Síða 1 af 1

[TS] LG G3 16GB gylltur sími + 16GB sd minniskort fylgir

Sent: Þri 17. Feb 2015 03:23
af ASUSit
Er með til sölu lítið notaðan LG G3 snjallsíma, gylltan með 16GB innbyggðu geymsluplássi. En með honum fylgir aukalega 16GB sd minniskort. Að sjálfsögðu fylgja honum allir þeir hlutir er símanum fylgja við kaup úr verslun auk þess sem að hann kemur með upprunalegum pakkningum og svo það sé á hreinu að þá fylgir (að sjálfsögðu) nóta (og þarf með fylgir allt sem krafist er til að ábyrgðin haldist í gildi).

LG G3 síminn er keyptur í verslun Símans í Smáralind 5. nóvember 2014 og er því rétt rúmlega 3ja mánaða gamall. Þann litla notkunartíma sem hann á að baki hefur hann allan þann tíma verið í mjög þykku og höggheldu hlífðar-coveri frá Spigen. Hulstrið fylgir einnig, en þó þykir mér rétt að taka fram að þessi hrikalega glæsilegi sími missir því miður meiripartinn af sjarmanum þegar að í hulstrið er komið ( :dissed ). Ég hef hins vegar frekar notað það og verið mun öruggari gegn mögulegum höggskemmdum á símanum í staðinn, en hann hefur þó engin högg fengið að þola ennþá og sér alls ekkert á símanum sjálfum.

2ja ára ábyrgð kemur með LG G3 snjallsímanum skv. ábyrgðarskilmálum Símans, en kveðið er nánar á um skilyrði ábyrgðar í áðurnefndum skilmálum. Síminn er því í ábyrgð til 5. nóvember 2016. Verð, sbr. tilgreint á nótu/reikningi, á kaupdegi var 99.990 kr. en síminn kostar þar í dag 86.900 kr. Og svona "to sum it up": Síminn er gylltur og hefur mjög lítið verið notaður þessa þrjá mánuði sem liðnir eru frá kaupdegi - einkum vegna snjallsíma-fötlunar eiganda. Með símanum fylgja allir upprunalegir hlutir er fylgdu við kaup í verslun Símans og til viðbótar 16GB sd minniskort (að ógleymdu hlífðarhulstrinu fagra). Nóta dags. 5. nóv. 2014 fylgir með - en hún ásamt öllum upprunalegum fylgihlutum viðhalda 2ja ára ábyrgð skv. ábyrgðarskilmálum Símans. Síminn er því í ábyrgð til 5. nóv. 2016. Síminn er jafnframt óaðfinnanlega vel með farinn (kaupanda er frjálst að ganga úr skugga um það áður en hugsanleg kaup ganga í gegn).

Ég held að það sé algjör óþarfi að fara út í nákvæm specifications hérna, en öll specs má m.a. sjá á vef GSMArena: http://www.gsmarena.com/lg_g3-6294.php

Læt jafnframt stutt specifications yfirlit fylgja (pdf skjal), en það er fengið á heimasíðu framleiðanda: http://www.lg.com/.
Er hvergi nærri því endilega að reyna að selja hann eingöngu, er einnig til í margvísleg skipti á vélbúnaði af ýmsum toga. Óska því eftir raunhæfum pen. tilboðum, en ekki síður tilboðum um hvers konar skipti á vélbúnaði o.fl.

Vinsamlegast reynið eftir fremsta megni að hafa tilboðin raunhæf - og hafið mínar bestu þakkir fyrir það!


Kærar kveðjur,
- ASUSit