Síða 1 af 1

vélastilling á bíl... Hvar eru góð verð?

Sent: Þri 23. Okt 2012 08:23
af Aimar
er með volvo disel 2006
þarf að láta stilla og setja í kerti, olíusíu og loftsíu.

er staður sem menn mæla með upp á verð?

Re: vélastilling á bíl... Hvar eru góð verð?

Sent: Þri 23. Okt 2012 10:49
af Jón Ragnar
Ferð bara í Max1. þeir sjá um Volvo mikið

Ekkert sem heitir "stilling" til á svona nýja bíla

Re: vélastilling á bíl... Hvar eru góð verð?

Sent: Þri 23. Okt 2012 12:59
af axyne
max1 er okurbúlla.

QuickFix eru eflaust með þeim ódýrari.

held samt að það ætti hvaða bílaverkstæði/smurolíustöð að geta reddað þér.

Re: vélastilling á bíl... Hvar eru góð verð?

Sent: Þri 23. Okt 2012 13:15
af tlord
Aimar skrifaði:er með volvo disel 2006
þarf að láta stilla og setja í kerti, olíusíu og loftsíu.

er staður sem menn mæla með upp á verð?


kerti í disel?

Re: vélastilling á bíl... Hvar eru góð verð?

Sent: Þri 23. Okt 2012 13:42
af halli7
tlord skrifaði:
Aimar skrifaði:er með volvo disel 2006
þarf að láta stilla og setja í kerti, olíusíu og loftsíu.

er staður sem menn mæla með upp á verð?


kerti í disel?

Glóðarkerti.

Re: vélastilling á bíl... Hvar eru góð verð?

Sent: Þri 23. Okt 2012 13:50
af tlord
í 2006 volvo??

Re: vélastilling á bíl... Hvar eru góð verð?

Sent: Þri 23. Okt 2012 13:56
af Ripparinn
Díselvélar brenna eldsneyti undir eigin þrýstingi, ferlið fer fram þannig að eldsneyti er sprautað inn í brunarýmið með dísum eftir að lofti hefur verið þjappað í rýminu. Við þetta kviknar í olíunni undan þrýstingi. Ólíkt bensínvélum, sem að blandar bensín og lofti saman áður en að kveikt er í eldsneytinu, þarf díselvélin ekki kerti til þess að kveikja í eldsneytinu.

Re: vélastilling á bíl... Hvar eru góð verð?

Sent: Þri 23. Okt 2012 13:58
af tlord
Ripparinn skrifaði:Díselvélar brenna eldsneyti undir eigin þrýstingi, ferlið fer fram þannig að eldsneyti er sprautað inn í brunarýmið með dísum eftir að lofti hefur verið þjappað í rýminu. Við þetta kviknar í olíunni undan þrýstingi. Ólíkt bensínvélum, sem að blandar bensín og lofti saman áður en að kveikt er í eldsneytinu, þarf díselvélin ekki kerti til þess að kveikja í eldsneytinu.


this..

Re: vélastilling á bíl... Hvar eru góð verð?

Sent: Þri 23. Okt 2012 14:07
af Kristján Gerhard
Glóðarkerti eru til þess að koma kaldri díselvél í gang. Glóðarkerti eru oft kallaður forhitari og er ástæðan fyrir því að þú þarft að bíða meðan "slaufuljósið" logar. Forhitun með glóðarkertum stendur yfirleitt í um 15-20 sek. Stundum er um eftirhitun að ræða í uþb. 1 mínútu.

Re: vélastilling á bíl... Hvar eru góð verð?

Sent: Þri 23. Okt 2012 14:10
af tlord
slaufa, hmm ég hélt að þetta væri gormur,
til að spyrna vélinni í gang eða eitthvað....

Re: vélastilling á bíl... Hvar eru góð verð?

Sent: Fim 25. Okt 2012 15:06
af DabbiGj
Besserwisser dagsins fundinn!

Re: vélastilling á bíl... Hvar eru góð verð?

Sent: Fim 25. Okt 2012 15:43
af frr
Það er rétt að nútímavélar þurfa ekki þessar stillingar eins og áður, það er tölva/tölvur sem sér stöðugt um að tjúna.
Það er kannski frekar spurning um að láta lesa af tölvunni í bílnum, upp á hvort einhverjar villur eru o.þ.h.
Ertu viss um að glóðarkertin séu léleg? Er hann lélegur í gang?

Re: vélastilling á bíl... Hvar eru góð verð?

Sent: Fim 25. Okt 2012 19:04
af Black
Það var nú einn ónafngreindur hér á vaktinni, sem talaði um að hita gormana áður en væri startað bílnum :guy

Re: vélastilling á bíl... Hvar eru góð verð?

Sent: Þri 17. Sep 2013 20:54
af Dazy crazy
Ripparinn skrifaði:Díselvélar brenna eldsneyti undir eigin þrýstingi, ferlið fer fram þannig að eldsneyti er sprautað inn í brunarýmið með dísum eftir að lofti hefur verið þjappað í rýminu. Við þetta kviknar í olíunni undan þrýstingi. Ólíkt bensínvélum, sem að blandar bensín og lofti saman áður en að kveikt er í eldsneytinu, þarf díselvélin ekki kerti til þess að kveikja í eldsneytinu.


Þetta er voðalega wikilegt haha
http://is.wikipedia.org/wiki/D%C3%ADsilv%C3%A9l


Black skrifaði:Það var nú einn ónafngreindur hér á vaktinni, sem talaði um að hita gormana áður en væri startað bílnum :guy


áður en bílnum væri startað*

Það geta öll bílaverkstæði og allar smurstöðvar skipt um loftsíu og olíusíu fyrir þig og það er gert í ferlinu þegar þú ferð með bílinn í smurningu. Gott samt að nefna það við þá að skipta um loftsíu til öryggis en yfirleitt eru þeir mjög duglegir að skipta um loftsíu enda lítið mál og hægt að rukka fyrir það. :lol:

Re: vélastilling á bíl... Hvar eru góð verð?

Sent: Þri 17. Sep 2013 22:02
af littli-Jake
Ég mundi fara í Max1 Þar sem þeir eru undirverkstæði hjá Brimborg sem eru með umboð fyrir Volvo.

Ekki það að það þarf ekki mikla sérþekkingu til að skipta um glóðakerti og olíu.

Re: vélastilling á bíl... Hvar eru góð verð?

Sent: Mið 18. Sep 2013 16:04
af hamop
Bílhúsið hefur talsvert verið að eiga við Brimborgar-bíla.