Dropi skrifaði:Alfa skrifaði:Þetta bóluefni var náttúrulega hraðað í gegnum öll kerfi, að halda öðru fram er kjánaskapur
Þetta er hættuleg fullyrðing, algjör eldsmatur á umræðu sem þarf að hægja á.
Ég skil ekki afhverju hún er hættuleg, það þarf bara skoða hve lengi það hefur tekið að þróa önnur bóluefni til að sjá það, afhverju á að þagga niður eitthvað sem er alveg augljóst. Akkúrat það vekur bara meiri tortryggni hjá fólki sem er á neikvæða kantinum. Það þýðir ekkert að þó það hafi verið hraðað þróun að það hafi ekki verið vandað til verka. Umræðan um þessi bóluefni er mjög einsleit, einföld og jákvæð á íslandi, lang lang flestir eru ætla sér að fara í bólusetningu, þeir eru þessi dæmigerði þögli meirihluti.