Lexxinn skrifaði:linenoise skrifaði:Ég að besserwizza.
Vóóóó hvaða bezzerwizzer er mættur, "ungt fólk hugsar ekki raunsætt um framtíðina"?
Ég hef það á tilfinningunni að þú hafir ekki nógu mikla reynslu nú til dags af umgengni við fólk á aldrinum 16-24 ára. Sjálfur er ég 21 árs í námi. Allir vinir mínir og nákomnir sem hafa valið sér láglaunastörf á við kennarann, sjúkraþjálfara eða slíkt gera sér fullkomlega grein fyrir laununum. Þetta fólk hefur það sameiginlegt að hafa ákveðna skoðun á því hvað það vill gera í framtíðinni og stefnir þar af leiðandi að því.
[klippt]
Ég geri mér fullkomlega grein fyrir því hvað það kostar að reka heimili og hverjir framtíðarkostir mínir eru eins og flest allir nákomnir mér sem ég hef rætt við um námið þeirra.
Sko, ég þekki alveg smá af fólki á þessum aldri í skóla. Allt það fólk sem ég þekki á þessum aldri býr hjá foreldrum sínum. Þeir sem búa hjá foreldrum sínum hafa núll hugmynd um hvað það kostar að búa því þau hafa aldrei reynt það.
Ég þekki líka fullt af fólki yfir þrítugu sem valdi sér láglaunastörf út frá áhuga og er langt frá því að ná endum saman. Þeir sem ná endum saman eiga maka í hálaunastarfi eða búa heima hjá mömmu og pabba eða eru barnlaus og leigja herbergi. Systir mín er einstæður kennari og hefur verið það lengi. Hún lifir
mjög spart, en þarf reyndar að eiga bíl. Hún nær endum saman með því að leigja út barnaherbergið á Airbnb, nánast viðstöðulaust. Hún gengur líka oft úr húsi og gistir hjá mömmu til að leigja út alla íbúðina.
Og svona svo það sé á hreinu. Ég er ALLS EKKI að hvetja fólk til að fara í eitthvað sem það hefur ekki áhuga á. Ég er að gagnrýna kjör láglaunastétta.