Síða 1 af 1

[TS] Einn miði á Zoolander 2 í Egilshöll klukkan 22:20 í kvöld, kostnaðarverð

Sent: Fös 19. Feb 2016 14:22
af DoofuZ
Vantar að losna við eitt stykki miða á Zoolander 2, miðinn gildir í Egilshöll klukkan 22:20 í kvöld og hann fer að sjálfsögðu á kostnaðarverði sem er 1.450 kr. Fyrstur kemur fyrstur fær, sendi kaupanda reikningsnúmer til að leggja inná og sendi svo pdf skjal af miðanum til baka um leið og greiðsla berst til mín :)

Vantar ekki einhverjum miða?

Re: [TS] Einn miði á Zoolander 2 í Egilshöll klukkan 22:20 í kvöld, kostnaðarverð

Sent: Fös 19. Feb 2016 19:25
af DoofuZ
Enginn sem ætlar í bíó í kvöld? Síðasti séns! 8-[

Re: [TS] Einn miði á Zoolander 2 í Egilshöll klukkan 22:20 í kvöld, kostnaðarverð

Sent: Fös 19. Feb 2016 22:32
af GunZi
Hefði verið skynsamlegra að gefa smá afslátt... einfaldara að kaupa sinn eigin miða á sama verði.

Re: [TS] Einn miði á Zoolander 2 í Egilshöll klukkan 22:20 í kvöld, kostnaðarverð

Sent: Lau 20. Feb 2016 11:37
af lukkuláki
Ef þetta er ekki einhver gjafamiði þá er hann ekki glataður þó þú hafir ekki notað hann.
þú átt að geta fairið með hann og fengið nýjan miða.

Re: [TS] Einn miði á Zoolander 2 í Egilshöll klukkan 22:20 í kvöld, kostnaðarverð

Sent: Lau 20. Feb 2016 14:18
af DoofuZ
GunZi skrifaði:Hefði verið skynsamlegra að gefa smá afslátt... einfaldara að kaupa sinn eigin miða á sama verði.

Já, klikkaði á því, hafði svo stuttan tíma til að henda upp auglýsingu að ég pældi ekkert í því. Svosem ekki mikið tap en ég hef það bakvið eyrað næst að gefa smá afslátt ;)

lukkuláki skrifaði:Ef þetta er ekki einhver gjafamiði þá er hann ekki glataður þó þú hafir ekki notað hann.
þú átt að geta fairið með hann og fengið nýjan miða.

Því miður þá var þetta bara venjulegur miði sem ég keypti á midi.is. En ég tapaði svosem ekki miklu á þessu, svo ég er bara góður :)

Re: [TS] Einn miði á Zoolander 2 í Egilshöll klukkan 22:20 í kvöld, kostnaðarverð

Sent: Lau 20. Feb 2016 14:23
af lukkuláki
DoofuZ skrifaði:Því miður þá var þetta bara venjulegur miði sem ég keypti á midi.is. En ég tapaði svosem ekki miklu á þessu, svo ég er bara góður :)


Þú notaðir ekki miðann þannig að þú óskar bara eftir endurgreiðslu. Ferð í bíóið og færð miðann endurgreiddan.
kvikmyndahús og leikhús sjá sjálf alfarið um endurgreiðslur á miðum á þá atburði sem eru í þeirra húsum.
https://midi.is/hjalp

Re: [TS] Einn miði á Zoolander 2 í Egilshöll klukkan 22:20 í kvöld, kostnaðarverð

Sent: Lau 20. Feb 2016 19:31
af Klemmi
lukkuláki skrifaði:Þú notaðir ekki miðann þannig að þú óskar bara eftir endurgreiðslu. Ferð í bíóið og færð miðann endurgreiddan.
kvikmyndahús og leikhús sjá sjálf alfarið um endurgreiðslur á miðum á þá atburði sem eru í þeirra húsum.
https://midi.is/hjalp


Þó svo að það saki ekki að spyrja, og vonandi eru bíóin líbó með þetta, en ég get ekki séð að hans réttur sé nokkur í þessu máli :(

Eftir að þú hefur keypt miða hjá midi.is, í gegnum veraldarvefinn eða síma, hefur þú 14 daga frá miðakaupum til þess að falla frá kaupunum og óska eftir endurgreiðslu á miðanum hjá midi.is, sbr. 1. mgr. 8. gr. laga nr. 46/2000 um húsgöngu- og fjarsölusamninga. Ef viðburður sá sem keyptur er miði á er haldinn innan 14 daga frá miðakaupum átt þú hins vegar í engum tilvikum rétt á endurgreiðslu eða rétt til þess að skipta miðanum fyrir annan viðburð, sbr. 10. gr. áðurnefndra laga, nema í þeim tilvikum er viðburður fellur niður.

Re: [TS] Einn miði á Zoolander 2 í Egilshöll klukkan 22:20 í kvöld, kostnaðarverð

Sent: Lau 20. Feb 2016 23:08
af DoofuZ
Var einmitt búinn að fletta þessari klausu upp :P Svo gæti ég ekki sýnt fram á að hinir miðarnir sem ég keypti hafi verið notaðir því þeir voru ekki skannaðir á leiðinni inní bíóið sem væri mér að vísu í hag ef ég gæti á annað borð leitast eftir að fá endurgreitt því þá gæti ég eflaust logið því að enginn af miðunum hefði verið notaður og fengið þannig bara allt endurgreitt.

En eins og ég sagði þá er þetta svosem ekki mikið tap og ég læri bara af þessu að gefa afslátt næst (nema miðarnir séu á viðburð sem sé uppseldur, þá er kostnaðarverð í lagi) ;)