Eitthvað sérstakt sem maður þarf að vara sig á við að kaupa notaða bíla?
Sent: Lau 04. Maí 2024 03:24
af netkaffi
Auðvitað að hann sé ekki bilaður eða að fara bila, nema það sé sagt frá. Hvað gerir maður ef það er eitthvað að sem var ekki sagt frá, er erfitt að leita réttar? Eða á maður rétt? Ég veit að það er öruggara að bíllinn sé nýlega eða nýskoðaður, þá ætti flest að koma fram sem gæti verið að.
Ég er að leita eftir að kaupa sendiferðabíl, til að breyta í camper (ferðagistingu eins og túristar eru alltaf á) ef einhver er að sela eða er með tips sérstaklega fyrir það.
Re: Eitthvað sérstakt sem maður þarf að vara sig á við að kaupa notaða bíla?
Sent: Lau 04. Maí 2024 08:57
af Frussi
Þú hefur nánast engan rétt sem kaupandi ef eitthvað kemur upp eftir sölu. Skoðunarskylda kaupanda er mjög skýr. Það er best að biðja um að fara með bíl sem þér lýst vel á í söluskoðun, bæði verkstæði og skoðunarstöðvarnar geta gert það fyrir þig.
Annars er fínt að biðja bílanördafrænda/frænku/vin/kunningja um að kíkja með þér á bílinn
Gangi þér vel!
Re: Eitthvað sérstakt sem maður þarf að vara sig á við að kaupa notaða bíla?
Damn. Þetta er eins og eitthvað frá bandaríkjunum.
Re: Eitthvað sérstakt sem maður þarf að vara sig á við að kaupa notaða bíla?
Sent: Lau 04. Maí 2024 12:43
af Hizzman
Almennt þarf að spá í tímareim, svo hafa mismunandi bílar mismunandi veikleika. Hvernig bíl ertu að hugsa um?
Re: Eitthvað sérstakt sem maður þarf að vara sig á við að kaupa notaða bíla?
Sent: Lau 04. Maí 2024 12:55
af danniornsmarason
netkaffi skrifaði:Auðvitað að hann sé ekki bilaður eða að fara bila, nema það sé sagt frá. Hvað gerir maður ef það er eitthvað að sem var ekki sagt frá, er erfitt að leita réttar? Eða á maður rétt? Ég veit að það er öruggara að bíllinn sé nýlega eða nýskoðaður, þá ætti flest að koma fram sem gæti verið að.
Ég er að leita eftir að kaupa sendiferðabíl, til að breyta í camper (ferðagistingu eins og túristar eru alltaf á) ef einhver er að sela eða er með tips sérstaklega fyrir það.
rið í sílsum og undir bílnum (yfirborðsrið er ekkert stór mál en um leið og það er byrjað að ryðga í gegn þá ertu kominn í vesen.) Athuga á olíuna á bílnum, sjá hvort rét magn af olíu er á honum og hvort það sé olíubrúsi í skotti (það þýðir oftast að bíll lekur eða brennir mikilli olíu) Opna skrúfa olíu refill tappann af og athuga létt ofan í tappan og vélina hvort það sé vökvi sem líkist kókómjólk/kaffi/froðu (heddpakkning líklegast farin ef svo er) sparka í dekkin og sjá hvort dekkið(Hjólabúnaðurinn) er með slag athuga hvort það er vatn á vatnkassa (Bíllinn þarf að vera kaldur, ekki opna ef hann er heitur) kíkja undir vélina hvort það er einhver bleyta/leki athuga rið í hjólabúnaði. skoða service bók, hvenær var skipt um tímareim og síðast skipt um olíu
Þetta er það sem ég hef alltaf athugað og ef allt er rétt þá ætti bíllinn að vera í ágætis standi svo lengi sem hann keyrir vel og ekkert óhljóð
Enn aðsjálfsögðu best að fara með bílinn til fagaðila í söluskoðun og fara líka sjálfur yfir þessa hluti, þar sem það getur alltaf eitthvað farið fram hjá þeim
Re: Eitthvað sérstakt sem maður þarf að vara sig á við að kaupa notaða bíla?
Sent: Lau 04. Maí 2024 13:14
af Minuz1
Fer bara með bílinn í ástandsskoðun hjá frumherja eða hjá umboði og færð þá til að segja þér frá stöðunni áður en þú gengur frá kaupum.
Re: Eitthvað sérstakt sem maður þarf að vara sig á við að kaupa notaða bíla?
Sent: Lau 04. Maí 2024 13:56
af Henjo
Síðan er líka fínt, ef þu hefur getu, þekkir einhvern eða svoleiðis, sem getur flett upp eigendasögunni. Það er almennt ekki gott ef það eru búnir að vera 20 eigendur. 1-2 eigendur er mjög gott.
Man þegar ég var lítill seldi pabbi bíll með nýja tímareim, þetta var ópraktískur sportbíll sem eyddi miklu þannig hann skiptist á eigendum á sirka 6 mánaða fresti. Fimm árum seinna var ennþá verið að auglýsa bíllinn með nýrri tímareim, þrátt fyrir að reiminn dugði bara í þrjú ár og var orðinn fimm ára gömull.
Þegar það er verið að selja bíll, og seljandinn vill meina að miklar viðgerðir hafa verið gerðar nýlega, eða viðhald eins og tímareimaskipti, þá er eðlilegt að því fylgi nótur. Mjög algent að fólk t.d. auglýsir bílar og segir að það er búið að skipta um bremsur frá a til ö. En það sem það meinar er að það eru nýjir klossar allar hringinn.
Re: Eitthvað sérstakt sem maður þarf að vara sig á við að kaupa notaða bíla?
Sent: Lau 04. Maí 2024 20:30
af Klemmi
Henjo skrifaði:Síðan er líka fínt, ef þu hefur getu, þekkir einhvern eða svoleiðis, sem getur flett upp eigendasögunni. Það er almennt ekki gott ef það eru búnir að vera 20 eigendur. 1-2 eigendur er mjög gott.
Hægt að kaupa aðgang á Raunverd.is til að fletta upp í ökutækjaskrá og fá þar m.a. skoðunarsögu og eigendasögu. Einnig hægt að sjá þar hvað ákveðnar tegundir hafa verið að seljast á, en athugið að það er eingöngu skráð í gegnum ákveðnar bílasölur og umboð, og verð því almennt hærri en t.d. á Bland / Facebook.
10 uppflettingar kosta 1950kr.-
Re: Eitthvað sérstakt sem maður þarf að vara sig á við að kaupa notaða bíla?
Sent: Sun 05. Maí 2024 08:25
af ColdIce
Ef þetta er dýr bíll þá auðvitað söluskoðun hjá fyrirtæki sem þekkir tegundina vel og þar af leiðandi hverju á að leita að. Þegar ég kaupi bíl undir milljón þá fer ég bara með hann í svokallaða leigubílaskoðun hjá skoðunarstöðvum
Re: Eitthvað sérstakt sem maður þarf að vara sig á við að kaupa notaða bíla?
Sent: Sun 05. Maí 2024 10:22
af KaldiBoi
danniornsmarason skrifaði:
netkaffi skrifaði:Auðvitað að hann sé ekki bilaður eða að fara bila, nema það sé sagt frá. Hvað gerir maður ef það er eitthvað að sem var ekki sagt frá, er erfitt að leita réttar? Eða á maður rétt? Ég veit að það er öruggara að bíllinn sé nýlega eða nýskoðaður, þá ætti flest að koma fram sem gæti verið að.
Ég er að leita eftir að kaupa sendiferðabíl, til að breyta í camper (ferðagistingu eins og túristar eru alltaf á) ef einhver er að sela eða er með tips sérstaklega fyrir það.
rið í sílsum og undir bílnum (yfirborðsrið er ekkert stór mál en um leið og það er byrjað að ryðga í gegn þá ertu kominn í vesen.) Athuga á olíuna á bílnum, sjá hvort rét magn af olíu er á honum og hvort það sé olíubrúsi í skotti (það þýðir oftast að bíll lekur eða brennir mikilli olíu) Opna skrúfa olíu refill tappann af og athuga létt ofan í tappan og vélina hvort það sé vökvi sem líkist kókómjólk/kaffi/froðu (heddpakkning líklegast farin ef svo er) sparka í dekkin og sjá hvort dekkið(Hjólabúnaðurinn) er með slag athuga hvort það er vatn á vatnkassa (Bíllinn þarf að vera kaldur, ekki opna ef hann er heitur) kíkja undir vélina hvort það er einhver bleyta/leki athuga rið í hjólabúnaði. skoða service bók, hvenær var skipt um tímareim og síðast skipt um olíu
Þetta er það sem ég hef alltaf athugað og ef allt er rétt þá ætti bíllinn að vera í ágætis standi svo lengi sem hann keyrir vel og ekkert óhljóð
Enn aðsjálfsögðu best að fara með bílinn til fagaðila í söluskoðun og fara líka sjálfur yfir þessa hluti, þar sem það getur alltaf eitthvað farið fram hjá þeim
Þetta er allt mjög góðir punktar, en ég kaupi ekki bíl ef það er ekki smurbók/þjónustubók! Svo myndi leita hvort það sé erfitt að gera við bílanna, er eitthvað eins einfalt og kerti og kefli að rífa allt ofan að vélinni til þess að komast að hlutunum.
Annars myndi ég forðast Ford eins og þú getur. Benzarnir eru mjög solid en eru frá ca aldamótum og upp í 2016 mjög gjarnir á að ryðga. 1.9-2.0 tdi mótorarnir frá VW er mjög solid en þeir gerðu enga “alvöru” húsbíla. Happy Hunting!:-)
Re: Eitthvað sérstakt sem maður þarf að vara sig á við að kaupa notaða bíla?
Sent: Sun 05. Maí 2024 10:52
af Hjaltiatla
Sjálfur nota ég bara Youtube og nota það sem checklista af hlutum til að fara yfir.
T.d Hvað þessi athugar áður en hann kaupir bíla sem hann ætlar að endurselja.
Re: Eitthvað sérstakt sem maður þarf að vara sig á við að kaupa notaða bíla?
Sent: Sun 05. Maí 2024 15:59
af demaNtur
Númer eitt, tvö og þrjú að það sé ekki veð í bílnum. Rík skoðunarskylda kaupanda gildir í kaupum á notuðum bílum.
Kynna sér bílinn sem þú ætlar að skoða á google, þá að leita eftir "vw golf 1.4 tsi 2015 biggest problems" til dæmis. Gott er að google-a "Panel gaps on cars", það getur oft gefið til kynna hvort bíllinn hafi lent í tjóni, þeas. ef það er rosalegt panel gap á framhurð en mjög lítið gap á afturhurð.
Tímareim eða keðja í bílnum? Hvernig hefur honum verið sinnt, búið að þjónusta reglulega (smurbók?) og ástand dekkja osf.
Bank, skrölt eða önnur eins hljóð í akstri eru ekki góðs viti.
Re: Eitthvað sérstakt sem maður þarf að vara sig á við að kaupa notaða bíla?
Sent: Mán 06. Maí 2024 05:15
af netkaffi
Hizzman skrifaði:Almennt þarf að spá í tímareim, svo hafa mismunandi bílar mismunandi veikleika. Hvernig bíl ertu að hugsa um?
Vw Caddy 2007 á 490.000 kr. t.d.
Re: Eitthvað sérstakt sem maður þarf að vara sig á við að kaupa notaða bíla?
Sent: Mán 06. Maí 2024 07:30
af netkaffi
Var bent á þetta: "Ég myndi gera þetta þannig og ég geri þetta þannig að ef ég er að skoða notaðan bíl fæ ég bílinn og fer með hann t.d. í Frumherja og fæ skoðun en ég fer líka með hann til vinar sem á verkstæði og læt hann skoða hann. Ef það er eitthvað sem er að en hægt að laga án þess að það komi niður á gæðum bílsins þá getur þú notað þessar athugasemdir til að ná verðinu niður og svo kemur bara í ljós hvort seljandi er til í það. Skoðun kostar smá pening en mun minna en vesenið sem hlýst af því að kaupa bíl með falda galla. Þegar þú kaupir bíl og hann er kominn á þitt nafn er eiginlega allt vesen sem kemur upp eftir það þitt mál nema um mjög alvarlega vanrækslu (eða svik) seljanda eigi sér stað."
Re: Eitthvað sérstakt sem maður þarf að vara sig á við að kaupa notaða bíla?
Sent: Mán 06. Maí 2024 13:25
af Hizzman
netkaffi skrifaði:
Hizzman skrifaði:Almennt þarf að spá í tímareim, svo hafa mismunandi bílar mismunandi veikleika. Hvernig bíl ertu að hugsa um?
Vw Caddy 2007 á 490.000 kr. t.d.
úff, dáldið gamall og væntanlega mikið keyrður.
Hvernig ertu að spá í að innrétta hann? Klæða, einangra og einhver fínheit, eða bara beisk? Ég er stundum með pælingar um að gera svipað. Þú veist væntanlega að það er mikið efni á YT um þetta.
Re: Eitthvað sérstakt sem maður þarf að vara sig á við að kaupa notaða bíla?
Sent: Mán 06. Maí 2024 15:07
af Henjo
netkaffi skrifaði:
Hizzman skrifaði:Almennt þarf að spá í tímareim, svo hafa mismunandi bílar mismunandi veikleika. Hvernig bíl ertu að hugsa um?
Vw Caddy 2007 á 490.000 kr. t.d.
Þegar þú ert að kaupa svona gamlan bíll þá er garantíað að það se allskonar að, margar skoðunarstöðvar gera t.d. ekki söluskoðun á bíla sem eru 10 ára og eldri, því það er hægt að pota í allt og seigja að það sé orðið slappt.
Passa mjög núna, það eru strangari reglur komnar þegar þú ferð með bíll í skoðun. Ef það er olíusmit eða eitthverskonar styrkleikarmissir (ryð í botni eða sílsums) þá ertu mjög líklegur til að fá endurskoðun.
Re: Eitthvað sérstakt sem maður þarf að vara sig á við að kaupa notaða bíla?
Sent: Fös 10. Maí 2024 22:12
af netkaffi
Hizzman skrifaði:úff, dáldið gamall og væntanlega mikið keyrður.
Er að spá í að fara í 2011 árgerð frekar á sama verði, keyrður 146.000 km. Reyndar metan, en þeir eru oft með bensíntank líka, er að spyrja hvort hann sé ekki líka með bensíntank. Var að lesa pósta á Metanbílasamfélagið (Facebook) og flestir láta mjög vel af að reka metanbíl þar. Það er víst helmingi ódýrara í eldsneytiskostnað, færð 350 km á rúmann 3000 kall.
Hizzman skrifaði:Hvernig ertu að spá í að innrétta hann? Klæða, einangra og einhver fínheit, eða bara beisk? Ég er stundum með pælingar um að gera svipað. Þú veist væntanlega að það er mikið efni á YT um þetta.
Góð spurning. Ég byrja eflaust á einhverju fikti. Svo hef ég verið að sjá tilbúnar uppsetningar til sölu, þ.e. eitthvað svona tilbúið unit sem þú setur bara inn í hann. En vissi af fólki á YouTube að gera þetta allt sjálft, úr viði aðallega, á YouTube, takk. Ég er ekki mikill smiður, en kannski maður leggist bara í það.
Henjo skrifaði:margar skoðunarstöðvar gera t.d. ekki söluskoðun á bíla sem eru 10 ára og eldri, því það er hægt að pota í allt og seigja að það sé orðið slappt.
Damn.
Henjo skrifaði:Passa mjög núna, það eru strangari reglur komnar þegar þú ferð með bíll í skoðun. Ef það er olíusmit eða eitthverskonar styrkleikarmissir (ryð í botni eða sílsums) þá ertu mjög líklegur til að fá endurskoðun.
Takk. Er það eitthvað sem ég get testað auðveldlega sjálfur?
Re: Eitthvað sérstakt sem maður þarf að vara sig á við að kaupa notaða bíla?
Sent: Fös 10. Maí 2024 23:49
af rostungurinn77
netkaffi skrifaði:
Henjo skrifaði:Passa mjög núna, það eru strangari reglur komnar þegar þú ferð með bíll í skoðun. Ef það er olíusmit eða eitthverskonar styrkleikarmissir (ryð í botni eða sílsums) þá ertu mjög líklegur til að fá endurskoðun.
Takk. Er það eitthvað sem ég get testað auðveldlega sjálfur?
Skríður undir hann með vasaljós.
Re: Eitthvað sérstakt sem maður þarf að vara sig á við að kaupa notaða bíla?
Sent: Lau 11. Maí 2024 03:20
af netkaffi
Já datt það í hug. Tjekka á þessu á Youtube.
Re: Eitthvað sérstakt sem maður þarf að vara sig á við að kaupa notaða bíla?
Sent: Sun 12. Maí 2024 10:50
af jonsig
Bróðir minn var að lenda illa í því.
Fullur náungi frá einhverju eystrasaltslandi keyrði á hann og skemmdi mikið bílinn og stakk af en gaurinn náðist og brói fékk bílinn greiddan út.
Síðan kaupir hann bíl af einhverjum "piotr" og bíllinn allur í check engine ljósum 1klst eftir afhendingu. Og bilun í túrbínu og ónýtur hvarfakútur. Og sést að allir error kóðar voru hreinsaðir út rétt áður.
Semsagt alltaf sniðugt að mæta með aflestrargræju.
Re: Eitthvað sérstakt sem maður þarf að vara sig á við að kaupa notaða bíla?
Sent: Sun 12. Maí 2024 11:04
af netkaffi
Damn.
jonsig skrifaði:Semsagt alltaf sniðugt að mæta með aflestrargræju.
Hvar fær maður þannig? og hvað heitir það á ensku
Re: Eitthvað sérstakt sem maður þarf að vara sig á við að kaupa notaða bíla?
Sent: Sun 12. Maí 2024 13:47
af astro
netkaffi skrifaði:Damn.
jonsig skrifaði:Semsagt alltaf sniðugt að mæta með aflestrargræju.
Hvar fær maður þannig? og hvað heitir það á ensku
OBD/OBD2 scanner, þeir eru jafn misjafnir og verðin sem maður finnur á ebay og amazon Ég á einhvern inní skúr sem kostaði $50 og hann hefur yfirleitt náð að lesa alla villukóða og/eða endursetja þá eftir viðgerð. Keypti mér svona eftir að eitthvað verkstæði gaf mér upp verðið sem það kostaði að "stinga í tölvu" (12.000 ISK).
Re: Eitthvað sérstakt sem maður þarf að vara sig á við að kaupa notaða bíla?