Síða 1 af 4
Rafmagnsvespur
Sent: Lau 23. Apr 2011 18:39
af reyndeer
Ok, eins mikið og mig langar að stofna account á barnahlandi og ná til fleira fólks, ætla ég ekki að gera það. Nú eru komnar á markað hér á landi vespur sem ganga á rafmagni eingöngu. Þessar vespur eru læstar í 25 Km hraða og eru ætlaðar til notkunar á göngustígum. Þær eru númerslausar og gilda sömu reglur um þær og reiðhjól, að undanskildum hraðatakmörkuninni. Nú langar mig að ná til fólks sem hefur ekki hugmynd um þessi fyrirbæri: HÆTTIÐ AÐ FOKKING FLAUTA OG SEGJA MANNI AÐ FARA ÚT Á GÖTU!!!
ÞEIM ER ÆTLAÐ AÐ AKA Á GÖNGUSTÍGUM OG ERU EKKI ÆTLAÐAR TIL AKSTURS Á UMFERÐAGÖTUM.
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2010/ ... _reidhjol/Takk fyrir að lesa
Re: Rafmagnsvespur
Sent: Lau 23. Apr 2011 18:42
af addifreysi
Maður fær sér ekki rándýra rafmagnsvespu til að komast bara á 25 Km hraða og bara á göngustígum!
Re: Rafmagnsvespur
Sent: Lau 23. Apr 2011 18:44
af worghal
pff, ég hef komist hraðar en 25km hraða á reiðhjóli
Re: Rafmagnsvespur
Sent: Lau 23. Apr 2011 18:47
af addifreysi
worghal skrifaði:pff, ég hef komist hraðar en 25km hraða á reiðhjóli
nákvæmlega, liggur við að maður labbi hraðar enn þetta kemst.
Re: Rafmagnsvespur
Sent: Lau 23. Apr 2011 18:59
af vidirz
Ég er með hraðamæli á reiðhjólinu mínu og hef náð max upp í 72 km/klst (niður brekku)
Re: Rafmagnsvespur
Sent: Lau 23. Apr 2011 19:03
af Jim
Haha ég myndi aldrei láta sjá mig á vespu, hvað þá einni sem að gengur fyrir rafmagni! Frekar geng ég.
vidirz skrifaði:Ég er með hraðamæli á reiðhjólinu mínu og hef náð max upp í 72 km/klst (niður brekku)
Það er bara geðbilun! Ég hef aðeins rétt slefað yfir 40.
Re: Rafmagnsvespur
Sent: Lau 23. Apr 2011 19:04
af Klemmi
vidirz skrifaði:Ég er með hraðamæli á reiðhjólinu mínu og hef náð max upp í 72 km/klst (niður brekku)
Uss, á þeim hraða væri mér hætt að vera sama... þarf ekki nema einn smá stein sem þú sérð illa á þessum hraða til að fleygja þér á hausinn
Re: Rafmagnsvespur
Sent: Lau 23. Apr 2011 19:06
af worghal
Klemmi skrifaði:vidirz skrifaði:Ég er með hraðamæli á reiðhjólinu mínu og hef náð max upp í 72 km/klst (niður brekku)
Uss, á þeim hraða væri mér hætt að vera sama... þarf ekki nema einn smá stein sem þú sérð illa á þessum hraða til að fleygja þér á hausinn
hef farið niður brekku á sambærilegum hraða, ef ekki hraðar og ég gat varla beigt.
Re: Rafmagnsvespur
Sent: Lau 23. Apr 2011 19:18
af Kristján
já sæll þetta á svo ekki heima á gangstéttum, og reiðhjól eiga ekki að vera á götunni, bara pirrandi að fá folk fyrir framann mann á reiðhjóli.
Re: Rafmagnsvespur
Sent: Lau 23. Apr 2011 19:21
af vidirz
Jáh, enda vill ég aldrei fara á þennan hraða aftur.. Var ekki með hjálm
Re: Rafmagnsvespur
Sent: Lau 23. Apr 2011 19:34
af Black
methraðinn minn á reiðhjóli er 92.5 kmh
Re: Rafmagnsvespur
Sent: Lau 23. Apr 2011 20:05
af vidirz
Black skrifaði:methraðinn minn á reiðhjóli er 92.5 kmh
Re: Rafmagnsvespur
Sent: Lau 23. Apr 2011 20:08
af lukkuláki
Vandamálið hér á landi er það að það er sjaldnast gert ráð fyrir svona tækjum á göngustígum
en með tilkomu tækjanna þarf nauðsynlega að gera ráð fyrir þeim í umferðinni einhvern staðar.
Bensínknúnar vespur (skellinöðrur) eru bannaðar á gögngustígum en ég veit ekki með rafmagnsvespur sennilega eru bara ekki til nein lög fyrir þær en
það á væntanlega eftir að breytast því þetta getur alveg verið hættulegt þó þetta komist bara 25 km/klst. Það verða sjálfsagt settar reglur um hjálma oþh.
Sumstaðar er farið að merkja sérstaklega reiðhjólastíga og þann hluta sem reiðhjólið á að vera ég geri ráð fyrir því að þessi tæki meigi aka þar?
Eins þyrfti að setja upp staði þar sem hægt væri að kaupa hleðslutíma fyrir vespuna td. í miðbænum og við verslunarmiðstöðvar.
Re: Rafmagnsvespur
Sent: Lau 23. Apr 2011 20:08
af Zethic
Black skrifaði:methraðinn minn á reiðhjóli er 92.5 kmh
Einar.. frændi minn.. komst einu sinni á 150 kmh á reiðhjóli !
Re: Rafmagnsvespur
Sent: Lau 23. Apr 2011 20:51
af reyndeer
LOL, vissi ekki að þessi þráður myndi ögra karlmennskunni í öðrum strákum svona SVAÐALEGA XD
Re: Rafmagnsvespur
Sent: Lau 23. Apr 2011 20:52
af worghal
reyndeer skrifaði:LOL, vissi ekki að þessi þráður myndi ögra karlmennskunni í öðrum strákum svona SVAÐALEGA XD
vespur, segir sig sjálft
Re: Rafmagnsvespur
Sent: Lau 23. Apr 2011 21:00
af reyndeer
worghal skrifaði:reyndeer skrifaði:LOL, vissi ekki að þessi þráður myndi ögra karlmennskunni í öðrum strákum svona SVAÐALEGA XD
vespur, segir sig sjálft
Sorry, I just don't get it. Fyrir mér er vespa bara farartæki eins og bíll, ég nota þetta til að komast milli staða, og jú, kannski njóta þess á vissan hátt. En að vera að koma með svona komment sem koma beint frá typpinu, eins og að metast um hver kemst hraðast og á stærsta og flottasta af öllu, again, sorry, I just don't get it...
Re: Rafmagnsvespur
Sent: Lau 23. Apr 2011 21:40
af GuðjónR
Ef ég væri að labba með barnavagn á gangstétt og einhver hlandhaus kæmi á móti mér á vélhjóli á 25km hraða þá myndi ég hrinda honum út á götu án þess að hika.
Re: Rafmagnsvespur
Sent: Lau 23. Apr 2011 21:42
af Páll
GuðjónR skrifaði:Ef ég væri að labba með barnavagn á gangstétt og einhver hlandhaus kæmi á móti mér á vélhjóli á 25km hraða þá myndi ég hrinda honum út á götu án þess að hika.
Hann er þarna með sömu réttindi og þú. Svo að hann gæti sennilegast kært þig fyrir það.
Re: Rafmagnsvespur
Sent: Lau 23. Apr 2011 21:44
af lukkuláki
Páll skrifaði:GuðjónR skrifaði:Ef ég væri að labba með barnavagn á gangstétt og einhver hlandhaus kæmi á móti mér á vélhjóli á 25km hraða þá myndi ég hrinda honum út á götu án þess að hika.
Hann er þarna með sömu réttindi og þú. Svo að hann gæti sennilegast kært þig fyrir það.
Segi það með þér GuðjónR
það er ekki rétt hjá þér Páll. Gangandi vegfarandi er alltaf rétthærri.
Það var allavega þannig þegar ég tók öll þau próf sem ég hef á öll ökutæki.
Re: Rafmagnsvespur
Sent: Lau 23. Apr 2011 21:49
af GuðjónR
Ég var ný reyndar að fíflast, myndi aldrei hrinda neinum.
Hitt er annað að 25 km. hraði er mikill hraði á hjóli.
Ekkert sem réttlætir þann hraða á gangstétt.
Re: Rafmagnsvespur
Sent: Lau 23. Apr 2011 21:56
af Klemmi
Hef það af bitri reynslu að maður hrindir ekki eða bankar í hluti á miklum hraða... Sló með opnum lófa utan í strætó sem ég var að reyna að ná þegar ég var yngri , var skokkandi hliðiná honum þegar hann lagði af stað og var að vonast til að hann myndi heyra þetta bank mitt, nema hvað að þessi litla snerting utan í strætóin var nóg til að ég flaug á hausinn
Re: Rafmagnsvespur
Sent: Lau 23. Apr 2011 21:58
af FriðrikH
Ég hjóla mjög mikið og er á þeirri skoðun að reiðhjól eigi í mörgum tilfellum ekki heima á göngustígum enda hættulegt ef maður hjólaði á einhvern á kannski 30 km hraða. Enn síður eiga þessar vespur heima á gangstéttum, enda talsvert þyngri og svifaseinni en reiðhjól.
Ég hjóla nánast allaf á götunni (úti í kanti) á götum svo lengi sem hámarkshraðinn er ekki 60 eða hærri. Enda er ég yfirleitt ekki að hjóla langt undir hámarkshraða (svolítið undir á 50km götum þó). En ef gangstéttar eru breiðar og góðar þá er ég á þeim og nota að sjáfsögðu hjólastíga þar sem þeir eru. Vill vekja athygli á því að reiðhjól hafa fullan rétt á því að vera á götunni.
En hvernig er það annars með þessar rafmagnsvespur, má ekki vera á götunni á þeim? Finnst meika miklu meira sens að vera á götunni á þessu t.d. á 30 km. götum.
Re: Rafmagnsvespur
Sent: Lau 23. Apr 2011 21:58
af Larfur
Held að menn séu fullmikið að missa sig í þessum 25km hámarkshraða. Það er lítið sem ekkert mál á ná þessum hraða á reiðhjóli en það þýðir ekki að fólk sé að hjóla svo hratt í hvaða aðstæðum sem er. Gilda bara sömu lögmál og þegar maður keyrir bíl, maður keyrir eftir aðstæðum. Svo mín vegna má þetta vera á gangstéttum, væri stórhættulegt að hafa þetta á götunum.
Re: Rafmagnsvespur
Sent: Lau 23. Apr 2011 22:00
af reyndeer
GuðjónR skrifaði:Ef ég væri að labba með barnavagn á gangstétt og einhver hlandhaus kæmi á móti mér á vélhjóli á 25km hraða þá myndi ég hrinda honum út á götu án þess að hika.
Ertu fokking klikkaður?
GuðjónR skrifaði:Ég var ný reyndar að fíflast, myndi aldrei hrinda neinum.
Hitt er annað að 25 km. hraði er mikill hraði á hjóli.
Ekkert sem réttlætir þann hraða á gangstétt.
Held að meirihlutinn hafi misst af greininni sem ég sendi inn. Þetta á heima á gangstéttum. Sættu þig við það.