Pósturaf Stuffz » Lau 07. Apr 2018 13:17
arons4 skrifaði:Netið hjá mér hækkaði um 11kr... en á móti þá lækkaði síminn um 1000kall og fór úr 15gb -> 100gb og ég þurfti ekki að gera neitt
Hérna í gamla daga hjá símanum eftir að það voru komnar nýjar áskrifaleiðir á markað sem voru á allan hátt betri en gömlu þurfti maður alltaf hringja að óska eftir breytingu.
IMO Margir af kúnnum símans voru bara arfleifðin frá tíma "Pósts og Síma" t.d. eldri borgarar sem hafa aldrei vanist því að þurfa að breyta um síma fyrirtæki, svona innmúraðir í kerfinu eins og óvirkur meðlimur í þjóðkirkjunni
svo það var engin þörf fyrir símann í upphafi en að chilla og reka bara lestina og framkvæma allar breytingar seint og síðarmeir, en þegar þeir fara að fatta að þeir eru ekki að fá eins mikið nýja kúnna/yngri notendur og að eldri notendunum fækkar vegna náttúrufræðilegra þátta (líf deyr) þá gengur ekki fyrir þá lengur að lifa á fornri frægð þeir þurfa að vera samkeppnishæfir gera breytingar í tíma og þannig höfða betur til fólks sem veit það hefur val svo það fari ekki annað, Nú reyna þessir aðilar að festa mann í kóngulóavef margþættrar þjónustu, með eitthvern stóran afslátt á stökum þætti eins og hellings meira gagnamagn fyrir farsímann sem maður þarf í raun ekki.
sjálfur var ég hjá símanum þar til fyrir ári, borgandi þá um 16þús, var 8-9þús þegar ég byrjaði hjá þeim nokkrum árum áður. (verið hjá íslandssíma, HIVE og vodafone líka í gegnum tíðina) ég sagði upp heima símanum -2.5 þús og fór yfir til Hringdu í næsta húsi og byrjaði að borga 8þús, lítið breyst síðan. þurfti ekki sjónvarp símans, horfði bara á fréttir á rúv í mesta lagi, Rúv app á android TV leysir það mál og afgangurinn af síma þjónustunni var óþarfa uppfyllingarefni.
Intel NUC Hades Canyon 8Tb NVME +8Tb SSD +80Tb HDD, Nvidia Shield Android TV, Xbox Series X, Xiaomi 4K Projector
CAMS: Insta360 X3, X4, FLOW, GO, ACE Pro, Skydio 2. Rafskjótar: E-20, KS-16S, KS-S22, EB Commander
Búnaður: Lazyrolling Armored Jacket, Alpha Motorsport-pants, TSG Pass Pro, Fox Proframe
187 KP Wrist Guards, Leatt Dual-Axis, Kinetic DL EUC Shoes, P65 BOBLBEE Backpack