Síða 1 af 1
Þráðlaus Bluetooth móttakari í USB port bíls
Sent: Fim 05. Maí 2016 18:21
af mikkimás
Er að pæla í að kaupa mér bíl (Corolla Terra) með engu Bluetooth en er með USB tengi (og reyndar AUX líka).
Er nokkuð mál að kaupa sér bluetooth móttaka sem gengur í USB portið frekar en að nota hundleiðinlega USB (eða AUX) snúru?
Einhver með reynslu af þessu og veit hvað, ef eitthvað, á að kaupa?
Re: Þráðlaus Bluetooth móttakari í USB port bíls
Sent: Fim 05. Maí 2016 18:32
af Hizzman
USB tengið er sennilega bara ætlað til að spila skrár..
Re: Þráðlaus Bluetooth móttakari í USB port bíls
Sent: Fim 05. Maí 2016 18:41
af mikkimás
Ég ætlaði mér líka bara að spila tónlistarskrár í gegnum símann minn
Veit annars ekki hvað má og má ekki með þetta USB port.
Er ekki annars fullt af fólki hérna sem á Corolla Terra ca. 2014 módel? Er það ekki annars rétt skilið hjá mér að Bluetooth sé aðeins í Sol/Active týpunni?
Re: Þráðlaus Bluetooth móttakari í USB port bíls
Sent: Fim 05. Maí 2016 21:56
af gunnji
https://www.amazon.co.uk/iClever-HB01-H ... B00L4Y98QIHér er besta/einfaldasta lausnin, þetta er virkar svo vel að ég á erfitt með að trúa því.
Kviknar á þessu með bílnum, auto connectar svo gott sem strax og slekkur svo á sér þegar þú drepur á bílnum. Ekkert vesen.
Eftir að ég keypti þetta í nóvember þá er ég búinn að benda nokkrum á þetta og allir mjög ánægðir.
Re: Þráðlaus Bluetooth móttakari í USB port bíls
Sent: Fös 06. Maí 2016 02:06
af mikkimás
Fæst þessi græja hérlendis? Kemur þarna fram að þeir sendi ekki til Íslands.
Re: Þráðlaus Bluetooth móttakari í USB port bíls
Sent: Fös 06. Maí 2016 08:08
af nidur
gunnji skrifaði:https://www.amazon.co.uk/iClever-HB01-Hands-Free-Convenient-Activation/dp/B00L4Y98QI
Hér er besta/einfaldasta lausnin, þetta er virkar svo vel að ég á erfitt með að trúa því.
Kviknar á þessu með bílnum, auto connectar svo gott sem strax og slekkur svo á sér þegar þú drepur á bílnum. Ekkert vesen.
Eftir að ég keypti þetta í nóvember þá er ég búinn að benda nokkrum á þetta og allir mjög ánægðir.
Hvernig er umhverfishljóðið þegar þú ert að keyra og tala?