Síða 1 af 1

"GEÐVEIKT" Sjónvarp til sölu SELT

Sent: Fim 28. Des 2017 15:30
af einarbjorn
Ég er með geðveikt 42" plasma sjónvarp til sölu, eða mér fannst það þegar ég keypti það fyrir 7-9 árum síðan, mjög lítið notað oftast bara einn horft á í einu og þetta sjónvarp var í eigu karlmanns svo það hefur ekkert verið notað til að horfa á raunveruleikaþætti og kardasien hefur aldrei sést í því ( þar sem ég er karlmaður þá kann ég ekki einu sinni að stafa kardasien ) en þetta sjónvarp er búið að fá góða meðferð og ræður léttilega við að horfa á allar die hard myndirnar, lord of the rings og hobbitann í röð án þess að hiksta.
þessi eðalgræja er panasonic TX-42S20E.
svona eðalgræja er örugglega að fara á 120-150Þ á bland eða brask og brall en ég veit að vaktarar eru aðeins nær raunveruleikanum þá set ég á það 15Þ eða tilboð \:D/

Re: "GEÐVEIKT" Sjónvarp til sölu

Sent: Fim 28. Des 2017 16:39
af ZiRiuS
Hvernig geðveiki er það með? Kaupi ekki hvaða geðveiki sem er sko.

Re: "GEÐVEIKT" Sjónvarp til sölu

Sent: Fim 28. Des 2017 23:53
af Hreinn Sveinn
=D>

Re: "GEÐVEIKT" Sjónvarp til sölu

Sent: Fim 28. Des 2017 23:56
af einarhr
=D>
Hreinn Sveinn skrifaði:=D>

Re: "GEÐVEIKT" Sjónvarp til sölu

Sent: Fös 29. Des 2017 04:30
af kizi86
10þ ?

Re: "GEÐVEIKT" Sjónvarp til sölu

Sent: Fös 29. Des 2017 17:15
af einarbjorn
kizi86 skrifaði:10þ ?

Ég er að skoða eitt tilboð ef það gengur ekki þá máttu fá það á 10þ

Re: "GEÐVEIKT" Sjónvarp til sölu

Sent: Fös 29. Des 2017 23:15
af Nördaklessa
Besta auglýsing sem ég hef lesið í langan tíma :sleezyjoe 10/10 =D>