Buy.is komnir með verðvernd á PC íhluti ?

Allt utan efnis
Skjámynd

Höfundur
Glazier
BMW
Póstar: 2511
Skráði sig: Fös 30. Jan 2009 22:20
Reputation: 14
Staðsetning: Mosó
Staða: Ótengdur

Buy.is komnir með verðvernd á PC íhluti ?

Pósturaf Glazier » Lau 04. Des 2010 02:30

Eitthvað nýtt að buy.is séu komnir með verðvernd á PC íhluti og annan tölvubúnað ? :S
Eða er ég bara svona seinn að taka eftir ? :roll:

Segja hérna:
http://buy.is/category.php?id_category=21

"Athugið að Buy.is býður verðvernd á tölvuíhlutum - sendið endilega tölvupóst á sala(at)buy.is ef þið sjáið lægra verð auglýst annarsstaðar og við lækkum þá okkar verð."

Þýðir þetta að maður verði að benda á að hluturinn sé ódýrari annarstaðar áður en maður verslar hann ?
Eða getur maður komið ef maður sér hlutinn sem maður keypti hjá buy.is 2.000 kr. ódýrari annarstaðar 1 viku seinna og fengið endurgreitt, hvernig er það? :)


Tölvan mín er ekki lengur töff.

Skjámynd

Frantic
FanBoy
Póstar: 797
Skráði sig: Mið 04. Mar 2009 17:43
Reputation: 6
Staða: Ótengdur

Re: Buy.is komnir með verðvernd á PC íhluti ?

Pósturaf Frantic » Lau 04. Des 2010 02:39

Ég myndi halda að þú yrðir að láta vita áður svo þú getir ekki komið ári seinna og sagt að hlutirinn hafi lækkað í verði og ættir að fá endurgreitt vegna þess.
Það allavega meikar mest sens. :)



Skjámynd

Höfundur
Glazier
BMW
Póstar: 2511
Skráði sig: Fös 30. Jan 2009 22:20
Reputation: 14
Staðsetning: Mosó
Staða: Ótengdur

Re: Buy.is komnir með verðvernd á PC íhluti ?

Pósturaf Glazier » Lau 04. Des 2010 02:42

Tjaa, er/var ekki verðverndin hjá Elko þannig að maður gat/getur komið innan 30 daga ef maður sá/sér sömu vöru auglýsta annarstaðar á minna verði en maður sjálfur borgaði fyrir hana ?
Bara pæling..


Tölvan mín er ekki lengur töff.


vesley
Kóngur
Póstar: 4257
Skráði sig: Mán 08. Sep 2008 19:39
Reputation: 192
Staðsetning: við talvuna
Staða: Ótengdur

Re: Buy.is komnir með verðvernd á PC íhluti ?

Pósturaf vesley » Lau 04. Des 2010 03:09

Það er 14.daga skilaréttur á vörum hjá Buy.is hinsvegar stendur ekkert um ákveðinn tíma á verðvernd eftir kaup á vöru.

Prufaðu bara að senda póst á Friðjón eða sala @buy.is og spyrðu nánar út í þetta,
eina sem ég veit í augnablikinu er í miðjum prófum :lol: .



Skjámynd

Höfundur
Glazier
BMW
Póstar: 2511
Skráði sig: Fös 30. Jan 2009 22:20
Reputation: 14
Staðsetning: Mosó
Staða: Ótengdur

Re: Buy.is komnir með verðvernd á PC íhluti ?

Pósturaf Glazier » Sun 05. Des 2010 18:04

vesley skrifaði:Það er 14.daga skilaréttur á vörum hjá Buy.is

Og er þá endurgreitt eða fær maður nótu ?


Tölvan mín er ekki lengur töff.

Skjámynd

Hargo
</Snillingur>
Póstar: 1068
Skráði sig: Mið 13. Ágú 2008 02:18
Reputation: 12
Staða: Ótengdur

Re: Buy.is komnir með verðvernd á PC íhluti ?

Pósturaf Hargo » Sun 05. Des 2010 18:07

Glazier skrifaði:Tjaa, er/var ekki verðverndin hjá Elko þannig að maður gat/getur komið innan 30 daga ef maður sá/sér sömu vöru auglýsta annarstaðar á minna verði en maður sjálfur borgaði fyrir hana ?
Bara pæling..


Jú verðverndin er þannig hjá Elko. Ég fékk einmitt 35þús kall endurgreiddan vikuna eftir að ég keypti mér nýtt sjónvarp hjá þeim. Var vel sáttur við það \:D/

Þessi verðvernd hjá buy.is hlýtur að vera með svipuðu sniði - væri þó gott að fá það á hreint hversu lengi hún gildir eftir að varan er keypt.



Skjámynd

Daz
Besserwisser
Póstar: 3833
Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
Reputation: 149
Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
Staða: Ótengdur

Re: Buy.is komnir með verðvernd á PC íhluti ?

Pósturaf Daz » Sun 05. Des 2010 20:29

Verðvernd er ekki fyrirframskilgreint hugtak. Ef einhver réttur kemur ekki skýrt fram í skilmálum (eða er lögverndaður), þá er hann ekki til staðar. Miðað við þessa klásúlu hjá buy.is myndi ég efast um að þeir endurgreiði eftirá.



Skjámynd

FBG
Bannaður
Póstar: 289
Skráði sig: Fös 13. Nóv 2009 21:31
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Buy.is komnir með verðvernd á PC íhluti ?

Pósturaf FBG » Þri 07. Des 2010 19:38



Verðvernd hjá Buy.is er tiltölulega nýtilkomið hjá okkur.

Ef þú finnur PC vöru sem við seljum á lægra verði hjá öðrum söluaðila á Íslandi, þá bendirðu okkur á það og við lækkum verðið. Við erum því að segja við neytendur að við ætlum okkur alltaf að vera með lægsta verðið. Þetta er hinsvegar ekki afturvirkt hjá okkur.

Við treystum því að okkar kúnnar geri verðsamanburð og láti okkur vita ef við erum með of há verð í einhverjum tilvikum. Þá er því kippt í liðinn snögglega.

Ég veit ekki hvort Vaktarar hafa tekið eftir því en síðan Buy.is hóf starfssemi, hefur vöruverð á íhlutum og raftækjum almennt lækkað hressilega og samkeppnin aukist. Sjálfshælni er ekki dyggð nei, en ofsalega skemmtileg þegar vel á við.


MBK
Friðjón

Skjámynd

Jimmy
FanBoy
Póstar: 720
Skráði sig: Fös 29. Jan 2010 21:50
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

Re: Buy.is komnir með verðvernd á PC íhluti ?

Pósturaf Jimmy » Þri 07. Des 2010 20:35

FBG skrifaði:Ég veit ekki hvort Vaktarar hafa tekið eftir því en síðan Buy.is hóf starfssemi, hefur vöruverð á íhlutum og raftækjum almennt lækkað hressilega og samkeppnin aukist. Sjálfshælni er ekki dyggð nei, en ofsalega skemmtileg þegar vel á við.


Hef tekið eftir þessu, búnir að hrista ágætlega í þessum markaði sem var farinn að staðna eilítið, eigið skilið mikið props fyrir það.


~