Daginn.
Ég á þrjá yngri bræður. Núna er ég kominn á miðjan aldur og ekki viss um að ég ráði almennilega við þá líkamlega, þó að vissulega fari ég létt með að smána þá andlega. Vandamálið er að þeir hafa nú til umráða 1x3080, 1x3070 og 1xPS5, á meðan ég er bara með 5600xt.
Spurningin er, hvað á ég að segja við pabba þegar hann spyr afhverju þeir þori ekki að segja hvað varð um dótið þeirra?
Með von um góð svör.
Hvað á ég að gera?
-
Höfundur - has spoken...
- Póstar: 155
- Skráði sig: Fös 24. Apr 2020 16:00
- Reputation: 42
- Staða: Ótengdur
Re: Hvað á ég að gera?
Notar bara "5 minute crafts" sem verkfæri til þess að gera sannfærandi eftirlíkingar úr pappa.
Kemst aldrei upp!
Kemst aldrei upp!
NZXT 710i - Ryzen 7 5800X - 32GiB 3200 M/T RAM - X570 Aorus Ultra - PowerColor Radeon RX 7900 XTX - 1TB Samsung 970 Pro, 2TB Samsung 970 Evo
-
- Ofur-Nörd
- Póstar: 267
- Skráði sig: Sun 14. Jún 2020 21:21
- Reputation: 59
- Staða: Ótengdur
Re: Hvað á ég að gera?
Geturðu ekki ráðið til verksins einhvern ofurheitan kvenkyns njósnara.
Hún vingast við einn þeirra og nær honum á sitt band. Ruglar í honum og vingast svo við bróður númer tvö. Áður en þú veist af þá er allt í bál og brand á heimilinu. Þú læðist inn og stelur öllum tölvubúnaði sem þú getur í skjóli ástandsins. Eða þú lætur hana sjá um það, hún er jú njósnari.
Þegar faðir þinn hringir í þig verður það ekki til þess að ásaka þig um stuld heldur til að biðja þig um hjálp við að leysa ástandið.
Fjölskyldan heldur sáttafund með þig á svæðinu, þú spinnur þig í gegnum hann. Að fundi loknum biður þú þína konu um að hverfa og sjást aldrei aftur.
Ástandið leyst, þú ert hetjan og átt núna þrjú ný skjákort og aukna virðingu fjölskyldunnar.
P.S. ef þrjú kort eru of mikið fyrir einn mann þá er ég tilbúin að þiggja eitt kort fyrir frábærar ráðleggingar.

Spilar einn þeirra bara Fortnite, Valorant eða CS:GO? Ef svo skiptir þú bara út skjákortinu þeirra fyrir 5600xt. Taka taka aldrei eftir því.
-
- FanBoy
- Póstar: 753
- Skráði sig: Mán 02. Maí 2011 01:28
- Reputation: 179
- Staðsetning: Terran Empire
- Staða: Ótengdur
Re: Hvað á ég að gera?
Mjög gott að læsa þá niðri í geymslu/bílskúr í nokkra daga, þeir verða svo fegnir að komast út að þeir taka ekki eftir neinu, nota þetta trix reglulega
Re: Hvað á ég að gera?
Þú segir við pabba þinn að grunur leiki á að þeir séu djúpt sokknir í eiturlyfjaneyslu og hafa sennilega selt búnaðinn til Sigga sýru til að fjármagna hana.