Síða 1 af 1
Útiseríur sem endast
Sent: Fim 31. Okt 2024 19:54
af Viktor
Er þetta til?
Re: Útiseríur sem endast
Sent: Fim 31. Okt 2024 20:14
af Njall_L
Ég hef mjög fína reynslu af FROST útiseríunum úr Húsasmiðjunni, er með
þessa hérna.
Kapalinn er frekar mjúkur og þetta virkar sem ágætlega smíðað en ekki hægt að skipta um perur, allt steypt LED. Er búinn að vera með nokkrar lengjur sem eru að fara upp í fimmta skiptið og ennþá ekkert vesen.
Setti upp ryðfría króka í þakskyggnið hjá mér þar sem er einn krókur fyrir hverja peru svo það er lítið mál að setja upp og taka niður, ímynda mér líka að með þannig uppsetningu sé sem minnst álag á öllu og því vonandi minni líkur á að þetta skemmist.
Re: Útiseríur sem endast
Sent: Fim 31. Okt 2024 20:16
af jericho
x2 á það sem Njall_L sagði
Re: Útiseríur sem endast
Sent: Fös 01. Nóv 2024 10:51
af rostungurinn77
Byko er með sambærilegar seríur við FROST.
Man ekki hvað þær heita. Selt í 10m einingum sem má skeyta saman í lengri seríur.
Krókar á endunum á perunum.
Geri ráð fyrir að þetta sé allt mjög sambærilegt.
Re: Útiseríur sem endast
Sent: Lau 02. Nóv 2024 09:18
af neclomar
Ég er búinn að vera með frost í sennilega 5 ár ef ekki lengur. Er með báðar týpurnar (steyptar og útskiptanlegar perur), mæli heilshugar með. Ég er í einbýli með um 200 metra allt á einni kló (hús, svalir, grindverk, frístandandi bílskúr. Það er líka mikill kostur, hægt að fá allskonar T-stykki, 1 í 3 snúrur og svo framlengingar. Þetta eru fínar vörur, en helst til dýrar. Ég keypti þetta á nokkrum árum, bætti við hægt og róglega. Sá umræðu í fyrra á facebook að það væri hægt að kaupa þessar "frost" vörur á aliexpress. En man ekki hvar umræðan var.
Anyways, hef bara góða reynslu af Frost frá húsasmiðunni.
Re: Útiseríur sem endast
Sent: Lau 02. Nóv 2024 13:01
af GuðjónR
Viktor skrifaði:Er þetta til?
Fer eftir því hvar þú býrð...
Fáar seríur sem þola rigningu í 50m/sec.
Re: Útiseríur sem endast
Sent: Sun 03. Nóv 2024 01:35
af g0tlife
Keypti seríur í Costco fyrir 4 árum síðan. 6 stk sem hægt er að festa saman eina mjög langa. Hef verið að vefja þær utan um eitt stórt tré og fá mikið högg á sig þegar maður er að rífa þetta af eftir veturinn og þær eru allar 100%.
Re: Útiseríur sem endast
Sent: Sun 03. Nóv 2024 11:38
af osek27
Njall_L skrifaði:Ég hef mjög fína reynslu af FROST útiseríunum úr Húsasmiðjunni, er með
þessa hérna.
Kapalinn er frekar mjúkur og þetta virkar sem ágætlega smíðað en ekki hægt að skipta um perur, allt steypt LED. Er búinn að vera með nokkrar lengjur sem eru að fara upp í fimmta skiptið og ennþá ekkert vesen.
Setti upp ryðfría króka í þakskyggnið hjá mér þar sem er einn krókur fyrir hverja peru svo það er lítið mál að setja upp og taka niður, ímynda mér líka að með þannig uppsetningu sé sem minnst álag á öllu og því vonandi minni líkur á að þetta skemmist.
Við notum þessar seríur á skautasvellinu á Ingólfstorgi og sjáldan sem það þurfti að skipta um þær. Nánast allar notaðar ár eftir ár
Re: Útiseríur sem endast
Sent: Sun 03. Nóv 2024 12:49
af Black
Hef verið með Frost seríur frá Húsa og þær eru að koma mjög vel út, bjó til hlíf og 3D prentaði fyrir samtengið á henni til að hlífa fyrir rigningu og snjó
https://www.printables.com/model/104544 ... -connector
Re: Útiseríur sem endast
Sent: Sun 03. Nóv 2024 15:22
af Viktor
20 led ljós á 12.000 kr.
Það gerir 600 kr. peran
Þá fer ég nú frekar í IKEA og kaupi nýja á hverju ári þar sem peran kostar 10 kr.
https://ikea.is/is/products/jolavorur/a ... t-60582496