https://stereo.is/vara/chord-music-rafmagnskapall-1m/
Hvað er að frétta.
Audiophiles eru greinilega sérstakur þjóðflokkur. Þarna má líka fá stutta hátalarakapla á nokkra hundrað þúsund kalla og fleira í svipuðum dúr. Ég bara trúi ekki að einhver sé að kaupa þetta.
Chord og AudioQuest ... kannski líka Monster cables, einhver er nú framlegðin á þessu drasli.
Sorry, varð bara að "segja" einhverjum frá þessu
1.5 metra rafmagnskapall á 900 þús ....
-
- Vaktari
- Póstar: 2730
- Skráði sig: Mán 15. Des 2003 21:11
- Reputation: 159
- Staða: Ótengdur
Re: 1.5 metra rafmagnskapall á 900 þús ....
Ert ekki maður með mönnum nema þú sért með þennan: https://stereo.is/vara/chord-music-streaming-kapall-1m/
-
- FanBoy
- Póstar: 752
- Skráði sig: Fim 26. Apr 2007 02:04
- Reputation: 116
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: 1.5 metra rafmagnskapall á 900 þús ....
Hlýtur nú að vera gerður úr hreinu rhodeum
- Viðhengi
-
- Screenshot_2023-09-21-21-00-35-628_com.vivaldi.browser.jpg (530.28 KiB) Skoðað 3616 sinnum
B450M Steel Legend (AM4). AMD Ryzen 5 3600X. TEAM TM8FP4512G (SSD). 2 tb HDD. 3 tb HDD. 4 tb HDD GeForce RTX 2060 SUPER. 16 gb 3600 mhz RAM.
-
- Stjórnandi
- Póstar: 2852
- Skráði sig: Fös 04. Apr 2003 08:54
- Reputation: 217
- Staðsetning: Á þessu spjalli
- Staða: Ótengdur
Re: 1.5 metra rafmagnskapall á 900 þús ....
Minnir mig á þegar James Randi gerði veðmál við Pear Audio upp á milljón dollara og það árið 2006ish.
Hvort þeir gætu sjálfir heyrt mun á mörg þúsund dollara hátalaraköplum og Monster köplum úr Best buy
Þeir hótuðu og gerðu allskyns gloríur og rugl en hættu svo við á síðustu stundu því það var engin marktækur munur með þessum tveimur mælitækjum sitthvoru meginn á hausnum á okkur
ps, ef einhver vill kaupa handa sér "audiophile" kapla, bara kaupa sér Hosa-snúrur. Hágæða stöff sem endist ógeðslega lengi og kostar ekkert svo mikið. Held að mínir kaplar séu örugglega hátt í 18-20 ára

Síðast breytt af CendenZ á Fim 21. Sep 2023 21:37, breytt samtals 1 sinni.
-
- Skjákortaníðingur
- Póstar: 5106
- Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
- Reputation: 930
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: 1.5 metra rafmagnskapall á 900 þús ....
Ég nota bara 2x1.5q lampasnúru í martin logan hátalarana mína.
Hugsa að flestar kindur kaupi sér nú samt hátalara snúru án þess að pæla í því. Og jafnvel fræði mig um Oxygen-free copper (OFC
Hugsa að flestar kindur kaupi sér nú samt hátalara snúru án þess að pæla í því. Og jafnvel fræði mig um Oxygen-free copper (OFC
-
- Bara að hanga
- Póstar: 1577
- Skráði sig: Mið 13. Apr 2005 13:56
- Reputation: 130
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: 1.5 metra rafmagnskapall á 900 þús ....
Ekki er öll vitleysan eins. Skil ekki að það sé til fólk sem láti plata sig svona.
Ég á nokkra turnhátalara og hef tengt þá með Monster hátalarasnúrum sem ég fékk gefins og einnig ódyrustu gerð af vír úr Heimilistækjum og heyri andskotann engan mun.
Ég á nokkra turnhátalara og hef tengt þá með Monster hátalarasnúrum sem ég fékk gefins og einnig ódyrustu gerð af vír úr Heimilistækjum og heyri andskotann engan mun.
Have spacesuit. Will travel.
Re: 1.5 metra rafmagnskapall á 900 þús ....
Það skiptir líka höfuðmáli þegar maður er kominn með svona dýra kapla að nota "cable risers"!
Re: 1.5 metra rafmagnskapall á 900 þús ....
Fyrsta sem maður gerir er að skipta um kló…
Klóin fer svo í tengilinn sem er að fá sitt rafmagn í gegnum 100 kr lagnavír.
Þannig að það eina sem þessi snúra gæti hugsanlega tryggt er að rafmagnið tapi engum eiginleikum frá tengingu við kló að græju.
Veit ss ekki hvaða eiginleikar það gætu verið.
Ekki nema þú búir 150 sm frá Kárahnjúkum…

- Of mikill frítími
- Póstar: 1794
- Skráði sig: Fim 12. Jún 2003 17:16
- Reputation: 82
- Staðsetning: DK
- Staða: Ótengdur
Re: 1.5 metra rafmagnskapall á 900 þús ....
það versta við þessa snúru að maður þarf annaðhvort að nota millistykki eða klippa hausinn af og skrúfa nýja kló á
Edit:
Ég var að búast við þetta væri íslensk verðlagning og fór að tjekka á verðum í Danmörku, en það var nákvæmlega sama bilunin...
Fann meira segja annann kapall á 3.5 milljón ISK! https://high-performance.dk/nordost-odin-2-power

Síðast breytt af axyne á Fös 22. Sep 2023 15:36, breytt samtals 1 sinni.
Electronic and Computer Engineer
-
- vélbúnaðarpervert
- Póstar: 985
- Skráði sig: Fös 15. Nóv 2002 20:40
- Reputation: 42
- Staðsetning: RVK
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: 1.5 metra rafmagnskapall á 900 þús ....
Minnir mig á þegar ég og pabbi vorum að dunda okkur að smíða flata hátalara frá grunni (ekki electro-statíska) heldur keilu sem er búið að fletja út, það var alveg áberandi skír hljómur í þeim og hann spilaði bæði hljóð að framan og fyrir aftan af sama skírleika.
Ég prófaði þá einmitt einhverja massíft þykka kapla sem kostuðu 500 kr. meterinn (fyrir 20 árum kannski) örugglega 6-10q , svo skellti ég 1,5q ídráttarvír í þá og ég get svo svarið það að hann hljómaði betur þannig.
Uppáhaldið mitt í þessu eru samt svona ultra high quality digital kaplar...digital þolir svo miklu meira noise, eina réttlætingin er oftast að fara í kapla sem kosta 2x-3x ódýrustu (það eru betri gæði, betri tengi aðallega), eftir það batnar ekkert.

Hlynur
-
- Gúrú
- Póstar: 502
- Skráði sig: Fim 28. Sep 2017 09:44
- Reputation: 163
- Staðsetning: 105
- Staða: Ótengdur
Re: 1.5 metra rafmagnskapall á 900 þús ....
SolidFeather skrifaði:Ert ekki maður með mönnum nema þú sért með þennan: https://stereo.is/vara/chord-music-streaming-kapall-1m/
Heyrðu góði, vertu ekki að gera a grín að þessu. Þú tókst nottla ekkert eftir því að þetta er STAFRÆNT (það sem við innanbúðarmenn köllum cutting-edge digital).
Og þið sem, greinilega, megið ekki heyra á neitt vísindalegt minnst, athugið að: "In almost every case it appeared to bring new layers of musical detail, transforming the sound."
Nei ég ætla ekki að þýða þetta fyrir ykkur, kaupið bara ykkar eigin skjalaþýðingu eins og ég.
Aðalatriðið er að verðið á kaplinum er gjöf en ekki gjald. Hann færir þeim sem er fær um að meta, einstæða og óviðjafnalega tónlistarupplifun.