Síða 1 af 1

[TS] JBL Cinema SB350 2.1 Soundbar

Sent: Mið 08. Jan 2020 13:15
af jagermeister
Vegna flutninga og áhuga á að SONOS-væða enn frekar er ég með til sölu JBL Cinema SB350 Soundbar sem er forveri þessa soundbars.

Keypt hjá Raflandi á jólum fyrir, að ég held, þremur árum en ég get haft samband við Rafland óski áhugasamir kaupendur eftir því.

Eitthvað hefur borið á því að fólk sé að lenda í "popping" hljóðum úr bassaboxinu og vandræðum að para saman stöngina og boxið miðað við reviews en það er eitthvað sem ég kannast ekki við.

Verðhugmynd í kringum 30 þúsundin - skoða þó öll raunhæf tilboð

Opinn fyrir skiptum á SONOS playbar/SONOS beam, get þá borgað eitthvað á milli.

Re: [TS] JBL Cinema SB350 2.1 Soundbar

Sent: Mið 08. Jan 2020 20:53
af svanur08
Ekki illa meint, en þoli ekki þegar sagt er Tilboð óskast eins og fólk eigi von á að fá meira fyrir vöruna en væri normal.

Re: [TS] JBL Cinema SB350 2.1 Soundbar

Sent: Fim 09. Jan 2020 09:32
af jagermeister
svanur08 skrifaði:Ekki illa meint, en þoli ekki þegar sagt er Tilboð óskast eins og fólk eigi von á að fá meira fyrir vöruna en væri normal.


Það er sannarlega ekki ætlunin að reyna að klekkja á neinum enda set ég inn hlekki á hvað sama græja kostar núna á amazon og hvað ný útgáfa kostar. Eðlilegt að biðja fólk um að bjóða í viðskiptum með notaða hluti þegar hvorugur aðili veit hvað sanngjarnt verð er, geta þá mæst í miðjunni og gengið sáttir frá borði. Þjónar hvorki hagsmunum mínum né væntanlegra kaupenda að setja inn verð sem er úr öllu samhengi við raunveruleikann.

Re: [TS] JBL Cinema SB350 2.1 Soundbar

Sent: Fös 10. Jan 2020 14:38
af jagermeister
Uppfærði lýsingu með verðhugmynd