Climbatiz skrifaði:Predator skrifaði:Climbatiz skrifaði:okok... ég ætti semsagt bara að hætta pósta hérna í þessum þræði? enginn vill vita aðrar upplýsingar um stríðið? ég hélt ég væri að gefa góða flutninga hérna, og reyndi að skrifa sem best það sem ég var að segja, og eftir smá byrjaði ég að segja að allt sem ég segi er propaganda bara svo að fólk þarf ekki að segja það eftirá, mér langaði bara að skrifa hérna líka, hélt ekki að ég myndi fá allar þessar árásir á mig, ég myndi aldrei skrifa svona um neinn annan nema ég hefði góð rök með mér, ég býðst við að allir vilja bara hata á Rússa í þessum þræði og engar aðrar skoðanir eru óskaðar eftir
Hefurðu velt því fyrir þér hvað það er í sjálfu sér furðuleg afstaða að stimpla alla miðla í USA, UK, Frakklandi, Þýskalandi, Íslandi, Norðurlöndunum og svo framvegis sem "Western media" eins og að þeir kjafti sig allir saman til að halda "lyginni" gangandi? Ekki nóg með það heldur virðistu, miðað við öll þín skrif hérna inni til þessa amk, telja að Rússar einir segi sannleikann.
Má heldur ekki gleyma því að í Rússlandi er ekki málfrelsi og fjölmiðlar eru ekki frjálsir heldur eru þeir allir í ríkiseigu og stýra einhverjir menn í Kremlin hvað má fjalla um og hvernig.
Að lokum, eins og margir aðrir eru búnir að tala um, þá eru Rússar auðvitað vondi karlinn í þessu stríði þar sem þeir eru að ráðast inn í annað sjálfstætt ríki með það að markmiði að innlima það inn í sitt eigið.
https://en.m.wikipedia.org/wiki/Swiss_Policy_Research
Ekki beint gáfuleg samtök sem bjuggu til þessa mynd.