Síða 1 af 1

Skrítið slit á bremsuklossum

Sent: Sun 11. Okt 2015 20:48
af GuðjónR
Ég er nú engin sérfræðingur í bremsuklossum, en er þetta ekki annaðhvort ílla slitnir eða brotnir klossar?
Báðar myndir af sama klossa, tekin að ofan og að neðan.
Báðir klossarnir að framan eru svona.
Er þetta eðlilegt slit?

Re: Skrítið slit á bremsuklossum

Sent: Sun 11. Okt 2015 20:58
af Gunnar
sumir klossar koma svona, ekkert að þessum held ég.
Mynd

Re: Skrítið slit á bremsuklossum

Sent: Sun 11. Okt 2015 21:02
af GuðjónR
Gunnar skrifaði:sumir klossar koma svona, ekkert að þessum held ég.
Mynd

Okay, mér fannst bara þegar ég var að kíkja á þetta eins og partur af þeim snerti diskinn...

Re: Skrítið slit á bremsuklossum

Sent: Sun 11. Okt 2015 21:24
af littli-Jake
Ef að það væri ekki snerting hjá klosanum við part af disknum þá væri fljótt komin riðslykja á diskinn svo greinilega er að myndast núningur.

Re: Skrítið slit á bremsuklossum

Sent: Sun 11. Okt 2015 21:29
af GuðjónR
littli-Jake skrifaði:Ef að það væri ekki snerting hjá klosanum við part af disknum þá væri fljótt komin riðslykja á diskinn svo greinilega er að myndast núningur.

Já er ekki smá "ryð" þarna?
Held það sé kominn tími á þá, hvað er algengt að klossar endist lengi?
Bíllinn er reyndar mikið ekinn á lengri vegalengdum, 51k km. á original klossum.

Re: Skrítið slit á bremsuklossum

Sent: Sun 11. Okt 2015 21:57
af Glazier
Það er alveg nóg eftir af þessum klossum.. en sýnist þetta vera það sem Gunnar bendir á, ekkert óeðlilegt að gerast.
Hvenær skiptirðu um síðast?
Ættu að eiga alveg gott ár eftir, ekki minna.

Re: Skrítið slit á bremsuklossum

Sent: Sun 11. Okt 2015 22:00
af GuðjónR
Glazier skrifaði:Það er alveg nóg eftir af þessum klossum.. en sýnist þetta vera það sem Gunnar bendir á, ekkert óeðlilegt að gerast.
Hvenær skiptirðu um síðast?
Ættu að eiga alveg gott ár eftir, ekki minna.

Okay, aldrei verið skipt. Orginal klossar sem hafa verið keyrðir rúmlega 50k km.

Re: Skrítið slit á bremsuklossum

Sent: Sun 11. Okt 2015 23:49
af Danni V8
Miðað við þessar myndir þá er þetta alveg fullkomlega eðlilegt.

Re: Skrítið slit á bremsuklossum

Sent: Mán 12. Okt 2015 08:11
af audiophile
Lítur ekkert illa út miðað við akstur. Ef hann bremsar ennþá vel og finnur engan víbring eða hljóð frá bremsunum þarftu ekkert að skoða þetta strax. Ég hef séð margfalt verra en þetta.

Re: Skrítið slit á bremsuklossum

Sent: Þri 13. Okt 2015 14:16
af GuðjónR
Okay, þá er ég ekkert að stressa mig á þessu. Sé núna að diskarnir eru glansandi eftir akstur þannig að klossarnir hljóta að snerta allan flötinn.
Heyri ekkert óeðlilegt brensusurg heldur, eina aukahljóðið sem ég heyri er eitthvað leiðinlegt "blístur" sem byrjar yfirleitt í svoa 75kmh og fjarar út í 85kmh, eins og vindþrýsingur sé að valda því. Ömögulegt að vita hvað veldur því.

Re: Skrítið slit á bremsuklossum

Sent: Þri 13. Okt 2015 15:07
af Halli25
GuðjónR skrifaði:Okay, þá er ég ekkert að stressa mig á þessu. Sé núna að diskarnir eru glansandi eftir akstur þannig að klossarnir hljóta að snerta allan flötinn.
Heyri ekkert óeðlilegt brensusurg heldur, eina aukahljóðið sem ég heyri er eitthvað leiðinlegt "blístur" sem byrjar yfirleitt í svoa 75kmh og fjarar út í 85kmh, eins og vindþrýsingur sé að valda því. Ömögulegt að vita hvað veldur því.

Gæti verið hljólalega, ef þú tjakkar hann upp og snýrð hjólunum þá ættirðu að finna ef hún er illa farin hökt á snúningnum. Gæti líka verið smá brot og þá er helvíti að finna þetta nema með að rífa í sundur :)

Re: Skrítið slit á bremsuklossum

Sent: Þri 13. Okt 2015 15:48
af GuðjónR
Halli25 skrifaði:

Góður punktur, það styttist í vetrardekkin, nota tækifærið þegar ég fer með hann og tek á dekkinu. Samt mjög spes að heyra þetta ýl alltaf á svipuðum hraða.

Re: Skrítið slit á bremsuklossum

Sent: Þri 13. Okt 2015 16:31
af Halli25
var þannig líka hjá mér þegar hjólalega fór, kom ýl þegar ég fór yfir 60, heyrði ekkert í þessu í innanbæjarsnatti

Re: Skrítið slit á bremsuklossum

Sent: Þri 13. Okt 2015 17:10
af GuðjónR
Halli25 skrifaði:var þannig líka hjá mér þegar hjólalega fór, kom ýl þegar ég fór yfir 60, heyrði ekkert í þessu í innanbæjarsnatti

Og hætti það svo þegar þú fórst yfir ákveðin hraða?

Re: Skrítið slit á bremsuklossum

Sent: Mið 14. Okt 2015 08:27
af demaNtur
GuðjónR skrifaði:
Halli25 skrifaði:var þannig líka hjá mér þegar hjólalega fór, kom ýl þegar ég fór yfir 60, heyrði ekkert í þessu í innanbæjarsnatti

Og hætti það svo þegar þú fórst yfir ákveðin hraða?

Yfirleitt ef hjólalega er farin þá ætti hljóðið að stigmagnast því hraðar sem þú keyrir. Get eiginlega lofað þér því að þetta er ekki hjólalega. Einnig ef hjólalega er farin (AÐ FRAMAN) þá hækkar hljóðið mikið þegar þú beygjir annað hvort til hægri eða vinstri, fer eftir því hvorum megin hjólalegan er farin.

Ætla leyfa mér að halda að þú látir verkstæði skipta um dekkin fyrir þig, láttu strákana á verkstæðinu athuga fyrir þig hjólalegur í leiðinni :happy

Re: Skrítið slit á bremsuklossum

Sent: Mið 14. Okt 2015 13:35
af ljoskar
GuðjónR skrifaði:Okay, þá er ég ekkert að stressa mig á þessu. Sé núna að diskarnir eru glansandi eftir akstur þannig að klossarnir hljóta að snerta allan flötinn.
Heyri ekkert óeðlilegt brensusurg heldur, eina aukahljóðið sem ég heyri er eitthvað leiðinlegt "blístur" sem byrjar yfirleitt í svoa 75kmh og fjarar út í 85kmh, eins og vindþrýsingur sé að valda því. Ömögulegt að vita hvað veldur því.

Félagi minn lenti í svona blístri þegar hann var kominn upp í 60 og hætti í 80. Það var plast fyrir krómlista á topplúgunni sem byrjað var að losna sem olli því. Gætti verið eitthvað svoleiðis?