Síða 1 af 1
Deploya appi á margar Android spjaldtölvur
Sent: Sun 16. Ágú 2015 21:28
af Hargo
Er einhver leið til að deploya sama appi á margar Android spjaldtölvur í einu? Þetta eru 10 spjaldtölvur sem um ræðir, Samsung Galaxy tab með sama version af Android. Sem sagt allt nákvæmlega eins spjaldtölvur. Þær eru allar að keyra sama gmail aðgang í Google Play store. Ef ég sæki/kaupi app í eina spjaldtölvu þá syncar hún það ekki yfir, get samt alveg farið í Google Play Store og sótt appið handvirkt sem búið er að borga fyrir á hinar spjaldtölvurnar án vandræða og án þess að borga fyrir það aftur á hverja og eina spjaldtölvu. Langaði bara að athuga hvort það væri ekki hægt að gera þetta automatískt. Virðist virka eðlilega þannig í ipödum sem eru að nota sama icloud aðgang - þá syncast öppin sjálfkrafa yfir á hina ipadana, eða maður hefur allavega option á að stilla það þannig.
Re: Deploya appi á margar Android spjaldtölvur
Sent: Sun 16. Ágú 2015 21:45
af gunni91
Það er hægt að gera þetta automatic, þetta gerðist fyrir slysni þegar ég gaf móðir minni Android síma og loggaði þann síma inná minn Google account.
Þá installaðist einhver 30 öpp sem ég hef sótt áður í minn síma.
Þetta er einhver stilling sem þú hakar í minnir mig.
Re: Deploya appi á margar Android spjaldtölvur
Sent: Sun 16. Ágú 2015 22:08
af Hargo
Virðist allavega vera hægt að fara inn á Google Play Store í gegnum tölvu og ef maður notar sama gmail aðgang og er á spjaldtölvunum þá getur maður valið á hvaða devices viðkomandi app á að fara upp á. Það ætti að duga mér í bili, töluvert betra en að gera þetta handvirkt í hverri spjaldtölvu fyrir sig.
Re: Deploya appi á margar Android spjaldtölvur
Sent: Mán 17. Ágú 2015 09:34
af wicket
Gætir notað MDM kerfi þar sem admin ýtir út öppum, uppfærslum, stillingum og bara hverju sem er eftir þörfum.
Getur t.d. skoðað þetta sem kostar ekkert :
http://wso2.com/products/enterprise-mobility-manager/ANnars eru til mörg svona MDM kerfi, meira að segja eitt en þó aðeins takmarkað hluti af Google Apps ef þið eruð í því.