Síða 1 af 4

Radarvari til sölu, þessi er sá besti

Sent: Mán 14. Jan 2013 10:30
af ZiRiuS
Vá hvað ég spara mér mikinn pening með að keyra bara löglega :japsmile

Re: RADARVARI TIL SÖLU ÞESSI ER SÁ BESTI

Sent: Mán 14. Jan 2013 10:42
af GuðjónR
ZiRiuS skrifaði:Vá hvað ég spara mér mikinn pening með að keyra bara löglega :japsmile

Sammála, fyrir utan að þeir eru gagnslausir ef myndavélarnar taka þig og líka ef lögreglan skýtur geisla beint á þig.
Í flestum tilfellum virkar þetta dót ekki.

...

Sent: Mán 14. Jan 2013 11:28
af deniro55
...

Re: Radarvari til sölu, þessi er sá besti

Sent: Mán 14. Jan 2013 11:29
af GuðjónR
deniro55 skrifaði:ég hef keyrt eins og fáviti í langan tíma, hef ekki fengið sekt eftir að ég hef rúllað með þennan uppi

:face

Re: Radarvari til sölu, þessi er sá besti

Sent: Mán 14. Jan 2013 11:31
af emmi
Hvað ætlarðu þá að gera þegar þú selur þennan? Hætta að keyra eins og fáviti eða ertu að fjárfesta í nýjum radarvara?

Re: Radarvari til sölu, þessi er sá besti

Sent: Mán 14. Jan 2013 11:35
af Daz
deniro55 skrifaði:ég hef keyrt eins og fáviti í langan tíma, hef ekki fengið sekt eftir að ég hef rúllað með þennan uppi


Gott að heyra, hvað ertu búin að valda mörgum eigna og líkamstjónum með því að keyra eins og fáviti? Eða ert þú betri en allir hinir að keyra?

...

Sent: Mán 14. Jan 2013 11:43
af deniro55
...

Re: Radarvari til sölu, þessi er sá besti

Sent: Mán 14. Jan 2013 11:45
af DJOli
Að mínu mati er best að keyra eins og fáviti þegar engin umferð er nálægt, og þá meina ég ENGIN.
Svo er líka rosalega gott að keyra ekki eins og fáviti ef maður er með farþega. þú vilt ekki sitja uppi með líf annars í þínum höndum ef þú kannt ekki að haga þér eins og maður.
Það þýðir ekkert að ætla að hægja á sér ef maður mætir löggum, hef heyrt að þeir skjóti geisla sem drífur minnir mig einn eða tvo kílómetra í sjónmáli, þannig að um leið og augun í þér ná að 'fókusa' á bílinn, þá er búið að skjóta þig.

Ég hef bara einusinni lent í árekstri, og það var nokkrum mánuðum eftir að ég fékk prófið.
Það gerðist í hálku. á 10-15km/h.

Re: Radarvari til sölu, þessi er sá besti

Sent: Mán 14. Jan 2013 11:47
af ZiRiuS
deniro55 skrifaði:er búinn að klessa 7 bíla, 1 á þessu ári, hef valdið líkamstjónum á nær öllum vinum mínum og fjölskyldu einning en ég er ekkert að stressa mig á hlutunum


:face

Re: Radarvari til sölu, þessi er sá besti

Sent: Mán 14. Jan 2013 11:52
af DJOli
ZiRiuS skrifaði:
deniro55 skrifaði:er búinn að klessa 7 bíla, 1 á þessu ári, hef valdið líkamstjónum á nær öllum vinum mínum og fjölskyldu einning en ég er ekkert að stressa mig á hlutunum


:face

:face x2

Re: Radarvari til sölu, þessi er sá besti

Sent: Mán 14. Jan 2013 12:43
af Olli
DJOli skrifaði:
ZiRiuS skrifaði:
deniro55 skrifaði:er búinn að klessa 7 bíla, 1 á þessu ári, hef valdið líkamstjónum á nær öllum vinum mínum og fjölskyldu einning en ég er ekkert að stressa mig á hlutunum


:face

:face x2

:face x3 , hljómar eins og þér finnist það rosa kúl

Re: Radarvari til sölu, þessi er sá besti

Sent: Mán 14. Jan 2013 13:17
af tdog
deniro55 skrifaði:er búinn að klessa 7 bíla, 1 á þessu ári, hef valdið líkamstjónum á nær öllum vinum mínum og fjölskyldu einning en ég er ekkert að stressa mig á hlutunum

DJOli skrifaði:Keyrði freðinn.
50 á 90 götu.
Fyrsta afbrot.
217þús króna sekt.
Eins árs svipting.
En mér er alveg sama, alveg mjög mjög sama um þetta.
Það er fínt að labba, og ég læt þetta aldrei gerast aftur.


Source
Er það bara algengt viðhorf ungra mann að það sé bara OK að keyra eins og hálfvitar?

Re: Radarvari til sölu, þessi er sá besti

Sent: Mán 14. Jan 2013 13:50
af AntiTrust
Burtséð frá viðhorfi seljanda, þá get ég nú alveg vottað fyrir það að radarvararnir hjá mér hafa sparað mér margar sektirnar. Það eru alls ekkert allir bílar/hjól með laser, svo það er ennþá talsvert gagn í radarvörum ef mönnum liggur örlítið á í umferðinni. Ég fer amk oftast ekki út fyrir bæjarmörkin án þeirra.

Re: Radarvari til sölu, þessi er sá besti

Sent: Mán 14. Jan 2013 14:01
af vesi
Til að skemma söluþráðin enn frekar þá er ég með radarvara og já hann hefur allveg sparað mér sektir nema einusinni, þá var hjólalögga með laser.
Það er ekki þar með sagt að ég keyri eins og brjálaðingur þó ég hangi ekki alltaf á löglegum hraða. hef verið tjónlaus síðustu 7-9 ár.

Ég stórefa það að allir sem tjá sig um að keyra á löglegum hraða geri það í raun og veru, en það er mitt mat.

Gangi þér vel með söluna.
kv Vesi

Re: Radarvari til sölu, þessi er sá besti

Sent: Mán 14. Jan 2013 14:07
af Gúrú
Olli skrifaði:
DJOli skrifaði:
ZiRiuS skrifaði:
deniro55 skrifaði:er búinn að klessa 7 bíla, 1 á þessu ári, hef valdið líkamstjónum á nær öllum vinum mínum og fjölskyldu einning en ég er ekkert að stressa mig á hlutunum


:face

:face x2

:face x3 , hljómar eins og þér finnist það rosa kúl

Hann var að grínast grunar mig. :roll:

Glæfraakstur

Sent: Mán 14. Jan 2013 14:46
af tdog
Út fra umræðunni um radarvarann.

Finnst mörgum hérna það eðlilegur hugsunarháttur að hafa valdið líkams- og/eða eignatjóni vegna ofsaaksturs og taka því bara rólega, vera ekkert að stressa sig á því?

Re: Glæfraakstur

Sent: Mán 14. Jan 2013 14:48
af AntiTrust
Ég ætla eiginlega að gera sjálfum mér þann greiða að áætla að um smekklaust grín hafi verið að ræða.

Re: Radarvari til sölu, þessi er sá besti

Sent: Mán 14. Jan 2013 15:13
af KermitTheFrog
Það er munur á hraðakstri og glannakstri... just sayin'

Re: Radarvari til sölu, þessi er sá besti

Sent: Mán 14. Jan 2013 16:27
af Talmir
KermitTheFrog skrifaði:Það er munur á hraðakstri og glannakstri... just sayin'


Ef þú keyrir ólöglega hratt þá er það bæði hraðaakstur og glannaakstur. Mörgum finnst þeir vera bestu ökumenn í heimi og að hraðamerkingarnar séu bara lélegar ágiskanir þangað til þeir eru á fullri ferð aftan á bíl sem þeir sáu ekki nógu snemma, þegar þeir frara í hliðina á bíl sem beigði inn á akreinina þar sem við eðlilegar kringumstæður hefði verið nægur tími til að beigja inn miðað við fjarlægð þína frá honum, eða þegar þeir húrra fram af veginum og á vegg.

Eða sérð þú einhvern frekari mun?

Persónulega finnst mér að það ættu að vera forréttindi frekar en réttindi að keyra tveggja tonna járnkössum á mikilli ferð og að lífslöng svipting eigi að vera lífslöng. Við missum nógu mikið af saklausu fólki á götum Íslands ár hvert án þess að bæta fleyri fávitum í umferðina.

Re: Glæfraakstur

Sent: Mán 14. Jan 2013 16:32
af Talmir
Þó það hafi verið smekklaust grín þá er þetta raunveruleikinn á Íslandi að mörgum finnst ekkert að því að skaða aðra í umferðini. Ég veit um eitt atvik þar sem gerandinn sagði "Vá, þetta var eins og að spila GTA" eftir að hann keyri á saklausann vegfaranda á hundrað kílómetra hraða. Svo félagi minn þegar ég vann við bíla varahluta sölu sem sá ekkert að því að keyra á 140 á vegum landsins því álit hans var að hann væri "bara" að leggja sjálfann sig í hættu.

þó þetta sé smekklaust grín þá mætti þessi umræða vera á fullu á vefnum þar sem þroskað fólk getur bent á fáránleika þeirra eigin hugsana.

Re: Radarvari til sölu, þessi er sá besti

Sent: Mán 14. Jan 2013 16:34
af AciD_RaiN
Ég hélt alltaf að ég væri frábær ökumaður...

Radarvarar eru samt ótrúlega þægilegir... Just sayin'
Mynd

Re: Glæfraakstur

Sent: Mán 14. Jan 2013 17:23
af DJOli
mér finnst eins og verið sé að setja mig í sæti brjálæðings, og ökuníðings þegar ég tala um að hafa verið tekinn skakkur, og sviptur.

Ég var á 50 kílómetra hraða, á 90 götu.
Að segja að það sé mér að kenna ef einhver bombar aftan á mig hljómar bara eins og út úr kjafti hræsnara sem keyrir sjálfur eins og hauslaus hæna.

Ég lagði aldrei nokkurn mann í hættu með 'fíkniefnaakstrinum mínum' enda keyrði ég aldrei lengur en í tæpan klukkutíma undir áhrifum. Ég fór aldrei yfir löglegan hámarkshraða, hvað þá ef ég komst nálægt honum vegna þess að mér fannst allt fara hraðar en það var. Ef eitthvað, miðað við frásögn mína, þá ætti ég að hafa keyrt 100 sinnum út af, en slík er raunin ekki. Ég hvorki lenti í, né olli slysi á meðan ég keyrði svona.
Mér er vitanlega sama um þennan fíkniefnaakstur minn, og mér er sama um sektina sem ég fékk, en það þýðir ekki að mér sé 'sama' um að keyra á kannski 100 á 35 götu. hvað þá 100 á 50 götu, eða bara 10 yfir innanbæjar, sérstaklega í hýbýla eða skólahverfum.

Ef ég keyri hratt (edrú, auðvitað) þá geri ég það utanbæjar, og þá geng ég úr skugga um að sjá almennilega fyrir framan mig. Ég er ekkert að fara að gefa í ef blindhæð er framundan. Ég er of mikil 'skræfa' til þess.
Ef bíll er fyrir framan mig, og ég hef þá 'löngun' í að keyra hratt þá einfaldlega fer ég fram úr þeim bíl, stefnuljós með góðum fyrirvara, og fer svo upp í eins og kannski 100-110. Þegar ég svo er kominn fyrir framan bílinn, langt fyrir framan, þá gef ég í.
En sjái ég annan bíl framundan, þá auðvitað hægi ég á mér.


Afsakið langt svar, þetta var bara að naga mig.
Ég kann að keyra eins og maður. Það kemur akstri undir áhrifum kannabis ekkert við.

bætt við:
Því ættu radarvarar að vera ónauðsynlegir. Þeir eru einfaldlega fyrir þá sem vilja fara hratt innanbæjar, þar sem ekki er ætlast til að fólk fari yfir hámarkshraða. Af augljósum ástæðum.

Re: Glæfraakstur

Sent: Mán 14. Jan 2013 17:28
af vesley
Þótt að þú getur keyrt eðlilega undir áhrifum merkir það ekki að það réttlætir aksturinn.

Ef ég er betri ökumaður í glasi þá myndi ég samt sleppa því, sama ef ég myndi reykja kannabis eða neyta annarra fíkniefna, sama hversu góður ökumaður ég er.

Re: Glæfraakstur

Sent: Mán 14. Jan 2013 17:46
af KermitTheFrog
Það eru bara ekki allir jafn hæfir í umferðinni og að sjálfsögðu ofmetur fólk oftast hæfni sína. En það er allt ekki hægt að setja samhengi milli hraðaksturs og glannaskaps í öllum tilfellum.

Re: Glæfraakstur

Sent: Mán 14. Jan 2013 17:51
af Varasalvi
DJOli skrifaði:mér finnst eins og verið sé að setja mig í sæti brjálæðings, og ökuníðings þegar ég tala um að hafa verið tekinn skakkur, og sviptur.

Ég var á 50 kílómetra hraða, á 90 götu.
Að segja að það sé mér að kenna ef einhver bombar aftan á mig hljómar bara eins og út úr kjafti hræsnara sem keyrir sjálfur eins og hauslaus hæna.

Ég lagði aldrei nokkurn mann í hættu með 'fíkniefnaakstrinum mínum' enda keyrði ég aldrei lengur en í tæpan klukkutíma undir áhrifum. Ég fór aldrei yfir löglegan hámarkshraða, hvað þá ef ég komst nálægt honum vegna þess að mér fannst allt fara hraðar en það var. Ef eitthvað, miðað við frásögn mína, þá ætti ég að hafa keyrt 100 sinnum út af, en slík er raunin ekki. Ég hvorki lenti í, né olli slysi á meðan ég keyrði svona.
Mér er vitanlega sama um þennan fíkniefnaakstur minn, og mér er sama um sektina sem ég fékk, en það þýðir ekki að mér sé 'sama' um að keyra á kannski 100 á 35 götu. hvað þá 100 á 50 götu, eða bara 10 yfir innanbæjar, sérstaklega í hýbýla eða skólahverfum.

Ef ég keyri hratt (edrú, auðvitað) þá geri ég það utanbæjar, og þá geng ég úr skugga um að sjá almennilega fyrir framan mig. Ég er ekkert að fara að gefa í ef blindhæð er framundan. Ég er of mikil 'skræfa' til þess.
Ef bíll er fyrir framan mig, og ég hef þá 'löngun' í að keyra hratt þá einfaldlega fer ég fram úr þeim bíl, stefnuljós með góðum fyrirvara, og fer svo upp í eins og kannski 100-110. Þegar ég svo er kominn fyrir framan bílinn, langt fyrir framan, þá gef ég í.
En sjái ég annan bíl framundan, þá auðvitað hægi ég á mér.


Afsakið langt svar, þetta var bara að naga mig.
Ég kann að keyra eins og maður. Það kemur akstri undir áhrifum kannabis ekkert við.

bætt við:
Því ættu radarvarar að vera ónauðsynlegir. Þeir eru einfaldlega fyrir þá sem vilja fara hratt innanbæjar, þar sem ekki er ætlast til að fólk fari yfir hámarkshraða. Af augljósum ástæðum.


Þú getur léttilega stórslasað og þessvegna drepið manneskju á 50km hraða. Er það ekki rétt hjá mér að keyra skakkur er svipað slæmt og að keyra fullur? Bæði geta lengt viðbragðtímann um helling, og minkar einbeitingu? Ef það er rétt hjá mér þá sé ég ekki hvernig sé hægt að seiga að keyra skakkur sé allt í lagi, sama hversu hægt þú keyrir.