Ég fór í GT akademíuna um daginn og mæli með því að allir prófi þetta. http://www.gta.is
Fékk algjöra dellu fyrir þessu og ætla að smíða budget kappaksturshermi. Er að smala saman hlutum sem mig vantar. Þetta er dálítið dýrt svo ef einhver er með góðar hugmyndir eða vill gefa eitthvað sem liggur ofan í skúffum væri það vel þegið.
Ég er búinn að panta ýmislegt á eBay og keypti rúðuþurrkumótora úr BMW E46 til að prófa.
Ætla að leyfa ykkur að fylgjast með
Hlutir sem mig vantar: Léttan stól 3x 24" / 27" eða stærri jafn stórir skjáir Ál / Stál / Timbur fyrir grind Móðuborð + CPU + RAM + GPU + Tölvukassa
Búið að kaupa eða panta: Logitech G29 stýri og gírstöng Arduino + Motor driver 12V DC mótorar + staðsetningarskynjarar 12V DC 30A aflgjafar
Re: Smíði á "budget" kappaksturshermi
Sent: Fim 08. Ágú 2019 12:08
af chaplin
Subscribe á þetta! Djöfull gæti þetta orðið flott verkefni!
Re: Smíði á "budget" kappaksturshermi
Sent: Fim 08. Ágú 2019 12:09
af GuðjónR
Góður! Elska svona all-in-nerism!
Re: Smíði á "budget" kappaksturshermi
Sent: Fim 08. Ágú 2019 12:10
af Hjaltiatla
Áhugavert.
Þarftu ekki að bæta á "Hlutir sem mig vantar" listann "Skjáir" ?
Re: Smíði á "budget" kappaksturshermi
Sent: Fim 08. Ágú 2019 13:39
af gnarr
Hvað með að nota VR frekar en skjái?
Re: Smíði á "budget" kappaksturshermi
Sent: Fös 09. Ágú 2019 12:39
af mikkimás
Endilega leyfa okkur að fylgjast með.
Gaman af svona delluverkefnum sem ómögulegt er að réttlæta.
Re: Smíði á "budget" kappaksturshermi
Sent: Sun 11. Ágú 2019 11:21
af Viktor
Fann þennan fína "racing" stól fyrir 5000 kr. á Bland til að nota í þetta. Saga fótinn af og nota base-ið og smíða grind í kringum það.
Bíð spenntur eftir mótorstýringunni af eBay.
chaplin skrifaði:Subscribe á þetta! Djöfull gæti þetta orðið flott verkefni!
Þarftu ekki að bæta á "Hlutir sem mig vantar" listann "Skjáir" ?
Takk, setti inn.
gnarr skrifaði:Hvað með að nota VR frekar en skjái?
Já, um leið og ég vinn í víkingalottóinu Þetta er alveg nógu dýr vitleysa nú þegar
mikkimás skrifaði:Endilega leyfa okkur að fylgjast með.
Gaman af svona delluverkefnum sem ómögulegt er að réttlæta.
Sammála!
Re: Smíði á "budget" kappaksturshermi
Sent: Sun 11. Ágú 2019 12:41
af zedro
Sallarólegur skrifaði:
gnarr skrifaði:Hvað með að nota VR frekar en skjái?
Já, um leið og ég vinn í víkingalottóinu Þetta er alveg nógu dýr vitleysa nú þegar
Sko ef þú ætlar að nota alvöru skjái þá gæti á endanum orðið ódýrara að kaupa eitthvað VR headsett. Held ég hafi séð Rift á 25k á Vaktinni. Auk þess sem upplifuninn verður margfalt meiri fyrir vikið
Re: Smíði á "budget" kappaksturshermi
Sent: Sun 11. Ágú 2019 14:33
af DJOli
Hví að nota tölvustól í stað bílstjóra/farþegasætis úr alvöru bíl?
Re: Smíði á "budget" kappaksturshermi
Sent: Sun 11. Ágú 2019 14:49
af mercury
flott verkefni. hlakka til að sjá hvernig þetta kemur út !