lukkuláki skrifaði:GuðjónR skrifaði:Ég renndi þarna við í hádeginu á miðvikudaginn og var sagt að biðin væri að minsta kosti 2 klukkutímar.
Biðstofan er sú stærsta sem ég séð, ekki undir 300m2. Enda veitir ekki af fyrst fólk nennir að bíða þarna heilu og hálfu dagana.
Ég prófaði svo að hringja aftur í hádeginu í gær og þá fékk ég þau svör að það væri svo löng biðröð að þeir myndu sennilega ekki ná að klára alla þann daginn þó enginn myndi bætast við.
Ég nenni ekki að eltast við svona þó það sé eitthvað ódýrara, reyndar er spurning hversu mikið ódýrara það er miðað við hvað þetta er mikið út úr (fyrir mig)...bensínið fram og til baka kostar ekki undir 1500kr.
Það er ekkert eins einfalt eins og að panta tíma á kvikkfix.is og mæta svo. = Einfalt og engin bið
Þeir bjóða ekki upp á það í olíuskipti, ég marg spurði hann.
Hann sagði tímapantanir bara eiga við um bremsuviðgerðir og svoleiðis hluti sem taka lengri tíma.