Síða 1 af 2

Mikill verðmunur á bílavarahlutum og þjónustu

Sent: Fim 24. Maí 2012 14:05
af GuðjónR
Fékk endurskoðun á Kangoo, gormurinn hægra megin brotinn og stýrisendi líka hægra megin ónýtur.
Ég gerði könnun:

B&L
33. 834.- gormur
9.597.- stýrisendi
------------------
43.431.- efni
37.000.- vinna
------------------
80.431.- alls

A-B varahlutir
11.995.- gormur
3.798.- stýrisendi
------------------
15.793.- efni
21.500.- vinna (kvikkþjónustan)
------------
37.293.- alls

Það borgar sig að gera smá heimavinnu!!
Hvað heitir aftur verkstæðið í kópavogi þar sem þið hafið látið skipta um olíu og smáviðgerðir?

Re: Mikill verðmunur á bílavarahlutum og þjónustu

Sent: Fim 24. Maí 2012 14:08
af vesi
Kangoo hefur ekki hingað til verið gerður fyrir rally-akstur.... :megasmile

en já allveg sammála þér með heimavinnuna, vantaði legu í galant og helkla vildi selja mér hana á 50k+ fékk hana svo í fálkanum á rúmlega 15k.. skipti um sjálfur reindar,, Elska auglísinguna frá heklu "gerðu verðsamanburð" minnir mig alltaf á að versla ALDREI við Hekla

Re: Mikill verðmunur á bílavarahlutum og þjónustu

Sent: Fim 24. Maí 2012 14:17
af MatroX
finnst 21.500 samt of mikið

þetta væri svona max 19þús í vinnu án afsláttar hjá N1

ef þú hefðir talað við mig strax myndi þetta nokkurnveginn líta svona út með afslætti


Gormur
11.173.-
Stýrisendi
4.396.-

Vinna
15.801.- max gæti verið minna
Efni
15.596.-
---------------
Samtals
31.370*


*með fyrirvara að þetta séu réttu varahlutirnir. til þess að vera 100% þarf ég bílnúmer

Re: Mikill verðmunur á bílavarahlutum og þjónustu

Sent: Fim 24. Maí 2012 14:20
af GuðjónR
MatroX skrifaði:finnst 21.500 samt of mikið

þetta væri svona max 19þús í vinnu án afsláttar hjá N1

ef þú hefðir talað við mig strax myndi þetta nokkurnveginn líta svona út með afslætti


Gormur
11.173.-
Stýrisendi
4.396.-

Vinna
15.801.- max gæti verið minna
Efni
15.596.-
---------------
Samtals
31.370*


*með fyrir vara að þetta séu réttu varahlutirnir. til þess að vera 100% þarf ég bílnúmer


Ekkert of seint ennþá, er ekki búinn að kaupa neitt ;)

Númer: MR 982

Re: Mikill verðmunur á bílavarahlutum og þjónustu

Sent: Fim 24. Maí 2012 14:26
af intenz
Það er ekkert nýtt að umboðin ofrukki bæði fyrir varahluti og þjónustu. :megasmile

Re: Mikill verðmunur á bílavarahlutum og þjónustu

Sent: Fim 24. Maí 2012 14:28
af MatroX
11.174.- gormur
3.473.- stýrisendi
------------------
14.647.- efni
15.801.- vinna
------------
30.448.- alls

Re: Mikill verðmunur á bílavarahlutum og þjónustu

Sent: Fim 24. Maí 2012 14:40
af GuðjónR
MatroX skrifaði:11.174.- gormur
3.473.- stýrisendi
------------------
14.647.- efni
15.801.- vinna
------------
30.448.- alls


Klárlega besta verðið!
Minna en "gormurinn" hjá umboðinu...

Re: Mikill verðmunur á bílavarahlutum og þjónustu

Sent: Fim 24. Maí 2012 15:57
af lukkuláki
MatroX skrifaði:þetta væri svona max 19þús í vinnu án afsláttar hjá N1


Ég hef æ oftar verið að fara með minn bíl á N1 og er mjög sáttur með verð og viðgerðir :)

Re: Mikill verðmunur á bílavarahlutum og þjónustu

Sent: Fim 24. Maí 2012 16:11
af CendenZ
Ég hef líka keypt af AB varahlutum og farið með þá til Kvikkfix.

Ég átti volvó, brimborg, do I need to say more ?

BL eru bara kettlingar miðað við Brimborg.

Re: Mikill verðmunur á bílavarahlutum og þjónustu

Sent: Fim 24. Maí 2012 16:17
af capteinninn
CendenZ skrifaði:Ég hef líka keypt af AB varahlutum og farið með þá til Kvikkfix.

Ég átti volvó, brimborg, do I need to say more ?

BL eru bara kettlingar miðað við Brimborg.


Ég kaupi allt hjá AB Varahlutum, eiginlega alltaf með besta verðið og ef ekki þá er það aðeins hærra og ég vill frekar kaupa hjá þeim en að spara mér nokkur hundruð krónur.

Re: Mikill verðmunur á bílavarahlutum og þjónustu

Sent: Fim 24. Maí 2012 16:18
af Daz
MatroX skrifaði:11.174.- gormur
3.473.- stýrisendi
------------------
14.647.- efni
15.801.- vinna
------------
30.448.- alls


Þú minnist á afslátt fyrr í þræðinum. Hvað hefði þetta verið án afsláttar, svo aðrir notendur geti reynt að nothæfann samanburð líka. Ekki fá allir afslátt er það?

Re: Mikill verðmunur á bílavarahlutum og þjónustu

Sent: Fim 24. Maí 2012 16:26
af MatroX
Daz skrifaði:
MatroX skrifaði:11.174.- gormur
3.473.- stýrisendi
------------------
14.647.- efni
15.801.- vinna
------------
30.448.- alls


Þú minnist á afslátt fyrr í þræðinum. Hvað hefði þetta verið án afsláttar, svo aðrir notendur geti reynt að nothæfann samanburð líka. Ekki fá allir afslátt er það?



já lítið mál að gefa ykkur verð án afsláttar

Gormur
12.698.-
Stýrisendi
3.947.-

Vinna
18.590.- max gæti verið minna
Efni
16.645.-
---------------
Samtals
35.235

Re: Mikill verðmunur á bílavarahlutum og þjónustu

Sent: Fim 24. Maí 2012 16:32
af vesley
Þurfti að skipta um Afturdempara og gorm í Forester hjá pabba

N1 sagði að vinnan myndi ekki vera meira en 15þús kall.

Þegar hann mætti rukkuðu þeir hann um 26þús en hann lét vita hvað þeir höfðu sagt áður og þá voru þeir ekki lengi að lækka. Smá mismunun á viðskiptavinum..

Re: Mikill verðmunur á bílavarahlutum og þjónustu

Sent: Fim 24. Maí 2012 16:37
af fannar82
Jámm, Ódýrt í N1

Hvað var aftur afskrifað á N1 2010 og í 2011 voru það ekki 2x 600mills or sum? sem Ríkið(Þið) borguðu
ekkert mál að vera 70% lægri í öllu ef þú færð lagerinn þinn afskrifaðan á hverju ári

langaði bara að benda á þetta.


N1 = :thumbsd :thumbsd :thumbsd :thumbsd :thumbsd :thumbsd :thumbsd :thumbsd :thumbsd :thumbsd

(ps, ég vinn ekki hjá bíla umboði)


edit- smá laga smá stafsetningar feil

Re: Mikill verðmunur á bílavarahlutum og þjónustu

Sent: Fim 24. Maí 2012 16:39
af MatroX
vesley skrifaði:Þurfti að skipta um Afturdempara og gorm í Forester hjá pabba

N1 sagði að vinnan myndi ekki vera meira en 15þús kall.

Þegar hann mætti rukkuðu þeir hann um 26þús en hann lét vita hvað þeir höfðu sagt áður og þá voru þeir ekki lengi að lækka. Smá mismunun á viðskiptavinum..


ég veit ekki hvað fór fram þarna. það getur alltaf eitthvað komið upp og þar fram eftir


en ég var bara að reikna með max 2 tímum sem þetta ætti að taka. ég stend við þau verð sem ég gef upp svona í tilboði

Re: Mikill verðmunur á bílavarahlutum og þjónustu

Sent: Fim 24. Maí 2012 16:58
af Daz
Höldum áfram að neytendavaktast.
Sé í upphaflega tilboðinu frá Guðjóni

21.500.- vinna (kvikkþjónustan)

Hver ætli sé munurinn á kvikkþjónustu og N1 þjónustu? Erum við að tala um styttri biðtíma kannski?

Re: Mikill verðmunur á bílavarahlutum og þjónustu

Sent: Fim 24. Maí 2012 17:27
af MatroX
Daz skrifaði:Höldum áfram að neytendavaktast.
Sé í upphaflega tilboðinu frá Guðjóni

21.500.- vinna (kvikkþjónustan)

Hver ætli sé munurinn á kvikkþjónustu og N1 þjónustu? Erum við að tala um styttri biðtíma kannski?

lægra verð á klukkutímanum hjá N1

Re: Mikill verðmunur á bílavarahlutum og þjónustu

Sent: Fim 24. Maí 2012 17:30
af gardar
Hvað með að gera þetta bara sjálfur og borga þá 0kr í vinnu?

Re: Mikill verðmunur á bílavarahlutum og þjónustu

Sent: Fim 24. Maí 2012 17:34
af Blackened
gardar skrifaði:Hvað með að gera þetta bara sjálfur og borga þá 0kr í vinnu?


Alls ekkert allir sem að hafa kunnáttu/aðstöðu/verkfæri til að standa í svona hlutum.. meina tildæmis í þetta verk þarftu væntanlega að nota gormaklemmu sem er til á hverju verkstæði en þetta er ekki eitthvað sem að þessi meðal maður á útí bæ

hugsa að margir séu bara tilbúnir til að láta fagmenn vinna verkið fyrir sig í staðinn fyrir að liggja grútskítugir undir bílnum útá bílastæði með tjakk og lélegt lyklasett úr verkfæralagernum með tilheyrandi veseni ;)

..annars geri ég svosem meira og minna allt sjálfur við minn bíl.. en ég hef líka aðstöðu til þess ;)

Re: Mikill verðmunur á bílavarahlutum og þjónustu

Sent: Fim 24. Maí 2012 20:04
af littli-Jake
Varahlutirnir hjá B&L ( sem er reyndar ekki til lengur) Er þetta orginal eða aftermarket?. Ég veit að bremsuklossar og diskar undir subaru kosta vel yfir 100K orginal en kringum 35-45K aftermarket.

Re: Mikill verðmunur á bílavarahlutum og þjónustu

Sent: Fim 24. Maí 2012 20:13
af GuðjónR
Veit ekki hvort það er original eða aftermarket enda skiptir það litlu, þetta drasl bilar allt hvort sem er fyrr eða síðar. Og þá aðalega fyrr :face
Ætla að kanna kvikkfix á morgun, og líka N1 í rvik ... allt of langt að keyra til Keflavíkur jafnvel þó MatroX sé þar ;)

Re: Mikill verðmunur á bílavarahlutum og þjónustu

Sent: Fim 24. Maí 2012 20:28
af CendenZ
littli-Jake skrifaði:Varahlutirnir hjá B&L ( sem er reyndar ekki til lengur) Er þetta orginal eða aftermarket?. Ég veit að bremsuklossar og diskar undir subaru kosta vel yfir 100K orginal en kringum 35-45K aftermarket.



Glætan :shock:

Re: Mikill verðmunur á bílavarahlutum og þjónustu

Sent: Fim 24. Maí 2012 20:53
af viddi
Mæli með því að kíkja í GS Varahluti, þeir eru ódýrir.

Re: Mikill verðmunur á bílavarahlutum og þjónustu

Sent: Fim 24. Maí 2012 21:36
af vesley
CendenZ skrifaði:
littli-Jake skrifaði:Varahlutirnir hjá B&L ( sem er reyndar ekki til lengur) Er þetta orginal eða aftermarket?. Ég veit að bremsuklossar og diskar undir subaru kosta vel yfir 100K orginal en kringum 35-45K aftermarket.



Glætan :shock:



Original demparinn undir Forester hjá pabba var á 105þús kall hjá umboði :lol:

Re: Mikill verðmunur á bílavarahlutum og þjónustu

Sent: Fim 24. Maí 2012 22:07
af KermitTheFrog
Partasölur og minni verkstæði eru alltaf mun ódýrari en umboð, það er bara staðreynd.