Síða 1 af 1

[TS]Skoda Octavia 2001 árg.

Sent: Mið 03. Ágú 2016 20:54
af HalistaX
Skoda Octavia 2001 árgerð til sölu. Ekinn 232.XXX og þarf á heilum helling af ást að halda. Brennir hann smá olíu, gírskipting er ekki fyrir mjög taugaveiklaða þar sem erfitt er að koma honum í fyrsta gírinn, líklegast gat á púströri, einhverjir gengis örðuleikar, ekki fallegasta lakk í heimi og svo hafa glöggir líklega tekið eftir því að önnur rúðuþurkan að framan er biluð. Svo er eflaust margt, margt, annað að þessu greyji.

Bíllinn er skoðaður 16, ósmurður og selst eins og hann kemur fyrir.

Hann gengur samt, kemur manni alveg á milli staða og eyðir svona 7,1-8 L/100.

Bíllinn er staddur hinu megin við Selfoss einhvers staðar en ekkert mál að koma honum á Selfoss eða í bæinn ef garanterað er að þú ætlir að kaupa hann. Fer ekki fýluferð í bæinn.

Set laufléttar 150.000 krónur á hann en er það verð allt annað en heilagt því ég þarf að losna við hann ASAP.
Geta fylgt honum umgangur af vetrardekkjum.

Tilvalinn sem fyrsti bíll eða skólabíll ef einhver laghentur er til staðar tilbúinn til þess að gera það sem gera þarf fyrir skoðun á lítið.

Þýðir, by the way, lítið að spyrja mig útí hann þar sem allt sem ég veit um hann er pretty much það að hann sé grænn, og því bara um að gera að kaupa helvítið.

Endilega bjóða, í versta falli segi ég nei, sem litlar líkur eru á nema það séu einhver "Fokk eg er svo fyndinn" tilboð.

Takk og bless!

13923611_10202005233169334_2190335548918158015_o.jpg
13923611_10202005233169334_2190335548918158015_o.jpg (486.82 KiB) Skoðað 468 sinnum

Re: [TS]Skoda Octavia 2001 árg.

Sent: Fös 05. Ágú 2016 17:30
af HalistaX
50þ eða hæsta boð

Re: [TS]Skoda Octavia 2001 árg.

Sent: Fim 11. Ágú 2016 05:08
af HalistaX
Ég veit ekki hvort svo þurfi, þar sem það bauð enginn í hann, en er það ekki bara almenn kurteisi að segja að hann sé seldur?

Hann er s.s. seldur.