Síða 1 af 1

Veit einhver hvað í ósköpunum þetta er?

Sent: Lau 15. Sep 2012 18:32
af mikkidan97
Var að skoða vespuna mína þegar ég rakst á þetta stykki. Vespan er af gerðinni Vento Zip Li.

Mynd

Re: Veit einhver hvað í ósköpunum þetta er?

Sent: Lau 15. Sep 2012 18:36
af littli-Jake
Ætli þetta sé ekki einhverskonar ECU. Mundi allavega reyna að halda þessu þurru.

Re: Veit einhver hvað í ósköpunum þetta er?

Sent: Lau 15. Sep 2012 18:38
af mikkidan97
littli-Jake skrifaði:Ætli þetta sé ekki einhverskonar ECU. Mundi allavega reyna að halda þessu þurru.

Já, en til hvers þarf maður ECU í vespu?

Re: Veit einhver hvað í ósköpunum þetta er?

Sent: Lau 15. Sep 2012 18:41
af rapport

Re: Veit einhver hvað í ósköpunum þetta er?

Sent: Lau 15. Sep 2012 18:42
af Gúrú
littli-Jake skrifaði:Ætli þetta sé ekki einhverskonar ECU. Mundi allavega reyna að halda þessu þurru.

Það eða kveikjan. Bæði lítur oft svona út eins og á myndinni hans.

Mynd

Mynd

Re: Veit einhver hvað í ósköpunum þetta er?

Sent: Lau 15. Sep 2012 18:47
af mikkidan97
Gúrú skrifaði:
littli-Jake skrifaði:Ætli þetta sé ekki einhverskonar ECU. Mundi allavega reyna að halda þessu þurru.

Það eða kveikjan. Bæði lítur oft svona út eins og á myndinni hans.

Mynd

Mynd

Er ekki hægt að fá svipað stykki (nýtt) sem leyfir vélinni að snúast aðeins hraðar?

Re: Veit einhver hvað í ósköpunum þetta er?

Sent: Lau 15. Sep 2012 18:57
af Gúrú
Ég veit ekkert um vespur en ég veit að betri kveikja myndi ekki hjálpa þér mikið í þeirri deild. ;)

Þú þarft að fara á mjög sérhæft vespuspjallborð með eigendum nákvæmlega þessarar vespu til að fá svar við þessari pælingu þinni grunar mig.

Einnig: Ég efa það að þú viljir auka hraðann á vélinni. Framleiðandinn sem starfrækir eflaust haug af verkfræðingum
ákvað að láta vélina snúast á núverandi hraða með tillit til restinnar af vespunni, ef þú vilt taka áhættuna á því að skemma hana þá er það samt þitt val.

Re: Veit einhver hvað í ósköpunum þetta er?

Sent: Lau 15. Sep 2012 18:59
af mikkidan97
Gúrú skrifaði:Ég veit ekkert um vespur en ég veit að betri kveikja myndi ekki hjálpa þér mikið í þeirri deild. ;)

Þú þarft að fara á mjög sérhæft vespuspjallborð með eigendum nákvæmlega þessarar vespu til að fá svar við þessari pælingu þinni grunar mig.

Geri það ;)

Re: Veit einhver hvað í ósköpunum þetta er?

Sent: Lau 15. Sep 2012 19:07
af Garri
CDI er nokkurskonar háspennu þéttir fyrir kveikjuna. Miðað við stærðina þá mundi ég segja þetta vera AC-CDI sem leyfir enga breytingu á tíma skv. minni bestu vitund.

Varðandi snúningshraða og innsigli, er það ekki ennþá í gegnum blöndunginn eins og í gamla daga?

Re: Veit einhver hvað í ósköpunum þetta er?

Sent: Lau 15. Sep 2012 20:45
af mainman
þetta er standard CDI box í tvígengisvespu.
þessi vespa sem þú ert með er ekki með innsigli og ef þig langar að tjúna hana þá getur þú skipt út pústinu og lofthreinsaranum, þarft að athuga hvort þú sért með 17 eða 19mm blöndung og stækka hann þá ef þú ert með 17mm torinn en skipta út jet ef þú ert með stærri blöndunginn.
Síðan til að fá meiri endahraða og snarpara upptak þá skiptir þú út vigtunum í fremri kúplingunni og miðjuhólkinum því hann kemur með skífu sem stoppar færsluna á kúplingunni svo hún komist ekki mikið hraðar en 45km hraða eins og lög segja til um.
Síðan ef þig langar í enn meira þá færðu þér 70cc kit en þá eru tvær gerðir sem koma til greina í vento vespunum og það er ekki hægt að sjá hvora gerðina þig vantar fyrr en þú ert búinn að rífa cylenderinn úr og mæla stimpilboltann því það eru til 10mm og 12mm stimpilboltar í þessum mótorum og það virðist bara vera sitt á hvað í vento zip og ekki einu sinni umboðið veit hvor gerðin það er fyrr en það er búið að rífa mótorinn. Ég veit að t.d. VDO á 10mm settið en veit ekki hvar þú fengir 12mm, gætir athugað hjá JHM mótorsport,
Mér vitanlega ertu ekkert að græða á því að skipta um CDI boxið í þessum tvígengismótorum fyrr en þú ert farinn að taka eitthvað mikið út úr honum, þú græðir hins vegar slatta mikið á því að skipta um CDI í fjórgengisvespu þar sem það flýtir kveikjunni og lofar þér að komast 1500-3000 snúningum hærra.
Vona að þetta hjálpi þér eitthvað.

Re: Veit einhver hvað í ósköpunum þetta er?

Sent: Sun 16. Sep 2012 19:06
af mikkidan97
mainman skrifaði:þetta er standard CDI box í tvígengisvespu.

Hvernig get ég athugað hvort ég er með 17 eða 19 mm blöndung. Ég veit hvar blöndungurinn er, but that's about it

Re: Veit einhver hvað í ósköpunum þetta er?

Sent: Sun 16. Sep 2012 19:39
af Gúrú
mikkidan97 skrifaði:Hvernig get ég athugað hvort ég er með 17 eða 19 mm blöndung. Ég veit hvar blöndungurinn er, but that's about it

Mælir innra þvermálið á blöndunginum þeim megin sem vélin er með t.d. reglustiku.

Re: Veit einhver hvað í ósköpunum þetta er?

Sent: Sun 16. Sep 2012 22:09
af spankmaster
Eða þú getur bara selt vespu draslið og keypt þér eitthvað með almennilegu afli :hillarius :hillarius :hillarius

Sorry, ég bara get ekki haldið þessum inni, geðveikt óþroskaður húmor að drepa mann hérna :baby

En svona útaf því að notendanafið þitt er "mikkidan97" ætla ég að áætla að þú sért fæddur 97 og getur ekki keyrt neitt annað þannig ég byðst aftur fyrirgefningar á offtopic trolli :troll

Re: Veit einhver hvað í ósköpunum þetta er?

Sent: Mán 17. Sep 2012 11:13
af mikkidan97
spankmaster skrifaði:Eða þú getur bara selt vespu draslið og keypt þér eitthvað með almennilegu afli :hillarius :hillarius :hillarius

Sorry, ég bara get ekki haldið þessum inni, geðveikt óþroskaður húmor að drepa mann hérna :baby

En svona útaf því að notendanafið þitt er "mikkidan97" ætla ég að áætla að þú sért fæddur 97 og getur ekki keyrt neitt annað þannig ég byðst aftur fyrirgefningar á offtopic trolli :troll

Eftir nokkur ár verður maður náttúrulega að fá sér 1100cc racer eða eitthvað ;)