Tveir grímuklæddir þjófar brutust inn í tölvuverslun í Kópavogi í nótt og stálu þaðan töluverðum verðmætum og komust undan.
Þeir brutu rúðu í versluninni til að komast inn og á upptökum úr eftirlitsmyndavélum sjást þeir láta greipar sópa um verslunina. Lögregla er nú að skoða upptökurnar nánar.
Brotist var inn í þrjár tölvuverslanir á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku og eru þau mál enn óupplýst.
Jæja er þetta einhverjar búðir sem við þekkjum?