Síða 1 af 1

Plastkassar / grindur

Sent: Fös 25. Ágú 2017 11:04
af rapport
Er að reyna að losna við heilan helling af svona kössum (svipaðir þessum svörtu á myndinni), hundruðir ef ekki þúsundir.

100 kr. stk. m/vsk og helst afhent bara á brettum (30-40 stk = 3-4.000 kr.) eða gámum (700-1000 stk)

Þeir eru held ég í tveim gerðum s.s. mismunandi háir.

Þeir hafa verið notaðir til að flytja blóm og því þarf aðeins að skola af þeim (ef það er ekki þegar búið)


Tilvalið í bílskúrinn, geymsluna eða fyrir fólk sem vill eiga mikið af kössum.


Ef þið hafið áhuga, sendið mér línu í PM


Kassar.PNG
Kassar.PNG (1.08 MiB) Skoðað 1200 sinnum

Re: Plastkassar / grindur

Sent: Fös 25. Ágú 2017 12:39
af lukkuláki
Ertu til í að taka mál af þessum kössum og henda því inn?

Re: Plastkassar / grindur

Sent: Fös 25. Ágú 2017 12:52
af Jón Ragnar

Re: Plastkassar / grindur

Sent: Fös 25. Ágú 2017 13:00
af Nitruz
Jón Ragnar skrifaði:http://www.mbl.is/frettir/innlent/2016/08/04/otrulegustu_adilar_nota_kassana_2/

:lol:

Re: Plastkassar / grindur

Sent: Fös 25. Ágú 2017 13:19
af rapport
Jón Ragnar skrifaði:http://www.mbl.is/frettir/innlent/2016/08/04/otrulegustu_adilar_nota_kassana_2/


lol - Ég fann enga aðra mynd á internetinu

Skal skjótast út og taka myndir :fly

Re: Plastkassar / grindur

Sent: Fös 25. Ágú 2017 13:41
af worghal
ég hélt að þessum kössum ætti að vera skilað

Re: Plastkassar / grindur

Sent: Fös 25. Ágú 2017 13:42
af einarhr
worghal skrifaði:ég hélt að þessum kössum ætti að vera skilað


Jú það á að skila grænu kössunum frá SFG en svona svartir kassar eru ekki þeirra

Re: Plastkassar / grindur

Sent: Fös 25. Ágú 2017 14:22
af rapport
Málin eru utanmál 60X40cm og dýptirnar, innanmál eru 22,5cm og 17,5cm

Kassar.PNG
Kassar.PNG (1.07 MiB) Skoðað 1080 sinnum

Re: Plastkassar / grindur

Sent: Fös 25. Ágú 2017 14:26
af rapport
p.s. ég sjálfur er ekki að selja þessa kassa heldur Húsasmiðjan/Blómaval = þetta eru ekki einhverjir kassar sem eru e-h vafasamir, þetta eru kassar sem við höfum notað og hafa safnast upp hjá okkur.

Re: Plastkassar / grindur

Sent: Fim 31. Ágú 2017 18:21
af rapport
p.p.s. Nú er hægt að nálgast þetta í Blómavali Skútuvogi - vr.nr. 11500520 og kostar 100 kr. stk.

Ótrúlegt hver kraftur Vaktarinnar er, þetta rataði fljótt inn í hina og þessa fésbókarhópa og nú eru rétt tæplega 200 kassar seldir og þá eru bara nokkur þúsund eftir :-)