
Skráði sig: Fös 04. Jún 2004 23:52
Reputation: 33
Staða: Ótengdur

Re: Eldislax í íslenskum ám

Pósturaf Tóti » Lau 23. Sep 2023 19:55





Höfundur
Tóti
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 374
Skráði sig: Fös 04. Jún 2004 23:52
Reputation: 33
Staða: Ótengdur

Re: Norskur eldislax í íslenskum ám

Pósturaf Tóti » Lau 23. Sep 2023 22:55

Smá breyting á titli.
En allir sem sem hafa vit og þekkingu þá voru menn að rækta ár í gamla daga með íslenskum laxi.
Taka fiska í klak og rækta úr íslenskum laxi þ.e.a.s. úr íslenskum stofni. Úr íslenskum ám.
Engin erfðablöndun.
Síðast breytt af Tóti á Lau 23. Sep 2023 22:58, breytt samtals 1 sinni.




Höfundur
Tóti
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 374
Skráði sig: Fös 04. Jún 2004 23:52
Reputation: 33
Staða: Ótengdur

Re: Norskur eldislax í íslenskum ám

Pósturaf Tóti » Fim 28. Sep 2023 20:58




Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16573
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2136
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Norskur eldislax í íslenskum ám

Pósturaf GuðjónR » Fim 28. Sep 2023 21:20


Too little too late...
Villta stofninum verður ekki bjargað héðan í frá því miður.
Afleiðing af enn einu fúskinu.




Höfundur
Tóti
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 374
Skráði sig: Fös 04. Jún 2004 23:52
Reputation: 33
Staða: Ótengdur

Re: Norskur eldislax í íslenskum ám

Pósturaf Tóti » Fim 28. Sep 2023 21:53

Ekkert nema græðgi í þessum ss. sem eiga þessi eldisfyrirtæki.
https://www.forlagid.is/vara/undir-yfir ... evintyrid/




vesley
Kóngur
Póstar: 4257
Skráði sig: Mán 08. Sep 2008 19:39
Reputation: 192
Staðsetning: við talvuna
Staða: Ótengdur

Re: Norskur eldislax í íslenskum ám

Pósturaf vesley » Fös 29. Sep 2023 08:12

GuðjónR skrifaði:

Too little too late...
Villta stofninum verður ekki bjargað héðan í frá því miður.
Afleiðing af enn einu fúskinu.



Alls ekki rétt. Svona hugsanaháttur gefur þeim leyfi að skemma íslenska náttúru án afleiðinga. Mótmælin sýna að fólki stendur ekki á sama og trúir ekki þeim lygasögum sem fólk innan eldis fer með.

Tjónið er núþegar mikið en það er hægt að koma inn breytingum og koma í veg fyrir frekari eldislaxa í ánum.




Höfundur
Tóti
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 374
Skráði sig: Fös 04. Jún 2004 23:52
Reputation: 33
Staða: Ótengdur

Re: Norskur eldislax í íslenskum ám

Pósturaf Tóti » Fim 05. Okt 2023 23:35





dadik
Tölvutryllir
Póstar: 639
Skráði sig: Lau 14. Sep 2002 11:21
Reputation: 112
Staðsetning: Reykjavik
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Norskur eldislax í íslenskum ám

Pósturaf dadik » Sun 08. Okt 2023 16:39



ps5 ¦ zephyrus G14


vesley
Kóngur
Póstar: 4257
Skráði sig: Mán 08. Sep 2008 19:39
Reputation: 192
Staðsetning: við talvuna
Staða: Ótengdur

Re: Norskur eldislax í íslenskum ám

Pósturaf vesley » Sun 08. Okt 2023 17:21

dadik skrifaði:https://www.visir.is/g/20232472626d/hvergi-gerst-ad-eldis-laxar-ut-rymi-villtum-laxa-stofnum



Og hvað??

Vert er að taka fram að Ólafur Sigurgeirsson hefur hagsmuna að gæta og hefur starfað mikið fyrir fiskeldi bæði hér á landi og erlendis.

Það er löngu staðfest að eldislaxinn er að blandast villtum lax hér heima.
Það er marg staðfest að eldislaxinn hefur valdið miklu tjóni í Noregi sem erfitt er að bæta og sömu sögur í öðrum löndum.

Skil aldrei þessa hugsun að vandamálið sé ekki nógu stórt því þetta valdi ekki útrýmingu.
Síðast breytt af vesley á Sun 08. Okt 2023 17:24, breytt samtals 1 sinni.




dadik
Tölvutryllir
Póstar: 639
Skráði sig: Lau 14. Sep 2002 11:21
Reputation: 112
Staðsetning: Reykjavik
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Norskur eldislax í íslenskum ám

Pósturaf dadik » Sun 08. Okt 2023 17:23

Ertu til í að deila þessum staðfestu heimildum með okkur hinum?


ps5 ¦ zephyrus G14


vesley
Kóngur
Póstar: 4257
Skráði sig: Mán 08. Sep 2008 19:39
Reputation: 192
Staðsetning: við talvuna
Staða: Ótengdur

Re: Norskur eldislax í íslenskum ám

Pósturaf vesley » Sun 08. Okt 2023 17:28

dadik skrifaði:Ertu til í að deila þessum staðfestu heimildum með okkur hinum?


Þarf þess ekki. Lestu bara þráðinn og þá sérð þú linka og aðrar heimildir og tilvitnanir fyrir “ykkur hina”




dadik
Tölvutryllir
Póstar: 639
Skráði sig: Lau 14. Sep 2002 11:21
Reputation: 112
Staðsetning: Reykjavik
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Norskur eldislax í íslenskum ám

Pósturaf dadik » Sun 08. Okt 2023 17:48

vesley skrifaði:
dadik skrifaði:Ertu til í að deila þessum staðfestu heimildum með okkur hinum?


Þarf þess ekki. Lestu bara þráðinn og þá sérð þú linka og aðrar heimildir og tilvitnanir fyrir “ykkur hina”


Það eru akkúrat hvergi vísað í neinar rannsóknir í þessum þræði. Þetta eru allt upphrópanir og skoðanapistlar.


ps5 ¦ zephyrus G14


Höfundur
Tóti
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 374
Skráði sig: Fös 04. Jún 2004 23:52
Reputation: 33
Staða: Ótengdur

Re: Norskur eldislax í íslenskum ám

Pósturaf Tóti » Þri 10. Okt 2023 21:02

Það eru til svo margar greinar.
Ein t.d.
https://time.com/6199237/is-farmed-salm ... stainable/
Málið er um það eins og allir vita https://nasf.is/en/norway/
Af hverju eru þið á móti þessu?
Síðast breytt af Tóti á Þri 10. Okt 2023 22:11, breytt samtals 2 sinnum.




Höfundur
Tóti
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 374
Skráði sig: Fös 04. Jún 2004 23:52
Reputation: 33
Staða: Ótengdur

Re: Norskur eldislax í íslenskum ám

Pósturaf Tóti » Þri 10. Okt 2023 22:31

In Norway, nature has been exploited for financial gain with catastrophic and irreversible effects. The situation has become so serious that the government has banned all new licenses for open net pen farms and is only awarding licenses to companies that are developing eco friendlier production methods, like closed containment. It is not a coincidence that Norwegian salmon farming companies are now seeking to invest in Iceland.

Eruð þið að fatta þetta
Eruð þið að skilja þetta?
Síðast breytt af Tóti á Fös 20. Okt 2023 23:40, breytt samtals 3 sinnum.




Höfundur
Tóti
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 374
Skráði sig: Fös 04. Jún 2004 23:52
Reputation: 33
Staða: Ótengdur

Re: Norskur eldislax í íslenskum ám

Pósturaf Tóti » Fös 20. Okt 2023 23:19

Síðast breytt af Tóti á Fös 20. Okt 2023 23:26, breytt samtals 1 sinni.




vesley
Kóngur
Póstar: 4257
Skráði sig: Mán 08. Sep 2008 19:39
Reputation: 192
Staðsetning: við talvuna
Staða: Ótengdur

Re: Eldislax í íslenskum ám

Pósturaf vesley » Fim 02. Nóv 2023 09:58

Fumbler skrifaði:Og sambandi við að vera með eldi á landi þá er það þar sem fiskurinn fær mun minna pláss og ferskan sjó. fyrir utan það að þú þarft yfir 100 - 500 x meira rafnmagn til þess að knýja allar þær dælur til þess að gera verið með eðlileg vatnaskipti sem gerast náttúrulega með falla skiptum og sjávar straumum úti í sjó.

Næstum enginn lyf eru notuð á þessum 12 -18 mánuðum sem hver kinslóð er í sjónum. Þótt um 1000 fiskar fái sár eða verði veikir, þá er það rétt um eða undur 1% af stofninum.
Lúsin er ekki að borða laxin, heldur bara blóðið hans, en skilur eftir sár sem kemur sýking í og það verður stundum ljótt.

Fiskeldi í sjó er ein umhverfisvænasta leið til þess að framleiða prótein fyrir okkur mannfólkið.

Það er eðlilegt að og auðvelt að láta plata sig með öllum þessum upphrópumum sem eru í gangi, en þá er líka gott að kinna sér efnið betur.


Hvað segiru er enn verið að plata okkur með upphrópunum?
Búið að gjörsamlega dæla lyfum í laxinn í Tálknafirði til að reyna að losa um faraldurinn þar án árangurs.
Og núna er verið að drepa yfir milljón laxa. Fagaðilar frá Noregi hafa aldrei séð jafn slæmt og ógeðslegt ástand.


https://heimildin.is/grein/19429/allir- ... tta-sjokk/



https://heimildin.is/grein/19429/allir- ... tta-sjokk/




Höfundur
Tóti
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 374
Skráði sig: Fös 04. Jún 2004 23:52
Reputation: 33
Staða: Ótengdur

Re: Norskur eldislax í íslenskum ám

Pósturaf Tóti » Fim 02. Nóv 2023 20:29

https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2023 ... -ur-sjonum
Þetta er ekki ný frétt en segir það sem segja þarf.
Sáuð þið fréttir í dag í sjónvarpi þetta er ekki lagi.
https://www.ruv.is/sjonvarp/spila/frett ... 762/a0guui
Kl.07:45

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2023 ... r_lifandi/

Og smá viðbót
https://www.visir.is/g/20232483846d/vil ... i-fangelsi
Síðast breytt af Tóti á Fim 02. Nóv 2023 20:44, breytt samtals 3 sinnum.




Manager1
Tölvutryllir
Póstar: 625
Skráði sig: Þri 16. Mar 2004 21:28
Reputation: 91
Staða: Ótengdur

Re: Norskur eldislax í íslenskum ám

Pósturaf Manager1 » Fim 02. Nóv 2023 21:25

Það kemur líka stundum upp riða í íslenska fjárstofninum og þá þarf að farga öllu fénu á viðkomandi bæ og jafnvel á næstu bæjum, ekki sé ég fólk kalla það dýraníð að það þurfi að drepa þessar kindur.

Það er verið að farga fiskinum sem er svona lúsugur, það er það eina rétta í stöðunni.


Það er alveg magnað hvað fiskveiðiþjóðinni Íslandi þykir vænt um laxinn. Við drepum fleiri milljón (milljarða?) fiska á ári og nákvæmlega enginn kippir sér upp við það, en laxinn er greinilega sérstakur?