Síða 1 af 1

Vinklar

Sent: Fim 29. Ágú 2024 01:00
af himminn
Mig vantar stál vinkla sem svipa til þessa sem er á myndinni, en í stað þess að vera með sérstökum boltagötum þyrfti að vera "renna" þannig ég gæti fært vinkilinn eftir að hann er festur. Hvert væri best að snúa sér í svona leit? Stærðin þyrfti að vera á bilinu 100-140mm og í lengd, ekki meira en 50mm á breidd og dýptin kannski 30-50mm.

Mynd

Re: Vinklar

Sent: Fim 29. Ágú 2024 01:03
af himminn
Þetta er í raun nákvæmlega það sem mig vantar, bara á Íslandi, og ef ég á að vera harður þá væri Akureyri draumastaðsetning til að finna þetta

Mynd

Re: Vinklar

Sent: Fim 29. Ágú 2024 12:28
af kimpossible
Ísól eru öflugir í svona…

Re: Vinklar

Sent: Fim 29. Ágú 2024 12:43
af GullMoli
Ferð í umbúðarlaust hjá IKEA og spyrð um veggfestingu fyrir Billy bókaskápinn. Annars einmitt ÍSÓL, Fossberg, jafnvel BYKO og Húsasmiðjan.

Screenshot 2024-08-29 at 12.41.45.png
Screenshot 2024-08-29 at 12.41.45.png (75.26 KiB) Skoðað 833 sinnum