"ESB stækki ekki næstu fimm árin"

Allt utan efnis
Skjámynd

urban
Stjórnandi
Póstar: 3750
Skráði sig: Mán 06. Des 2004 01:26
Reputation: 474
Staðsetning: Undir hægra megin
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: "ESB stækki ekki næstu fimm árin"

Pósturaf urban » Fim 17. Júl 2014 20:04

biturk skrifaði:Krónan mun rísa og hefur alla burði til þess um leið og menn binda enda á þetta esb rugl svo það sé hægt að einbeita sér að henni og byggja landið sjálft upp

Hvað hefuru fyrir þér í því ?
afhverju ætti krónan að rísa eitthvað að ráði ?
síðast þegar að króna styrktist þá var það gerfi styrking útbúin af bönkum.

Ok gefum okkur það að krónan styrkist, hversu lengi ætti það að duga ?
krónan er 99,99% veikari en hún var eftir seinni heimsstyrjöld, afhverju ætti þetta ferli að snúast við ?

biturk skrifaði:Til dæmis meðann esb liggur yfir okkur eins og súr þokuslæða þá er landbúnaðurinn í algerri óvissu og stór hluto bænda þorir ekki að fjárfesta því ef okkur er nauðgað í esb fer landbúnaðurinn á hliðina og þúsundir verða atvinnulausir....og þá er bara talað um bændur en ekki tengdar atvinnugreinar eins og sláturhús, kjötvinnslur, búðir með landbunaðarvorur, vélasõlur og svo lengi má telja


Hvaðan hefuru þessar upplýsingar ?
þar sem að núna undanfarin ár hafa fjárfestingar legið niðri í hérumbil öllum atvinnugreinum, tengist ESB einfaldlega ekki neitt.


biturk skrifaði:Þar að auki missum við ráð yfir sjávarauðlindum


Hvaðan hefuru þessar upplýsingar ?
þar sem að síðast þegar að ég vissi var sjávarútvegurinn í heildsinni algerlega ósamið um.

biturk skrifaði:og það sést best á framkomunni sem við fengum í makríldeilunni

Hefði ekki einmitt verið fínt að vera ekki að reyna að vera á móti ESB ?
það var ESB sem að var að semja, semja við ríki sem að er EKKI í ESB,


biturk skrifaði:Það þarf bara ekkert að rífast um þetta, það fer enginn heilvita maður að ganga í samband sem er að springa í tætlur


Hvaðan hefur þær upplýsingar að ESB sé að "springa í tætlur"

ætlaru kannski næst að segja okkur að við missum sjálfstæðið líka ?

biturk skrifaði:Ég hef ekki áhuga á rífast um þetta og ég vona að ríkisstjórnin geri það sem hún var kosin til og endi þennan skrípaleik í eitt skipti fyrir öll


Já það hefði nú verið flott ef að þessi ríkisstjórn gerði það sem að hún var kosin til að gera.
www.xd.is skrifaði:Sjálfstæðisflokkurinn telur hagmunum Íslands betur borgið utan Evrópusambandsins en innan. Sjálfstæðisflokkurinn telur að leggja skuli áherslu á nýja fríverslunarsamninga við helstu ríki veraldar og traust samskipti við ESB á grundvelli EES-samningsins eins og gert er í dag. Kjósendur ákveði í þjóðaratkvæðagreiðslu hvort aðildarviðræðum skuli haldið áfram.


Með því að láta kjósa um þetta, þá fyrst hefði verið hægt að enda þetta, það er, ef að meirhluti þjóðarinnar hefði viljað það.

Því miður,en þá ert þú annsi gott dæmi um sjálfskipaðan sérfræðing.
kemur með "staðreyndir" sem að er einfaldlega ekkert á bakvið og engan vegin hægt að staðfesta.


Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !


bigggan
spjallið.is
Póstar: 456
Skráði sig: Fim 05. Maí 2011 17:43
Reputation: 34
Staða: Ótengdur

Re: "ESB stækki ekki næstu fimm árin"

Pósturaf bigggan » Fim 17. Júl 2014 20:53

biturk skrifaði:Þar að auki missum við ráð yfir sjávarauðlindum og það sést best á framkomunni sem við fengum í makríldeilunni og þá verða enn fleiri atvinnulausor tengt sjávariðnaði og við missum þekkingu, hæfni og almennt vinnuafl


Þetta er bara rangt, kvótarnir og sjávarauðlindirnir verða ennþá i eigu íslenska rikis, en þau verða i útboði á Evrópumarkaðinum, íslensk fyrirtæki geta keyft kvótann eins og hinir geta lika gert, samkeppninni verður meira og rettlátara, og íslensk fyritæki fá lika að auki leyfi að kaupa kvótar i öðrum ESB löndum.