Síða 1 af 1

ÓE 12 punkta socket í láni / til kaups

Sent: Fim 12. Jan 2017 18:47
af svingi
Vantar 12punkta socket M14 í láni í eina kvöldstund ef einhver á - vantar þetta til þess að skipta um aftari bremsur á VW. Svipað þessu Mynd

Re: ÓE 12 punkta socket í láni / til kaups

Sent: Fim 12. Jan 2017 19:10
af urban
Hvernig VW og hvaða árgerð ?

Og í hvað þarf þetta þar ?
Það er til að ná dælunum af eða disknum ?

Sjálfur nefnilega skipti ég um diska og klossa að framan í VW Golf ~04 módel og klossa að aftan.
Notaði ekki svona, þannig að ég er bara forvitinn í að vita hvað þessi er notaður í :)

Re: ÓE 12 punkta socket í láni / til kaups

Sent: Fim 12. Jan 2017 19:35
af svingi
Þetta er vw passat 08, þetta er bara að aftan til þess að ná arminum sem heldur dælunni uppi :happy

Þarf að ná honum af til þess að skipta um diska

Átti svona sem ég finn ekki og ætlaði að kaupa þetta hjá Sindra eftir vinnu í dag en þeir lokuðu víst kl 17:00 :thumbsd

Re: ÓE 12 punkta socket í láni / til kaups

Sent: Fim 12. Jan 2017 21:08
af einarbjorn
sæll ef þetta er passat þá er hann sennilega með rafmagnshandbremsu, og bara svo þú vitir þá þarf að keyra handbremsumotorinn til baka með tölvu annars fer stimpillinn ekki inn.

Re: ÓE 12 punkta socket í láni / til kaups

Sent: Fim 12. Jan 2017 22:14
af roadwarrior
einarbjorn skrifaði:sæll ef þetta er passat þá er hann sennilega með rafmagnshandbremsu, og bara svo þú vitir þá þarf að keyra handbremsumotorinn til baka með tölvu annars fer stimpillinn ekki inn.


Ekki flaska á þessu :sleezyjoe