Síða 1 af 1

Óska eftir gömlum iPhone gefins

Sent: Fös 31. Okt 2014 09:17
af ColdIce
Sælir.

Systur minni langar svo mikið í iPhone en ég held að hún mun ekki líka við hann(eða umhverfið), svo mig langar að prófa að láta hana hafa iPhone til að prófa áður en ég splæsi á hana nýjum.
Ef einhver á gamlan iPhone í skúffunni að safna ryki, þá myndi ég gjarnan vilja fá hann!
Er að spá í 3G/3GS bara, þarf ekkert að vera betra en það.
Klárlega kostur að hann sé óbrotinn og nothæfur í smá tíma allavega :p Ég þarf ekki snúruna.

Fyrirfram þakkir!

Re: Óska eftir gömlum iPhone gefins

Sent: Fös 31. Okt 2014 09:58
af Hrotti
Ég verð nú að segja að það er ekkert ægilega snjallt að rétta einhverjum iphone frá 2008 til að meta hvort að viðkomandi fíli iphone yfir höfuð.... það hefur ýmislegt gerst á 6 árum í snjallsímadeildinnni. :)

4s er alveg lágmark helst 5 til að fá raunverulega tilfinningu fyrir þessu.

Re: Óska eftir gömlum iPhone gefins

Sent: Fös 31. Okt 2014 10:02
af ColdIce
Hrotti skrifaði:Ég verð nú að segja að það er ekkert ægilega snjallt að rétta einhverjum iphone frá 2008 til að meta hvort að viðkomandi fíli iphone yfir höfuð.... það hefur ýmislegt gerst á 6 árum í snjallsímadeildinnni. :)

4s er alveg lágmark helst 5 til að fá raunverulega tilfinningu fyrir þessu.


Skil hvað þú meinar, en mér þykir afar fátt hafa breyst í tækninni þegar kemur að iPhone, er þó aðallega að pæla í iOS.
Vil bara athuga hvort hún vilji nota síma með þetta OS, og ég efast um að hún taki eftir að þetta sé ekki að það nýjasta þar sem hún er 12 ára :p

Edit: Vil taka það fram að ég er ekki að reyna að vera með leiðindi í garð Apple. Ég bara meinti að fyrir 12 ára stelpu þá lítur þetta allt eins út í iPhone þegar það verða engir fítusar notaðir :)

Re: Óska eftir gömlum iPhone gefins

Sent: Fös 31. Okt 2014 10:29
af thehulk
Er ekki Ios notandi, þetta er samt mjög gott OS og ekkert síðra en Android. Ég held að systir þín verði mjög ánægð með iphone og með þá möguleika sem þessir síma hafa upp á bjóða.

Re: Óska eftir gömlum iPhone gefins

Sent: Fös 31. Okt 2014 10:33
af ColdIce
thehulk skrifaði:Er ekki Ios notandi, þetta er samt mjög gott OS og ekkert síðra en Android. Ég held að systir þín verði mjög ánægð með iphone og með þá möguleika sem þessir síma hafa upp á bjóða.

Það er líklegt, en fyrir 100k+ síma, þá vil ég vera viss :)

Re: Óska eftir gömlum iPhone gefins

Sent: Fös 31. Okt 2014 10:55
af KermitTheFrog
Það er hægt að skoða þessa síma og prófa þá í verslunum.

Re: Óska eftir gömlum iPhone gefins

Sent: Fös 31. Okt 2014 10:56
af ColdIce
Ég veit, en hún kynnist þessu ekkert á nokkrum mínútum.