Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?

Allar tengt bílum og hjólum

traustitj
Nörd
Póstar: 141
Skráði sig: Lau 31. Júl 2021 23:49
Reputation: 24
Staða: Ótengdur

Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?

Pósturaf traustitj » Mið 11. Feb 2026 10:05

Ég vil bæta við það sem ég sagði að ofan, að þessi djúpu hjólför í vegunum, hvort sem er innanbæjar, á Reykjanesbrautinni eða þjóðvegunum, man ekki til þess að hafa séð svona nokkurntíman áður í útlöndum. Meira að segja komin djúp hjólför í allra nýjasta tvöfalda kaflann á brautinni. Væri áhugavert eiginlega að mæla hve djúp sum þeirra séu því það er oft erfitt að keyra uppúr þeim

Skjámynd

jericho
Geek
Póstar: 879
Skráði sig: Mið 21. Jan 2004 14:23
Reputation: 171
Staða: Ótengdur

Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?

Pósturaf jericho » Mið 11. Feb 2026 11:37

Þegar talað er um "borgina" og "blýantsnagarana" þar, eru þá Kópavogur, Hafnarfjörður, Garðabær, Mosfellsbær, Seltjarnanes og Vegagerðin öll undanþegin gagnrýninni?

Ryzen 7 7800X3D | DH-15 | Radeon RX 9700 XT | MSI MAG B650 Tomahawk | Samsung Evo 990 2TB | G.Skill Ripjaws S5 2x16GB | Corsair RM850x | Fractal Meshify C | 32" LG UltraGear 4K OLED

Skjámynd

Henjo
</Snillingur>
Póstar: 1085
Skráði sig: Mán 15. Júl 2013 03:44
Reputation: 403
Staða: Ótengdur

Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?

Pósturaf Henjo » Fim 12. Feb 2026 16:35

Æja, heldur áfram.

https://www.visir.is/g/20262842491d/mik ... ykbindingu

"Mikið svif­ryk þrátt fyrir rykbindingu"

"Mikil loftmengun mældist í höfuðborginni í morgun þrátt fyrir að götur hafi verið rykbundnar fyrr í vikunni"

"Líklegt er að mengun verði áfram viðvarandi vegna bílaumferðar og veðuraðstæðna."

"Á meðan mengun er svo mikil beinir borgin því til aldraðra, barna og þeirra sem eru viðkvæmir fyrir í öndunarfærum að forðast útivist í lengri tíma og takmarka áreynslu"

"Einnig hvetur hún almenning til að draga úr notkun einkabílsins"

Hvenar eigum við síðan að hefja gjaldtöku fyrir notkun naggladekkja fyrir þann skaða sem þau valda?

Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17239
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2376
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?

Pósturaf GuðjónR » Fös 13. Feb 2026 14:03

Ég hafði samband við starfsmann hjá Vegagerðinni í gær til að fá upplýsingar um hvað væri að gerast. Hann sagði að ekki væri verið að blanda vikri eða öðru í saltið þrátt fyrir þrálátan orðróm. Vandamálið gæti hins vegar stafað af tilraunum með að sprauta rykbindiefni yfir göturnar, allt gert til að þurfa ekki að sópa. Hann bætti við að rykbindiefnið væri algjör drulla og viðbjóður.

Síðan gerist það að þegar byrjar að rigna þá blandast við regnvatnið salt, ryk og rykbindiefnið. Þetta slettist svo á bílana og festist. Þar sem rykbindiefnið bindur saltið og drulluna við bílana. Þess vegna eru bílar eins og þeir séu nýkomnir yfir Kjöl þegar það rignir, og maður þarf tjöruhreinsi eða önnur sterk heinsiefni til að ná þessu af þetta er svo pikkfast á bílunum.

Ég velti því fyrir mér, þar sem þetta rykbindiefni virðist ekki virka betur en þetta, hvaða áhrif það hefur á fólk að anda því að sér, hvaða efni eru í því og hver „heilsusamlegt“ er að fá þetta ofan í lungun.

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 8808
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1416
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?

Pósturaf rapport » Fös 13. Feb 2026 16:19

https://dec.alaska.gov/air/anpms/dust/c ... iques-list

Hverskonar rykbindiefni er notað hér heima?

Anyone know?

Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17239
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2376
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?

Pósturaf GuðjónR » Fös 13. Feb 2026 16:58

rapport skrifaði:https://dec.alaska.gov/air/anpms/dust/control-techniques-list

Hverskonar rykbindiefni er notað hér heima?

Anyone know?

Ekki hugmynd en það er augljóslega að binda drulluna við bílana okkar. Spurning hvernig það fer með loftsíurnar? Og vonandi er ekki krabbameinsvaldandi að anda þessu að sér í miklu mæli.

Skjámynd

Moldvarpan
Vaktari
Póstar: 2911
Skráði sig: Fös 16. Mar 2007 21:31
Reputation: 559
Staða: Ótengdur

Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?

Pósturaf Moldvarpan » Fös 13. Feb 2026 19:51

Þetta er soldið fyndið, þessi umræða poppar upp árlega,,, minnir mig soldið á.... "Það er alltaf eitthvert bank í ofnunum hérna"...

Hálkuvarnir eru subbulegar. Subbuskapurinn er aldrei þrifinn. Ókosturinn við að þrífa þær núna væri næturfrost og meiri hálka á morgnanna.

:lol:

Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17239
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2376
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?

Pósturaf GuðjónR » Fös 13. Feb 2026 22:45

Moldvarpan skrifaði:. Xminnir mig soldið á.... "Það er alltaf eitthvert bank í ofnunum hérna"...

Á ég að gera það!!! :megasmile :megasmile :megasmile

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 8808
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1416
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?

Pósturaf rapport » Þri 17. Feb 2026 15:22

Skjámynd

Henjo
</Snillingur>
Póstar: 1085
Skráði sig: Mán 15. Júl 2013 03:44
Reputation: 403
Staða: Ótengdur

Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?

Pósturaf Henjo » Þri 17. Feb 2026 15:28

rapport skrifaði:https://www.dv.is/frettir/2026/2/17/marino-furdar-sig-thrjoskunni-hofudborgarsvaedinu-hysjid-upp-um-ykkur-buxurnar/

En er ekki bannað að dumpa snjónum beint útí sjó því öll drullan af götusnjó eyðileggur vistkerfi eða eitthvað? sömuleiðis að snjórinn er hrenilega svartur af drullu. Bæði er hann fjarlægður og það lekur svartlitað vatn niður ræsið þannig það hlýtur nokkuð af þessari drullu þrífast í burtu með snjónum?

Annars I guess, svo lengi sem bílaheilinn bendir ekki á sjálfan sig og kennir bara öðrum um. Til hvers að banna naggladekk ef það er hægt bara að kenna vegagerðinni um að þrífa ekki nógu vel.

traustitj
Nörd
Póstar: 141
Skráði sig: Lau 31. Júl 2021 23:49
Reputation: 24
Staða: Ótengdur

Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?

Pósturaf traustitj » Þri 17. Feb 2026 17:44

Ég tók 2 myndir

IMG_3819.jpg
IMG_3819.jpg (566.34 KiB) Skoðað 1008 sinnum

IMG_3821.jpg
IMG_3821.jpg (379.35 KiB) Skoðað 1008 sinnum

Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17239
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2376
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?

Pósturaf GuðjónR » Þri 17. Feb 2026 17:49

traustitj skrifaði:Ég tók 2 myndir

IMG_3819.jpg

IMG_3821.jpg

Þetta verður örugglega notað í borgarlínu áróðurinn. :face

Skjámynd

Henjo
</Snillingur>
Póstar: 1085
Skráði sig: Mán 15. Júl 2013 03:44
Reputation: 403
Staða: Ótengdur

Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?

Pósturaf Henjo » Mið 18. Feb 2026 00:51

GuðjónR skrifaði:
traustitj skrifaði:Ég tók 2 myndir

IMG_3819.jpg

IMG_3821.jpg

Þetta verður örugglega notað í borgarlínu áróðurinn. :face

Það er nú ekki eins og það sér erfitt að fá svona myndir, og að þeir séu að cherry picka myndir sem eitthver gaur náði á akkúrat rétta mómentinu. Þetta er svona alla daga, og svifryksmengun er ekkert ný.

Er svona erfitt fyrir þig að ímynda þér borg þar sem 99% af samgöngum snúast ekki í kringum einkabíllinn?

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 8808
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1416
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?

Pósturaf rapport » Mið 18. Feb 2026 07:33

Ef eg fer örlítið út í kant á Reykjanesbrautinni þá þyrlast upp svona ský.

Þetta ástand er ekki bundið við borgina, þetta er bara ástand vegakerfisins OG fyrst og fremst skortur á loftraka til að grípa agnirnar og svo rigningu til að binda þær og skola í burtu.

Þetta er því að einhverju leiti vegna loftlagsbreytinga og breytinga á veðurfari (nú er ég ekki að benda á mögulegar orsakir þess) en bara það að þetta er einstaklega þurr vetur = mikið ryk.

Það er stórskrítið að það séu farnir að vera reglulegir sinubrunar að vetri til, man ekki eftir að hafa heyrt af slíku fyrr en allra seinustu ár og þrátt fyrir að reykingafólki hjafi snar fækkað í seini tíð.

Skjámynd

Jón Ragnar
1+1=10
Póstar: 1105
Skráði sig: Lau 06. Des 2008 12:28
Reputation: 226
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?

Pósturaf Jón Ragnar » Mið 18. Feb 2026 08:17

Skil ekki hvað fólk hefur á móti Borgarlínu (eða betri almenningssamgöngum)

Sama með fólk sem trúir ekki á hlýnun jarðar og það á ekkert að eyða í það húmbúk.

Worst case sem gerist, Allt verður betra og við skilum betri stað fyrir börn og barnabörn etc

Agalegt með þetta svifryk er að það er ALLSTAÐAR. Verður allt rykugt inni hjá manni, samt er ég fjarri stórum götum
Síðast breytt af Jón Ragnar á Mið 18. Feb 2026 08:17, breytt samtals 1 sinni.

CCNA Collaboration
CCNA Voice
CCNA Video

Skjámynd

Mazi!
/dev/null
Póstar: 1341
Skráði sig: Fim 13. Okt 2005 15:25
Reputation: 8
Staðsetning: Skúrinn
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?

Pósturaf Mazi! » Mið 18. Feb 2026 10:27

Jón Ragnar skrifaði:Skil ekki hvað fólk hefur á móti Borgarlínu (eða betri almenningssamgöngum)

Sama með fólk sem trúir ekki á hlýnun jarðar og það á ekkert að eyða í það húmbúk.

Worst case sem gerist, Allt verður betra og við skilum betri stað fyrir börn og barnabörn etc

Agalegt með þetta svifryk er að það er ALLSTAÐAR. Verður allt rykugt inni hjá manni, samt er ég fjarri stórum götum

Betra aðgengi að strætó / borgarlínu er aldrei að fara minnka notkun á einkabílum nógu mikið til að hægt sé að afsaka kostnaðinn við borgarlínu.
(Mín skoðun)

svo er þetta land bara þannig að hér alltaf MJÖG vont veður og kalt eða vont veður og kalt.

ég myndi helst keyra útí bíl ef það væri hægt.
Síðast breytt af Mazi! á Mið 18. Feb 2026 10:28, breytt samtals 2 sinnum.

| ASRock B850M-X WiFi R2.0 | Ryzen 5 8400F | G.Skill Ripjaws 2x16GB 6000Mhz | 9060XT 8GB OC | 1TB WD Black M.2 NVMe SSD | Gamemax GM-700 - 700W | Sharkoon VK3 Black |

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 8808
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1416
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?

Pósturaf rapport » Mið 18. Feb 2026 12:42

Mazi! skrifaði:Betra aðgengi að strætó / borgarlínu er aldrei að fara minnka notkun á einkabílum nógu mikið til að hægt sé að afsaka kostnaðinn við borgarlínu.
(Mín skoðun)

"Afsökunin" a.k.a. "Business Case" fyrir Borgarlínu er í grunninn að byggja upp og bæta almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu.

Það varð mikil afturför í öllum innviðum ská-tengdum Strætó sbr. að "sjoppur" sem hýstu farþega Strætó hreinlega lokuðu... Hlemmur, Lækjartorg, Grensás, Sunnutorg, Mjódd, Foldaskáli, Breiðholtskjör/Arnarbakki... ofl. ofl.

Farþegar komast ekki á klósett, geta ekki samnýtt ferðir með stoppi í kjörbúð o.þ.h.

Með því að byggja upp Borgarlínu þá er ég að vonast til að eitthvað svona komi til baka.

Skjámynd

Henjo
</Snillingur>
Póstar: 1085
Skráði sig: Mán 15. Júl 2013 03:44
Reputation: 403
Staða: Ótengdur

Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?

Pósturaf Henjo » Mið 18. Feb 2026 13:03

Mazi! skrifaði:
Jón Ragnar skrifaði:...

Betra aðgengi að strætó / borgarlínu er aldrei að fara minnka notkun á einkabílum nógu mikið til að hægt sé að afsaka kostnaðinn við borgarlínu.
(Mín skoðun)

svo er þetta land bara þannig að hér alltaf MJÖG vont veður og kalt eða vont veður og kalt.

ég myndi helst keyra útí bíl ef það væri hægt.

"Tæp 60% vilja nýta aðra ferðamáta en einkabílinn - Þetta er meðal niðurstaðna úr mælingum Maskínu sem hefur spurt höfuðborgarbúa annars vegar hvernig þeir ferðist til og frá vinnu og hins vegar hvernig þeir væru helst til í að ferðast þá leið"

"Hlutfall þeirra sem ferðast oftast til vinnu sem bílstjórar á einkabíl hefur farið úr tæplega 72% niður í 63% milli ára. Á sama tíma fjölgaði þeim sem nota oftast strætó, hjóla, ganga eða ferðast sem farþegar í einkabíl."

Byggja innviðir og gefa fólki tækifæri til að velja aðra máta. T.d. hefur hjólreiðum fjölgað gífurlega á síðustu árum, og er þá t.d. líklega hægt að þakka, in part- mikilli uppbyggingu í hjólreiðainnviðum. Eins og er þá er erfitt að nýta sér almenningsamgöngur því öll borgin og okkar og kerfi er byggt fyrir einkabíllinn. T.d. þá þurfa almenningsamgöngur, sem geta flutt hundrað fallt fleiri farþega, lúta fyrir einkabílnum á götunum og er því fullur af strætó fastur á hraðbrautinni umkringur bílum sem hýsa eina manneskju. Þetta er fáránlegt. Borgarlínan mun hjálpa að laga þetta, og munu fleiri nota hana.

Það er rétt að það er kalt og oft vont veður á íslandi, það að það sé alltaf skítakuldi og hér sé bara allt MJÖG vont veður er bara algjört rugl og lygi. Og hef hjólað í vinnuna nánast alla daga í vetur, og alla daga á þessu ári, og ég hef bara upplifað mjög fínt veður nánast alla daga. Og kuldin er ekki mikið til vandræða, enda er hægt að kaupa útifatnað sem er sérstaklega hannaður til að halda manni hlýjum úti, t.d. húfa og trefill. Þetta er partur að búa á landi sem heitir Ísland.

Kostnaður við borgarlínuna er EKKERT meðan við kostnaðin sem samfélagið niðurgreiðir fyrir einkabílinn. Og nefni líka, að ágætur kostnaður við þessar borgarlínuna fer í innviði fyrir einkabílinn.

Umferð á höfuðborgarsvæðinu eykst um 5% á hverju ári. Good luck félagi að fara keyra eftir 10 ár ef það á allt að snúast um einkabíllinn og enginn uppbygging í öðrum samgöngum. Það er, ef við verðum ekki öll búin að drepast úr svifryksmengun.
Síðast breytt af Henjo á Mið 18. Feb 2026 13:04, breytt samtals 1 sinni.

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 8808
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1416
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?

Pósturaf rapport » Mið 18. Feb 2026 16:41

Þessi umræða - https://www.visir.is/g/20262844995d/haf ... menguninni

MInnti mig á að félagi minn sem lærði garðyrkjufræði í Þýskalandi í lok seinustu aldar hefur alltaf fussað og sveijað yfir ýmsu þessu tengdu á Íslandi:

- Að opnir húsgrunnar og byggingarsvæði með rykugri grús og þurri mold fái að standa á opnum svæðum, að ekki séu sett upp lokuð grindverk.

- Að bílar sem keyra frá svona framkvæmdasvæðum séu ekki þvegnir áður en þeir fara á götuna og oft séu drullu taumar hundruðir metra frá byggingasvæðum.

- Að mold sem sett er í blómabeð er ekki falin undir þvegnu/hreinu grjóti eða mottum

- Að óþvegin grús sé notuð í malarbílastæði og að oft séu "grús-púðar" undir húsum, bílastæðum, götum o.þ.h. látnir standa óvarðir s.s. ekki gerð krfa aum að gengið sé frá þessum svæðum svo það mun alltaf fjúka frá þeim ryk.

- Hann vildi líka meina að óþvegnar rykugar götur valdi því að þær eyðist hraðar, s.s. að hafa ryk á vegum hljóti að setjast í og þurrrka upp tjöruna í mabikinu sem harnar þá hraðar og brotnar svo auðveldar við daglega notkun.

Skjámynd

Moldvarpan
Vaktari
Póstar: 2911
Skráði sig: Fös 16. Mar 2007 21:31
Reputation: 559
Staða: Ótengdur

Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?

Pósturaf Moldvarpan » Mið 18. Feb 2026 17:19

Henjo skrifaði:
Mazi! skrifaði:
Jón Ragnar skrifaði:...

Betra aðgengi að strætó / borgarlínu er aldrei að fara minnka notkun á einkabílum nógu mikið til að hægt sé að afsaka kostnaðinn við borgarlínu.
(Mín skoðun)

svo er þetta land bara þannig að hér alltaf MJÖG vont veður og kalt eða vont veður og kalt.

ég myndi helst keyra útí bíl ef það væri hægt.

"Tæp 60% vilja nýta aðra ferðamáta en einkabílinn - Þetta er meðal niðurstaðna úr mælingum Maskínu sem hefur spurt höfuðborgarbúa annars vegar hvernig þeir ferðist til og frá vinnu og hins vegar hvernig þeir væru helst til í að ferðast þá leið"

"Hlutfall þeirra sem ferðast oftast til vinnu sem bílstjórar á einkabíl hefur farið úr tæplega 72% niður í 63% milli ára. Á sama tíma fjölgaði þeim sem nota oftast strætó, hjóla, ganga eða ferðast sem farþegar í einkabíl."

Byggja innviðir og gefa fólki tækifæri til að velja aðra máta. T.d. hefur hjólreiðum fjölgað gífurlega á síðustu árum, og er þá t.d. líklega hægt að þakka, in part- mikilli uppbyggingu í hjólreiðainnviðum. Eins og er þá er erfitt að nýta sér almenningsamgöngur því öll borgin og okkar og kerfi er byggt fyrir einkabíllinn. T.d. þá þurfa almenningsamgöngur, sem geta flutt hundrað fallt fleiri farþega, lúta fyrir einkabílnum á götunum og er því fullur af strætó fastur á hraðbrautinni umkringur bílum sem hýsa eina manneskju. Þetta er fáránlegt. Borgarlínan mun hjálpa að laga þetta, og munu fleiri nota hana.

Það er rétt að það er kalt og oft vont veður á íslandi, það að það sé alltaf skítakuldi og hér sé bara allt MJÖG vont veður er bara algjört rugl og lygi. Og hef hjólað í vinnuna nánast alla daga í vetur, og alla daga á þessu ári, og ég hef bara upplifað mjög fínt veður nánast alla daga. Og kuldin er ekki mikið til vandræða, enda er hægt að kaupa útifatnað sem er sérstaklega hannaður til að halda manni hlýjum úti, t.d. húfa og trefill. Þetta er partur að búa á landi sem heitir Ísland.

Kostnaður við borgarlínuna er EKKERT meðan við kostnaðin sem samfélagið niðurgreiðir fyrir einkabílinn. Og nefni líka, að ágætur kostnaður við þessar borgarlínuna fer í innviði fyrir einkabílinn.

Umferð á höfuðborgarsvæðinu eykst um 5% á hverju ári. Good luck félagi að fara keyra eftir 10 ár ef það á allt að snúast um einkabíllinn og enginn uppbygging í öðrum samgöngum. Það er, ef við verðum ekki öll búin að drepast úr svifryksmengun.

Þetta er strax orðið há pólitískt.

Gott að sjá að það eru naglar, sem elska þetta.

En mig dettur ekki í hug að gera þetta. Viva la bensín! Og nagladekk!!

Ef þú vilt betra loft, þá eru öll bæjarfélög landsins í boði.

Skjámynd

Jón Ragnar
1+1=10
Póstar: 1105
Skráði sig: Lau 06. Des 2008 12:28
Reputation: 226
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?

Pósturaf Jón Ragnar » Mið 18. Feb 2026 17:25

Moldvarpan skrifaði:

Les þetta eins og þú sért svona rolling coal gæí

CCNA Collaboration
CCNA Voice
CCNA Video

Skjámynd

Moldvarpan
Vaktari
Póstar: 2911
Skráði sig: Fös 16. Mar 2007 21:31
Reputation: 559
Staða: Ótengdur

Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?

Pósturaf Moldvarpan » Mið 18. Feb 2026 19:17

Hahahah á Hyundai i10 :D
Bara fíbblast.

Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17239
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2376
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?

Pósturaf GuðjónR » Mið 18. Feb 2026 20:04

Búið að hamast á fólki að fara yfir í rafmangsbíla af því að þeir eru svo umhverfisvænir, þá allt í einu eru þeir það ekki af því að þeir eru svo þungir. :face

Varðandi rykið, þá er oft svartaþoka frá Kollafirði fram hjá Esjumelum á steypta kaflanum, þannig að fólk má troða nagladekkjasamsæriskenningunni þangað sem sólin ekki skín.

Nagladekin eru bara örlítið brot af vandanum, það þarf að sópa göturnar.

Skjámynd

Mazi!
/dev/null
Póstar: 1341
Skráði sig: Fim 13. Okt 2005 15:25
Reputation: 8
Staðsetning: Skúrinn
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?

Pósturaf Mazi! » Mið 18. Feb 2026 20:19

GuðjónR skrifaði:Búið að hamast á fólki að fara yfir í rafmangsbíla af því að þeir eru svo umhverfisvænir, þá allt í einu eru þeir það ekki af því að þeir eru svo þungir. :face

Varðandi rykið, þá er oft svartaþoka frá Kollafirði fram hjá Esjumelum á steypta kaflanum, þannig að fólk má troða nagladekkjasamsæriskenningunni þangað sem sólin ekki skín.

Nagladekin eru bara örlítið brot af vandanum, það þarf að sópa göturnar.

Tek undir þessi skrif!.. það er er líka svifryk á sumrin þegar enginn er á nagladekkjum, göturnar eru bara drulluskítugar.

| ASRock B850M-X WiFi R2.0 | Ryzen 5 8400F | G.Skill Ripjaws 2x16GB 6000Mhz | 9060XT 8GB OC | 1TB WD Black M.2 NVMe SSD | Gamemax GM-700 - 700W | Sharkoon VK3 Black |

Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 5991
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1095
Staða: Ótengdur

Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?

Pósturaf appel » Mið 18. Feb 2026 20:38

Það er einsog allt þurfi að fara í kalda kol fyrst áður en ráðamönnum dettur í hug að það þurfi að ráðast á vandann.

Að segja fólki bara að halda sig innandyra.... já ok segjum ef ALLIR fylgja því, þá er ekkert atvinnulíf, ekkert hagkerfi, engar skatttekjur. Svo lengi sem yfirvöld ná að spara í þrifnaði þá er það bara í lagi virðist vera. Þetta er svo sturlað hugarfar.

Ef þú ert með borg þá þarf að þrífa göturnar. Þýðir ekkert bara að segja viðkvæmu fólki að vera ekkert úti, eða fólki sem vill nýta góða veðursins í vetur að það geti ekki verið úti því yfirvöld þurfa að spara 100 milljónir í ár í að þrífa þennan skít.

Þetta auðvitað bara eyðileggur lífsgæði fólks sem býr hérna. Er þetta það sem þessir stjórnmálamenn vilja? Eyðileggja lífsgæði fólks því það á erfitt með að sætta sig við einkabílinn þó það sjálft ferðist um á slíkum?

Verslanir þrífa reglulega gólfin sín því viðskiptavinir ganga um á útiskóm. Einkafyrirtækin geta þetta, en hið opinbera er bara á öðru plani með sitt hugarfar.

Þetta er ekkert flókið, ÞRÍFA ÞETTA, gera það reglulega, viðstöðulaust, allt árið, verður miklu betra loft hérna fyrir vikið.

*-*