Síða 1 af 1

[SELT] Logitech Z-5500

Sent: Sun 13. Mar 2016 20:52
af ZoRzEr
SELT





Kvöldið,

Ég er því miður að selja þessa æðislegu hátalara. Logitech Z-5500 hátalararnir eru þeir bestu sem völ er á, þrátt fyrir að þeir hættu sölu fyrir þónokkrum árum. Settið mitt var keypt hjá Tölvutækni í Hamraborginni, áður en þeir fluttu. Ef ég man rétt var það veturinn 2009. Ég notaði þá frá þeim degi til mars 2015 þegar þeim var pakkað saman vegna flutnings og hafa verið í geymslu siðan þá.

Hef því miður ekki mikið við þá að gera í dag og vil frekar að einhver annar fái að njóta þeirra. Þeir eru í mjög góður ásigkomulagi og amar ekkert að hátölurunum, bassanum eða stjórnstöðinni. Aldrei farið hærra en 50% hljóðstyrk og þeir sátu á sama stað frá kaupum. Hátalarakaplar fylgja ekki.

http://www.engadget.com/products/logitech/z-5500/
http://www.amazon.com/Logitech-THX-Cert ... rds=z-5500

Legg á kerfið 50.000kr.

Áhugasmir hafi samband hér á Vaktinni.

Kveðja,
Trausti