Síða 1 af 1

Endurnegling á nagladekkjum?

Sent: Fös 16. Okt 2009 22:58
af Hargo
Er hægt að endurnegla nagladekk sem eru búin að missa um helming naglanna úr sér? Þau eru annars ekki mjög slitin, munstrið er enn fínt.
Þekkir einhver inn á þetta? Eru einhver hjólbarðaverkstæði sem sérhæfa sig í þessu?

Megið endilega láta mig vita ef þið þekkið eitthvað inn á þetta...

Re: Endurnegling á nagladekkjum?

Sent: Fös 16. Okt 2009 23:33
af Glazier
Ég vann á dekkjaverkstæði einn vetur og þeir negla ný dekk en aldrei séð þá negla notuð dekk, því miður

Re: Endurnegling á nagladekkjum?

Sent: Lau 17. Okt 2009 00:06
af GuðjónR
Samt fræðilega hægt, þ.e. ef dekkin er heilleg, en þá þarf að bora fyrir nöglunum.
Veit ekki hvort svoleiðis aðgerð myndi borga sig, hringdu á nokkur dekkjaverkstæði og kannaðu málið.

Re: Endurnegling á nagladekkjum?

Sent: Lau 17. Okt 2009 00:18
af Hargo
GuðjónR skrifaði:Samt fræðilega hægt, þ.e. ef dekkin er heilleg, en þá þarf að bora fyrir nöglunum.
Veit ekki hvort svoleiðis aðgerð myndi borga sig, hringdu á nokkur dekkjaverkstæði og kannaðu málið.


Nú ókei. Ég hélt það væri hægt að setja nýja nagla í gömlu auðu naglastæðin....en já ég verð e-ð að skoða þetta betur.

Re: Endurnegling á nagladekkjum?

Sent: Lau 17. Okt 2009 00:19
af thiwas
ég var einmitt að kaupa nagladekk í SUMAR, og þá spurði ég mennina hvort að ég gæti keyrt á þeim ónegldum fram á haustið og fá þá svo til að negla dekkin um haustið, en hann sagði mér að það væri bara ekki hægt, ekki þegar búið væri að keyra á þeim !!

Re: Endurnegling á nagladekkjum?

Sent: Lau 17. Okt 2009 00:29
af Hargo
thiwas skrifaði:ég var einmitt að kaupa nagladekk í SUMAR, og þá spurði ég mennina hvort að ég gæti keyrt á þeim ónegldum fram á haustið og fá þá svo til að negla dekkin um haustið, en hann sagði mér að það væri bara ekki hægt, ekki þegar búið væri að keyra á þeim !!


Ah damn, var að vonast til að það væri hægt að redda sér einhvern veginn svona.

En ætli ég setji þá ekki bara dekkin sem eru með flestu naglana að framan og hafi hin að aftan...

Re: Endurnegling á nagladekkjum?

Sent: Lau 17. Okt 2009 01:14
af Zorglub
Já það er ekki hægt að negla í gömlu götin þegar það er búið að keyra á dekkjunum.
En það er ekkert mál að bora fyrir nýum nöglum EF dekkin bjóða upp á það, mörg ef ekki öll fólksbíladekk í dag eru svo fínt skorinn að það er ekki hægt að bora upp á nýtt.

Re: Endurnegling á nagladekkjum?

Sent: Lau 17. Okt 2009 09:06
af methylman
Bara smá spekulering? Ég hef ekki notað nagladekk í bráðum 10 ár hér á höfuðborgarsvæðinu engin þörf á því, aldrei setið fastur nema þá á eftir einhverjum sem er enn á sumardekkjunum.
Ef nagladekk eru notuð þá ertu að eyða peningum í óþarfa bæði beint úr þínum vasa og skattpeningunum. Já og svo ekki sé talað um rykið og tjöruna á götunum [-X

Re: Endurnegling á nagladekkjum?

Sent: Lau 17. Okt 2009 11:21
af Hargo
Beið nú eftir einhverju svona... :)

Ég keyri yfir hellisheiði mjög oft í hverri viku, nota mín nagladekk í það. Ég hef prófað aðrar gerðir og mér finnst þær bara ekki vera jafn góðar.
En annars skiptir það svo sem engu máli þar sem þráðurinn er ekki um það, ég er að reyna að spara mér pening í kreppunni og nota þessi dekk áfram í einn vetur í viðbót. Skil ekki hvernig það getur talist að ég sé að eyða peningunum í óþarfa, ég myndi segja að ég væri að eyða í óþarfa ef ég myndi kaupa mér einhver glæný loftbóludekk (sem kosta yfirleitt meira en hefðbundin nagladekk) eða e-ð álíka þegar ég gæti notað þessi dekk mín í einn vetur í viðbót. Þarf engan fyrirlestur um svifryk...

Annars fannst mér vera svo sjaldan hálka á höfuðborgarsvæðinu í fyrra að ef ég væri ekki í þessum ferðum mínum austur á Selfoss þá væri ég eflaust ekkert á nöglum.

Re: Endurnegling á nagladekkjum?

Sent: Lau 17. Okt 2009 11:27
af audiophile
Það er alveg hægt að endurnegla dekk. Frændi minn vinnur á dekkjaverkstæði og gerir það oft. Spurning hvort það svari kostnaði samt. Það er líka hægt að negla heilsársdekk, þarf bara að bora fyrir nöglunum fyrst.

Re: Endurnegling á nagladekkjum?

Sent: Lau 17. Okt 2009 11:59
af Hargo
audiophile skrifaði:Það er alveg hægt að endurnegla dekk. Frændi minn vinnur á dekkjaverkstæði og gerir það oft. Spurning hvort það svari kostnaði samt. Það er líka hægt að negla heilsársdekk, þarf bara að bora fyrir nöglunum fyrst.


Á það ekki bara við um glæný dekk sem er ekki búið að keyra á?

Annars tékka ég betur á þessu eftir helgi, athuga hvaða dekkjaverkstæði bjóða upp á þetta...

Re: Endurnegling á nagladekkjum?

Sent: Lau 17. Okt 2009 13:59
af beatmaster
Endilega láttu vita hérna hvernig fer, ég þarf að gera þetta við nagladekkin mín

Re: Endurnegling á nagladekkjum?

Sent: Sun 18. Okt 2009 23:36
af tomasp
Það er ekki hægt að negla notuð dekk sökum þess að kantar á götunum fyrir naglana hafa eyðst upp eða skemmst. Ef þú býrð á höfuðborgarsvæðinu þá væri besta lausnin að láta plokka naglana úr og míkróskera dekkin ef nægilegt munstur er eftir.