Síða 1 af 1

PontiacGrandLeMans 1978 305 V8 Til Sölu *SELDUR*

Sent: Sun 11. Ágú 2013 14:09
af Yawnk
Sælir, lét eyða hinum þræðinum því að ég er kominn með nýja og betri auglýsingu ásamt fleiri óséðum myndum af kagganum, vildi bara byrja aftur frá scratch. :happy

Sælir, ég er með Pontiac Grand Le Mans 1978 4 dyra til sölu.

*BREYTT VERÐ* Ég setti líka nýtt sett af myndum, því mér finnst líklegt að allir séu búnir að skoða hinar ;)

Bílinn er 1978 árgerð, með 305 ( 5.0 lítra ) V8 vél, rúm 145 hestöfl, hann er með þriggja gíra sjálfskiptingu í stýri.
Bílinn er keyrður 118 þúsund mílur.
Skemmir líka ekki fyrir að þessi vél er ansi eyðslugrönn miðað við gamla ameríska V8, rúmir 13-15 lítar á hundraði.

Bílinn er með 2015 skoðun, rann í gegnum skoðun fyrir nokkrum vikum, með einungis tvær athugasemdir ;
Stýrisdæla lekur eitthvað smotterí ( virðist vera hætt að leka, setti lekastöðvandi efni á hana og fyllti á ) og það er ryðgað bílstjóragólfið ( komið gat, ekkert mál að laga )

Það er eiginlega eina 'alvöru ryðið' í bílnum.
Grindin í bílnum er 100% heil, en hún var viðkvæmur punktur í þessum bílum.

Þetta er mjög gott eintak, hann gengur mjög vel, fer alltaf í gang.
Það virkar allt í bílnum að innan jafnt sem utan, ljós, miðstöð, útvarp, sígarettukveikjari, rúðuþurrkur, og allir mælar virka.
Það er líka rafmagn í rúðum að framan, og rafmagnað bílstjórasæti (s.s upp, niður, fram og aftur) og það er í fínasta lagi allt saman.
Rauðpluss innrétting og sæti, engar rifur á sætum og líta hreinlega út, og innrétting lítur mjög vel út.
Aldrei var reykt í þessum bíl. ( reyklausir eigendur )

Bílinn var sprautaður nýlega, og var hann sprautaður matt svartur og víniltoppurinn var sprautaður rauður, einnig voru felgurnar sprautaðar rauðar.
(Fyrir fólk sem fílar ekki þessa skæru rauðu felgur, þá fylgja með 4 flottir teinakoppar sem hægt væri að setja á bílinn með einu handtaki, ég set inn mynd af þeim hér.)

Ég er þriðji eigandi frá upphafi, eldri maður sem hafði átt bílinn alla tíð og fór mjög vel með hann, það er ekki búið að þjösnast á þessu eintaki!!
Ég kaupi bílinn í sumar, en neyðist svo til að selja aftur vegna peningaskorts.

Bíllinn er að ÖLLU leyti ORIGINAL fyrir utan lakkið að utan.

Með bílnum fylgja tvö varadekk, eitt original varadekk með hvítum hring (orðið ansi snjáð) og svo eitt almennilegt varadekk, upprunalegi drullutjakkur, 4 teinakoppar í góðu ástandi, og einhverjir fleiri varahlutir.

Það er nýbúið að skipta um kerti á honum.

Ef einhver vill fá fleiri myndir af bílnum, endilega sendið mér einkapóst með Email'inu hjá ykkur og ég læt verða af því :)

Ásett verð : 600.000.- krónur
Ég skoða öll skipti sem mér eru boðin.

Endilega ef áhugi er fyrir hendi, þá má senda mér einkaskilaboð hér eða hringja í mig í síma 8661135.

Kveðja
Siggi

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Gæðin á myndunum ekkert sérstök, en ég get alltaf tekið fleiri í betri gæðum :)

Re: PontiacGrandLeMans 1978 305 V8 Til Sölu *nýtt og breytt*

Sent: Sun 11. Ágú 2013 21:21
af Yawnk
Mér var boðið skipti á BMW 518 1987 m10b18 ekinn 180þ með beinni innspýtingu og í mjög góðu ástandi í skiptum og ég myndi borga smotterí á milli..... Er eitthvað varið í það?

Re: PontiacGrandLeMans 1978 305 V8 Til Sölu *nýtt og breytt*

Sent: Sun 11. Ágú 2013 21:25
af Lexxinn
Yawnk skrifaði:Mér var boðið skipti á BMW 518 1987 m10b18 ekinn 180þ með beinni innspýtingu og í mjög góðu ástandi í skiptum og ég myndi borga smotterí á milli..... Er eitthvað varið í það?


Jafn sniðugur bíll og sá sem þú ert með núna. Sama viðhald á honum og þeim sem þú átt núþegar. Fóðringar líklega allar að fara í BMWinum.

Re: PontiacGrandLeMans 1978 305 V8 Til Sölu *nýtt og breytt*

Sent: Sun 11. Ágú 2013 21:27
af Gunnar
Yawnk skrifaði:Mér var boðið skipti á BMW 518 1987 m10b18 ekinn 180þ með beinni innspýtingu og í mjög góðu ástandi í skiptum og ég myndi borga smotterí á milli..... Er eitthvað varið í það?

allan tímann. finnur svo flottan mótor til að setja ofaní seinnameir

Re: PontiacGrandLeMans 1978 305 V8 Til Sölu *nýtt og breytt*

Sent: Sun 11. Ágú 2013 21:54
af Páll
Bombaðu inn myndum af þessum bmw

Re: PontiacGrandLeMans 1978 305 V8 Til Sölu *nýtt og breytt*

Sent: Sun 11. Ágú 2013 21:56
af Yawnk
Eru svona gamlir BMW'ar að seljast eitthvað?
Hvað ætli 'gangverðið' á svona bíl, sem er í mjög góðu ástandi, skoðaður og ekkert að, nánast ryðlaus?
Og mikið endurnýjað.

Re: PontiacGrandLeMans 1978 305 V8 Til Sölu *nýtt og breytt*

Sent: Sun 11. Ágú 2013 22:04
af Páll
Hvaða týpa er þetta? e28? e23?

Re: PontiacGrandLeMans 1978 305 V8 Til Sölu *nýtt og breytt*

Sent: Sun 11. Ágú 2013 22:07
af Yawnk
Páll skrifaði:Hvaða týpa er þetta? e28? e23?

E28

Re: PontiacGrandLeMans 1978 305 V8 Til Sölu *nýtt og breytt*

Sent: Sun 11. Ágú 2013 22:19
af I-JohnMatrix-I
Er hann í 100% ástandi? þykir nú skrítið að þú þurfir að borga á milli til þess að fá gamlan E28 518i.

Re: PontiacGrandLeMans 1978 305 V8 Til Sölu *nýtt og breytt*

Sent: Sun 11. Ágú 2013 22:44
af Yawnk
I-JohnMatrix-I skrifaði:Er hann í 100% ástandi? þykir nú skrítið að þú þurfir að borga á milli til þess að fá gamlan E28 518i.

Þess vegna spyr ég, eða nánast 100% skv eiganda, smá sem þarf að gera við, bremsudælur að aftan.
Hann hefur í huga 600 - 700þ í beinni sölu, er það vitlaust verð?

Re: PontiacGrandLeMans 1978 305 V8 Til Sölu *nýtt og breytt*

Sent: Sun 11. Ágú 2013 22:49
af biturk
Það finnast mér slæm skipti fyrir þig. Alltof mikið sett á bimman

Sent from my GT-I9100 using Tapatalk 2

Re: PontiacGrandLeMans 1978 305 V8 Til Sölu *nýtt og breytt*

Sent: Sun 11. Ágú 2013 22:52
af I-JohnMatrix-I
600-700 þúsund í beinni sölu fyrir gamlan e28 518i er rosalega hátt verð. Nema hann sé á rándýrum felgum, með læst drif, ný sprautaður og það fylgi m50b25 mótor og kram með. :D

Re: PontiacGrandLeMans 1978 305 V8 Til Sölu *nýtt og breytt*

Sent: Sun 11. Ágú 2013 22:59
af Gúrú
Hef varla gert annað en að skoða BMWa síðustu daga og það er ekkert svakalega nákvæmt finnst mér að hann megi búast við 600-700k.

Re: PontiacGrandLeMans 1978 305 V8 Til Sölu *nýtt og breytt*

Sent: Sun 11. Ágú 2013 23:11
af Yawnk
Takk fyrir góð svör strákar, hjálpuðu mér alveg.
Hvað myndi vera ásættanlegt verð fyrir svona BMW í mjög góðu ástandi, geymdur inni alla tíð og nánast ryðlaus? bara til að forvitnast..

@Gúru - Skil þig ekki alveg, vantar ekki kommu einhversstaðar þarna inn í?

Re: PontiacGrandLeMans 1978 305 V8 Til Sölu *nýtt og breytt*

Sent: Sun 11. Ágú 2013 23:16
af Gúrú
Yawnk skrifaði:@Gúru - Skil þig ekki alveg, vantar ekki kommu einhversstaðar þarna inn í?


Held þetta sé málfræðilega allt í lagi hjá mér. Hérna er hún með annarri uppskrift:
Mér finnst ekki nákvæmt hjá honum að þetta sé verðið á bílnum hans (600-700k) miðað við það sem ég hef verið
að sjá. Ég er nefnilega búinn að vera að skoða BMWa á sölunum allan daginn síðustu daga. :)

Re: PontiacGrandLeMans 1978 305 V8 Til Sölu *nýtt og breytt*

Sent: Sun 11. Ágú 2013 23:18
af Páll
Segjum sem svo að þessi e28 sé algjörlega flawless, þá er 600þ ekkert svo vitlaust verð fyrir bílinn.

Enn ef hann vill eitthvað mikið á milli þá myndi ég segja stopp.

Re: PontiacGrandLeMans 1978 305 V8 Til Sölu *nýtt og breytt*

Sent: Sun 11. Ágú 2013 23:29
af Yawnk
Gúrú skrifaði:
Yawnk skrifaði:@Gúru - Skil þig ekki alveg, vantar ekki kommu einhversstaðar þarna inn í?


Held þetta sé málfræðilega allt í lagi hjá mér. Hérna er hún með annarri uppskrift:
Mér finnst ekki nákvæmt hjá honum að þetta sé verðið á bílnum hans (600-700k) miðað við það sem ég hef verið
að sjá. Ég er nefnilega búinn að vera að skoða BMWa á sölunum allan daginn síðustu daga. :)

Þetta skildi ég ;D

Já, ég held að ég sleppi þessu bara, þó þetta sé nú flottur bíll, þá held ég að þetta sé nú ekki besti kosturinn í stöðunni fyrir mig.

Re: PontiacGrandLeMans 1978 305 V8 Til Sölu *nýtt og breytt*

Sent: Sun 11. Ágú 2013 23:43
af Ripparinn
Yawnk skrifaði:Mér var boðið skipti á BMW 518 1987 m10b18 ekinn 180þ með beinni innspýtingu og í mjög góðu ástandi í skiptum og ég myndi borga smotterí á milli..... Er eitthvað varið í það?


Þessi bíll + m30b35 er svo mikið málið að hálfa væri svo mikill hellingur!!

Re: PontiacGrandLeMans 1978 305 V8 Til Sölu *nýtt og breytt*

Sent: Mán 12. Ágú 2013 00:18
af I-JohnMatrix-I
Félagi minn keypti svona bíl fyrir 2 árum sem að var í fínu standi, nánast ryðlaus á 350 þúsund.

Þess má geta að í dag er bílinn með m50b25 og læstu drifi og lýtur svona út. Reyndar búinn að eyða helling í hann en þetta er bíll sem að hann ætlar að eiga í langan tíma.

Mynd

Re: PontiacGrandLeMans 1978 305 V8 Til Sölu *nýtt og breytt*

Sent: Mán 12. Ágú 2013 00:23
af Ripparinn
I-JohnMatrix-I skrifaði:Félagi minn keypti svona bíl fyrir 2 árum sem að var í fínu standi, nánast ryðlaus á 350 þúsund.

Þess má geta að í dag er bílinn með m50b25 og læstu drifi og lýtur svona út. Reyndar búinn að eyða helling í hann en þetta er bíll sem að hann ætlar að eiga í langan tíma.

Mynd



Þetta er bílinn hans Gísla, allveg hreint maaagnaður bíll!

Fékk hann svona

Mynd

Mynd

og er nú svona

Mynd

Re: PontiacGrandLeMans 1978 305 V8 Til Sölu *nýtt og breytt*

Sent: Mán 12. Ágú 2013 00:27
af I-JohnMatrix-I
Rangt, fékk hann ekki klestann. Hann var búinn að eiga hann heilt sumar og klessti hann svo sjálfur um veturinn. Bíllinn var í fínu standi þegar hann keypti hann. En já þetta er magnaður bíll í dag.

Re: PontiacGrandLeMans 1978 305 V8 Til Sölu *nýtt og breytt*

Sent: Mán 12. Ágú 2013 00:29
af Ripparinn
I-JohnMatrix-I skrifaði:Rangt, fékk hann ekki klestann. Hann var búinn að eiga hann heilt sumar og klessti hann svo sjálfur um veturinn. Bíllinn var í fínu standi þegar hann keypti hann. En já þetta er magnaður bíll í dag.



Ahh ókei, takk fyrir leiðréttinguna vinur :)

En já, allveg yndislega eigulegur bíll!

Re: PontiacGrandLeMans 1978 305 V8 Til Sölu *nýtt og breytt*

Sent: Mán 12. Ágú 2013 12:17
af Yawnk
Upp, skoða öll skipti!

Re: PontiacGrandLeMans 1978 305 V8 Til Sölu *nýtt og breytt*

Sent: Þri 13. Ágú 2013 01:29
af Yawnk
Er að fá helling af skiptum, en ekkert sem mér leist á, endilega ekki vera feimnir að bjóða ;D uppp

Re: PontiacGrandLeMans 1978 305 V8 Til Sölu *nýtt og breytt*

Sent: Þri 13. Ágú 2013 22:41
af Yawnk
Yawnk skrifaði:Er að fá helling af skiptum, en ekkert sem mér leist á, endilega ekki vera feimnir að bjóða ;D uppp