[TS] Toyota Corolla 2003 - 800þús

Hér má kaupa og selja allt svo lengi sem það er löglegur varningur.

Höfundur
Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4192
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1322
Staða: Ótengdur

[TS] Toyota Corolla 2003 - 800þús

Pósturaf Klemmi » Fös 20. Mar 2015 20:03

Sælir drengir,

nú erum við kærastan að fara út í íbúðarkaup og ætlum því að selja annann bílinn til að minnka útgjöld heimilisins :D

Því verð ég víst að setja gullmolann minn á sölu, en það er Toyota Corolla, nýskráður í nóvember 2003. Helstu upplýsingar:
  • Toyota Corolla VVT-I Hatchback 2003
  • Keyrður 154.xxx
  • 1.6 bensínvél – 108hö, eyddi hjá mér 6,3L/100km síðasta sumar og 7,1L/100km í vetur.
  • Beinskiptur 5 gíra
  • Næsta skoðun í júlí 2015
  • Kemur á nýjum Hankook vetrardekkjum, ónegld en neglanleg, keypt í október á 70.000kr.-
  • Fjarstýrðar samlæsingar, rafmagn í rúðum að framan og aftan, reyklaus, smurður reglulega.
  • Ásett verð 800þús

Það var farið yfir bremsur að framan fyrri part árs í fyrra, skipt um diska, klossa og annan stimpil sem var orðinn lélegur. Farið yfir bremsur að aftan í nóvember, skipt um klossa og borða, stimplar og gúmmí hreinsuð.

Bíllinn er með tímakeðju og líkt og þeir sem þekkja til þessara bíla vita, þá eru þeir viðhaldslitlir, þægilegir í akstri og sparneytnir.

Ég er opinn fyrir tilboðum og ekki hika við að hafa samband ef það eru einhverjar spurningar :)

11079834_10204048029658153_1910477831_n.jpg
11079834_10204048029658153_1910477831_n.jpg (67.37 KiB) Skoðað 749 sinnum
SAM_3316.JPG
SAM_3316.JPG (4.97 MiB) Skoðað 749 sinnum
SAM_3317.JPG
SAM_3317.JPG (4.84 MiB) Skoðað 749 sinnum
SAM_3321.JPG
SAM_3321.JPG (4.16 MiB) Skoðað 749 sinnum
SAM_3323.JPG
SAM_3323.JPG (4.28 MiB) Skoðað 749 sinnum
SAM_3324.JPG
SAM_3324.JPG (4.18 MiB) Skoðað 749 sinnum
SAM_3325.JPG
SAM_3325.JPG (4.61 MiB) Skoðað 749 sinnum




Höfundur
Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4192
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1322
Staða: Ótengdur

Re: [TS] Toyota Corolla 2003 - 800þús

Pósturaf Klemmi » Lau 21. Mar 2015 22:10

Nokkrir sýnt áhuga en þessi er enn til :)




Höfundur
Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4192
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1322
Staða: Ótengdur

Re: [TS] Toyota Corolla 2003 - 800þús

Pósturaf Klemmi » Mið 25. Mar 2015 22:21

Dreif í því að kaupa og skipta um loftnet og hurðarstrekkjara, svo nú er bíllinn í tip-top standi :)