Black Friday "svindl"? - Ath misskilningur (sjá svar)
-
Höfundur - Vélbúnaðarníðingur
- Póstar: 324
- Skráði sig: Mán 22. Sep 2008 16:36
- Reputation: 3
- Staða: Ótengdur
Black Friday "svindl"? - Ath misskilningur (sjá svar)
Var fyrir tilviljun að skoða mica hjá Tölvutek fyrir 2 vikum og var að spá í einum sem kostaði 8k.
Núna eru þeir að auglýsa Black Friday tilboð og athuga þá micana hvort þeir væru á góðu tilboði þá sé ég hann á tilboði á 7,9k og fyrir verð sett á 9,9k.
Finnst þetta frekar dubious og velti því fyrir mér, ef þeir gera þetta með eina vöru þá væri ég ekkert hissa ef væri gert við aðrar vörur líka, sem og önnur fyrirtæki.
Hvað haldið þið, er ég að ofhugsa þetta eða ætli það sé frekar algengt?

Síðast breytt af Gerbill á Mán 25. Nóv 2019 22:39, breytt samtals 1 sinni.
-
- Of mikill frítími
- Póstar: 1798
- Skráði sig: Þri 08. Nóv 2005 15:19
- Reputation: 387
- Staðsetning: Við tölvuna
- Staða: Ótengdur
Re: Black Friday "svindl"?
Turn: Cooler Master Mastercase H500M Móðurborð: Asus ROG Maximus XI Hero
CPU: Intel Core i9-9900K 3.6GHz (Coffee Lake) GPU: EVGA GeForce RTX 2080 Super FTW3 Ultra Gaming
RAM: Corsair Vengeance LPX 32GB (4x8GB) DDR4 PC4-28800C18 3600MHz Quad Channel Kit
PSU: Corsair AX850 Titanium 80 Plus Titanium Modular SSD: Samsung 970 PRO 512GB M.2 2280 PCI-e 3.0 x4 NVMe
-
- Besserwisser
- Póstar: 3174
- Skráði sig: Mið 07. Okt 2009 20:54
- Reputation: 546
- Staðsetning: ::1
- Staða: Ótengdur
Re: Black Friday "svindl"?
Á Íslandi þarf nefnilega sérstaklega að taka fram að verslun hafi ekki hækkað verð fyrir útsölu
Just do IT
√
√
Re: Black Friday "svindl"?
afhverju erum við íslendingar ekki löngu komnir með eitthvað í líkingu við idealo.de eða prisjakt.no
verðsögu síður
verðsögu síður
Re: Black Friday "svindl"?
Tölvutek fylgir hvorki lögum um útsölur og tilboð né lögum um neytendakaup. Ef það kemur ennþá einhverjum hérna ennþá á óvart þegar þeir brjóta á lögum þá kemur það mér hreinlega á óvart. Sorglegt að þetta fyrirtæki sé ennþá í rekstri og fáránlegt að það sé ennþá með rekstrarleyfi.
Ég sagði einu sinni þjónustustjóra hjá Tölvutek að hann væri að brjóta á lögum um neytendakaup og las upp fyrir hann viðeigandi grein. Svarið hans var að það "væri fáránlegt" og með fylgdi einhver kjánaleg skálduð saga sem átti eflaust að sannfæra mig um hversu ósanngjarnt það væri "ef" það væri svo--en neitaði samt að lesa það fyrir sjálfan sig að þetta væru landslög. Þar erum við líka ekki að tala um bara einhvern starfsmann í afgreiðslu, heldur þjónustustjóra, og þegar þeir svívirða lög þarf að segja eitthvað meira um menninguna í þessu fyrirtæki?
Þú varst líklega að verða fórnarlamb þess að Tölvutek hafi ekki fylgt annarri reglu Neytendastofu um útsölur eða aðra sölu þar sem selt er á lækkuðu verði:
--Í auglýsingum sem og á sölustað, þ.m.t. netverslun, skal tekið skýrt fram hvaða vörur eða þjónusta er seld á lækkuðu verði.
--Þegar vara eða þjónusta hefur verið seld á lækkuðu verði í sex vikur skal lækkað verð vera venjulegt verð.
Ég get lofað þér því að þetta væri ekki í fyrsta skipti sem Tölvutek fylgir ekki þessari reglu.

- spjallið.is
- Póstar: 498
- Skráði sig: Mán 04. Okt 2010 16:42
- Reputation: 3
- Staðsetning: 6° norðar en helvíti
- Staða: Ótengdur
Re: Black Friday "svindl"?
pepsico skrifaði:Tölvutek fylgir hvorki lögum um útsölur og tilboð né lögum um neytendakaup. Ef það kemur ennþá einhverjum hérna ennþá á óvart þegar þeir brjóta á lögum þá kemur það mér hreinlega á óvart. Sorglegt að þetta fyrirtæki sé ennþá í rekstri og fáránlegt að það sé ennþá með rekstrarleyfi.
... texti
Nú, keypti Origo (Nýjerji) Tölvutek var það ekki ? Ég get ekki ímyndað mér að þeir myndu líða svona, spurning um að beina kvörtunum beint þangað ?
Síðast breytt af fannar82 á Mán 25. Nóv 2019 21:39, breytt samtals 1 sinni.
(\/) (°,,°) (\/) WOOBwoobwoobwoob!
Re: Black Friday "svindl"?
Eru ekki sömu stjórnendur og voru áður hjá Tölvutek?
Sjá: " með aðkomu nokkurra starfsmanna Tölvuteks."
11.07.2019
Tölvutek, sem hætti starfsemi í sumar, mun taka til starfa að nýju á næstu vikum, en nýtt félag verður dótturfélag Origo, með aðkomu nokkurra starfsmanna Tölvuteks.
Sjá: " með aðkomu nokkurra starfsmanna Tölvuteks."
11.07.2019
Tölvutek, sem hætti starfsemi í sumar, mun taka til starfa að nýju á næstu vikum, en nýtt félag verður dótturfélag Origo, með aðkomu nokkurra starfsmanna Tölvuteks.
Re: Black Friday "svindl"?
Ég myndi segja að þetta væri mjög algengt hjá mjög mörgum verslunum á Íslandi og örugglega út um allan heim. Maður sér reglulega svona pósta eins og þennann.
-
- Nörd
- Póstar: 100
- Skráði sig: Mið 04. Feb 2015 22:45
- Reputation: 23
- Staðsetning: Grafavogur
- Staða: Ótengdur
Re: Black Friday "svindl"?
Sæll Gerbill. Á Singles Day fyrir 2 vikum var 11% afsláttur af öllum vörum í 24 klst, fyrir og eftir þann eina dag kostaði þessi vara 9.990 þar til núna á Black Friday viku, hjá okkur.
-
Höfundur - Vélbúnaðarníðingur
- Póstar: 324
- Skráði sig: Mán 22. Sep 2008 16:36
- Reputation: 3
- Staða: Ótengdur
Re: Black Friday "svindl"?
Roggo skrifaði:Sæll Gerbill. Á Singles Day fyrir 2 vikum var 11% afsláttur af öllum vörum í 24 klst, fyrir og eftir þann eina dag kostaði þessi vara 9.990 þar til núna á Black Friday viku, hjá okkur.
Ahh þú meinar, gerði mér ekki grein fyrir því, afsakið þennan misskilning.
-
- Nörd
- Póstar: 100
- Skráði sig: Mið 04. Feb 2015 22:45
- Reputation: 23
- Staðsetning: Grafavogur
- Staða: Ótengdur
Re: Black Friday "svindl"?
Gerbill skrifaði:Roggo skrifaði:Sæll Gerbill. Á Singles Day fyrir 2 vikum var 11% afsláttur af öllum vörum í 24 klst, fyrir og eftir þann eina dag kostaði þessi vara 9.990 þar til núna á Black Friday viku, hjá okkur.
Ahh þú meinar, gerði mér ekki grein fyrir því, afsakið þennan misskilning.
Ekkert mál, allt í lagi að vera með puttan á púlsinum
-
- </Snillingur>
- Póstar: 1085
- Skráði sig: Þri 25. Apr 2017 17:21
- Reputation: 91
- Staða: Ótengdur
Re: Black Friday "svindl"? - Ath misskilningur (sjá svar)
Sá einhverja neikvæða umfjöllun um að Black Friday tilboð væru feik. Það varð til þess að ég nennti minna að skoða Black Friday tilboð. Þannig að ef þetta er satt að Tölvutek t.d. séu að gera feik tilboð í rauninni fyrir Black Friday og þannig tilboðsviðburði, þá meiga þeir taka það til sín. Maður nennir ekkert að veita þessu athygli ef þetta eru tilboð sem eru bara uppspuni fyrir Black Friday. Þetta þurfa vera alvöru tilboð, þýðir ekki að hækka verð og lækka þau svo fyrir feik "afslátt".
-
- /dev/null
- Póstar: 1457
- Skráði sig: Sun 22. Nóv 2009 12:26
- Reputation: 163
- Staðsetning: Júpíter
- Staða: Ótengdur
Re: Black Friday "svindl"? - Ath misskilningur (sjá svar)
netkaffi skrifaði:Sá einhverja neikvæða umfjöllun um að Black Friday tilboð væru feik. Það varð til þess að ég nennti minna að skoða Black Friday tilboð. Þannig að ef þetta er satt að Tölvutek t.d. séu að gera feik tilboð í rauninni fyrir Black Friday og þannig tilboðsviðburði, þá meiga þeir taka það til sín. Maður nennir ekkert að veita þessu athygli ef þetta eru tilboð sem eru bara uppspuni fyrir Black Friday. Þetta þurfa vera alvöru tilboð, þýðir ekki að hækka verð og lækka þau svo fyrir feik "afslátt".
Lestu nú kommentin áður en þú ferð að úða eitthverri vitleysu út úr þér. Það er komin útskýring á þessu hérna í kommentum.
-
- </Snillingur>
- Póstar: 1085
- Skráði sig: Þri 25. Apr 2017 17:21
- Reputation: 91
- Staða: Ótengdur
Re: Black Friday "svindl"? - Ath misskilningur (sjá svar)
Vertu ekki með kjaft. Það er ekki tími til að lesa alla þræði hérna í gegn. Vertu ekki með kjaft og lærðu að fatta að svona geta menn bara séð þetta, er að gefa komment fyrir fyrirtækið það eru ekki allir þú
Var að segja frá því að Sá einhverja neikvæða umfjöllun um að Black Friday tilboð væru feik. Það varð til þess að ég nennti minna að skoða Black Friday tilboð. Heldurðu að einhver komment sem komu eftir því geti breytt því aftur í tímann? Djöfull ertu heimskur maður

- Stjórnandi
- Póstar: 16568
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Reputation: 2135
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Black Friday "svindl"? - Ath misskilningur (sjá svar)
netkaffi skrifaði:Vertu ekki með kjaft. Það er ekki tími til að lesa alla þræði hérna í gegn. Vertu ekki með kjaft og lærðu að fatta að svona geta menn bara séð þetta, er að gefa komment fyrir fyrirtækið það eru ekki allir þú
Var að segja frá því að Sá einhverja neikvæða umfjöllun um að Black Friday tilboð væru feik. Það varð til þess að ég nennti minna að skoða Black Friday tilboð. Heldurðu að einhver komment sem komu eftir því geti breytt því aftur í tímann? Djöfull ertu heimskur maður
Róa sig!
-
- </Snillingur>
- Póstar: 1085
- Skráði sig: Þri 25. Apr 2017 17:21
- Reputation: 91
- Staða: Ótengdur
Re: Black Friday "svindl"? - Ath misskilningur (sjá svar)
Lexxinn skrifaði:Lestu nú kommentin áður en þú ferð að úða eitthverri vitleysu út úr þér.
Ég er bara að svara því að hann svaraði mér í dónaskap, þ.e. "úða eitthverri vitleysu út úr þér," nákvæmlega þegar ég sagði enga vitleysu. Ég sagði bara satt og rétt frá, fyrir einhverjum tíma síðan (ca. 25. Nóvember) þá sá ég þessa Black Friday umræðu og það varð til þess að ég hafði minna traust á tölvubúðum með tilboðin. : (
-
- /dev/null
- Póstar: 1457
- Skráði sig: Sun 22. Nóv 2009 12:26
- Reputation: 163
- Staðsetning: Júpíter
- Staða: Ótengdur
Re: Black Friday "svindl"? - Ath misskilningur (sjá svar)
netkaffi skrifaði:Það er ekki tími til að lesa alla þræði hérna í gegn. Vertu ekki með kjaft og lærðu að fatta að svona geta menn bara séð þetta, er að gefa komment fyrir fyrirtækið það eru ekki allir þú
Ef þú ætlar að taka þátt í umræðunni er eiginlega ætlast til að fólk sé búið að kynna sér fyrri comment - sérstaklega þar sem "Ath misskilningur (sjá svar)" er komið í titil þráðsins þegar þú byrjar að comment.
Þú segir sjálfur í fyrsta commenti;
netkaffi skrifaði:Þannig að ef þetta er satt að Tölvutek t.d. séu að gera feik tilboð í rauninni fyrir Black Friday og þannig tilboðsviðburði, þá meiga þeir taka það til sín.
Því var svarað í síðasta commenti á undan þér með orðunum;
Roggo skrifaði:Sæll Gerbill. Á Singles Day fyrir 2 vikum var 11% afsláttur af öllum vörum í 24 klst, fyrir og eftir þann eina dag kostaði þessi vara 9.990 þar til núna á Black Friday viku, hjá okkur.
Ef fyrirtæki/starfsmenn fyrirtækja eru búnir að hafa fyrir því að svara fyrir slíkar vangaveltur og með fullkomlega skiljanlegri ástæðu er ekki mikil ástæða til að véfengja það enn frekar og halda áfram að úthúða fyrirtækinu sem slíku.
Einnig er minnst ofar í þræðinum á að Origo væri nýbúið að taka yfir rekstri á Tölvutek og því væri enn ólíklegra að eitthvað svindl ætti sér stað. 3 stærstu útsöludagar á heimsmælikvarða eru þarna þjappaðir saman á innan við 2 vikur og eðlilega getur eitthvað verð gleymst að leiðrétta á milli þessara daga.
-
- </Snillingur>
- Póstar: 1085
- Skráði sig: Þri 25. Apr 2017 17:21
- Reputation: 91
- Staða: Ótengdur
Re: Black Friday "svindl"? - Ath misskilningur (sjá svar)
Það er ákveðin tímaröð í raunveruleikanum. Þetta gerðist fyrir liðinni tíð. Ég póstaði bara um í dag að þetta hefði haft þessi áhrif þá. Gott ef það reyndist að þetta væri misskilningur. En þetta hafði þessi áhrif um daginn ásamt annari umræðu. Ég er bara dúddi úti í bæ og umræður hérna í fleiri en einum þræði hafa haft áhrif á hvernig maður sér Tölvutek.
En ég sagði nú "t.d.," var það ekki?
En ég sagði nú "t.d.," var það ekki?
Re: Black Friday "svindl"? - Ath misskilningur (sjá svar)
Þegar maður er kominn ofan í holu .... þá er bara að ná í stærri skóflu ?
-
- </Snillingur>
- Póstar: 1085
- Skráði sig: Þri 25. Apr 2017 17:21
- Reputation: 91
- Staða: Ótengdur
Re: Black Friday "svindl"? - Ath misskilningur (sjá svar)
Ég nefnilega var ekki kominn ofan í neina holu ef þú átt við mig. Ég sagði frá einhverju sem gerðist, umræðan hérna hafði áhrif á hvernig á sá Black Friday á þeim tíma. Hinn notandinn hérna stökk ofan á nefið á sér. Meiri pésarnir sem eru oft að pósta hérna. Skapa skít þar sem enginn þarf að vera og bakka hvern annan upp fær maður á tilfinninguna. Það fær því ekkkert breytt einhver komment sem komu seinna hvað gerðist í fortíðinni, er þetta eitthvað flókið?