Síða 1 af 1

Ég fékk simtal frá Microsoft Support

Sent: Fim 21. Feb 2019 18:25
af Semboy
ég hefði aldrei haldið þetta mundi koma fyrir mér en það gerðist,
ég lék mér af þeim, meðan ég var að spila apex legends! ég var á tali við 4 mismunandi manneskjur
og þær voru allar konur- í 50min á tali við þær -þar til þær slitu sambandi

Re: Ég fékk simtal frá Microsoft Support

Sent: Fim 21. Feb 2019 18:46
af odduro
vinnufélagi minn fékk einmitt símtal frá "Microsoft" í dag, íslenskt númer en "microsoft starftsmaðurinn" talaði ensku með indverskum hreim

Re: Ég fékk simtal frá Microsoft Support

Sent: Fim 21. Feb 2019 18:47
af zetor
Það var hringt 3 sinnum í mig. Létu mig opna Event viewer til að sýna mér öll error og warning skiltin. lol og opna síðan vafasam vefsíðu til að sækja forrit til að laga þetta. Laug að þeim að það opnaðist bara klámsíða hjá mér og starfsmaðurinn áttaði sig á þessu að ég væri að fíflast og sagði eftirfarnadi orðrétt: " do you see a picture of me and your mother there? " og svo sagði hann að endingu " you motherfucker"
Ég á þetta allt til á bandi.... lol

Re: Ég fékk simtal frá Microsoft Support

Sent: Fim 21. Feb 2019 19:11
af Semboy
zetor skrifaði:Það var hringt 3 sinnum í mig. Létu mig opna Event viewer til að sýna mér öll error og warning skiltin. lol og opna síðan vafasam vefsíðu til að sækja forrit til að laga þetta. Laug að þeim að það opnaðist bara klámsíða hjá mér og starfsmaðurinn áttaði sig á þessu að ég væri að fíflast og sagði eftirfarnadi orðrétt: " do you see a picture of me and your mother there? " og svo sagði hann að endingu " you motherfucker"
Ég á þetta allt til á bandi.... lol



vá hjá mér, þær voru frekar sallarólegar, "do you want us to help you or not?" ég bara "no, i dont use windows" samband slitin

Re: Ég fékk simtal frá Microsoft Support

Sent: Fim 21. Feb 2019 20:25
af GuðjónR
Ég fékk svona símtal fyrir nokkrum dögum, náði mynd af númerinu áður en ég svaraði.
Á hinum endanum var einhver sem talaði lélega ensku með indverskum hreim, hann kynnti sig stuttlega og mín fyrstu viðbrögð voru:;
"Do you want my passwords" ....
Smá þögn, svo sagði hann "No Sir, I do not want your passwords, in fact, I don't want anything from you"
Þá svara ég "If you don't want anything, then why are you calling?"
...smá þögn...svo var skellt á!

Re: Ég fékk simtal frá Microsoft Support

Sent: Fim 21. Feb 2019 20:52
af hagur
Ohhh vona að þeir hringi í mig !!! Langar að trolla .....

Re: Ég fékk simtal frá Microsoft Support

Sent: Fim 21. Feb 2019 22:17
af Viktor
Heyrðu ég fékk svona símtal um daginn, ég svaraði að sjálfsögðu ekki... nema svo kemur í ljós að það var í alvörunni Microsoft Azure support sem var að hringja í mig frá Indlandi :japsmile

Fékk email varðandi support ticket sem ég sendi inn og að þau hafi verið að reyna að ná í mig ](*,) :lol: