Síða 1 af 1
Áfylling á A/C kerfi
Sent: Mán 08. Júl 2024 16:06
af Prentarakallinn
Góðan daginn, er með eitt stykki 2005 Corolla sem þarf á/c áfyllingu. Búinn að hringja í alla sem auglýsa þessa þjónustu og hef fengið boð frá 32k og alveg upp í 100k. Þá spyr ég hvert hafið þið verið að fara og er kannski einhver hérna sé gæti reddað mér inn einhverstaðar fyrir föstudag?
Re: Áfylling á A/C kerfi
Sent: Mán 08. Júl 2024 16:41
af ABss
Vó. Ég fór á sínum tíma í Frost, að mig minnir. Það kostaði kannski 15-20þ að fylla á kerfið. 3-4 ár síðan.
Re: Áfylling á A/C kerfi
Sent: Mán 08. Júl 2024 17:45
af Starman
Re: Áfylling á A/C kerfi
Sent: Mán 08. Júl 2024 19:54
af jonsig
Úff gamall bíll. Kælimiðillinn sem var á honum upprunalega er örugglega bannaður í dag.
Re: Áfylling á A/C kerfi
Sent: Mán 08. Júl 2024 20:40
af Prentarakallinn
jonsig skrifaði:Úff gamall bíll. Kælimiðillinn sem var á honum upprunalega er örugglega bannaður í dag.
Sögðust allir geta gert þetta
Re: Áfylling á A/C kerfi
Sent: Mán 08. Júl 2024 21:53
af jonsig
Já, færð samt ekki upprunalega umph-ið. Því miður.
Re: Áfylling á A/C kerfi
Sent: Mán 08. Júl 2024 23:13
af ekkert
Toyota Corolla AC árgerð 2000 notaði R-134a og það sama virðist gilda næsta áratuginn. R-134a fellur
ekki undir áfyllingabann og hægt að kaupa á landinu, t.d. í
Stillingu.
Re: Áfylling á A/C kerfi
Sent: Mán 08. Júl 2024 23:59
af RassiPrump
Mikið af eldri bílum voru/eru með R134a þannig að engar áhyggjur með það, svo eru nýrri bílar með R1234YF eða jafnvel þeir nýjustu með kolsýru (CO2), til dæmis Skoda Eniyaq.
Ísfrost allan daginn, þeir eru bestir.
Re: Áfylling á A/C kerfi
Sent: Þri 09. Júl 2024 00:22
af Prentarakallinn
jonsig skrifaði:Já, færð samt ekki upprunalega umph-ið. Því miður.
Það er 0 umph í því núna, allt er betra en ekkert
Re: Áfylling á A/C kerfi
Sent: Þri 09. Júl 2024 08:04
af jonsig
Prentarakallinn skrifaði:jonsig skrifaði:Já, færð samt ekki upprunalega umph-ið. Því miður.
Það er 0 umph í því núna, allt er betra en ekkert
Ekki ef það er "0" ertu ekki að meina eins og kannski 0.3 ?
En respect frá mér að reyna halda lífi i gömlum hlutum.
Re: Áfylling á A/C kerfi
Sent: Þri 09. Júl 2024 11:27
af Prentarakallinn
jonsig skrifaði:Prentarakallinn skrifaði:jonsig skrifaði:Já, færð samt ekki upprunalega umph-ið. Því miður.
Það er 0 umph í því núna, allt er betra en ekkert
Ekki ef það er "0" ertu ekki að meina eins og kannski 0.3 ?
En respect frá mér að reyna halda lífi i gömlum hlutum.
Það er smá virkni, dettur inn og út. Fróðir menn segja að það sé því það er ekki nægir þrýstingur á kerfinu
Re: Áfylling á A/C kerfi
Sent: Þri 09. Júl 2024 12:08
af slapi
Þetta er ekki kælimiðilinn heldur er þetta smurolían í kerfin
R134a er hægt að kaupa hjá Gastec t.d. en það þarf græjur til að setja þetta á.
Re: Áfylling á A/C kerfi
Sent: Þri 09. Júl 2024 20:32
af jonsig
Einhverntíman var sagt við mann að oft er tómt gasið á kerfinu bara bilun nr.2
Kannski er þetta alltaf svona dýrt útaf því að það er alltaf einhver bilunarleit ?
Re: Áfylling á A/C kerfi
Sent: Mið 10. Júl 2024 07:42
af thor12
jonsig skrifaði:Einhverntíman var sagt við mann að oft er tómt gasið á kerfinu bara bilun nr.2
Kannski er þetta alltaf svona dýrt útaf því að það er alltaf einhver bilunarleit ?
Það þarf að byrja á því að tryggja að enginn leki sé á kerfinu áður en það er fyllt. Svo er R134a og R1234yf mjög dýrt gas, R1234yf er þó töluvert dýrara.