Síða 1 af 1

SELT

Sent: Sun 14. Sep 2014 12:47
af Tiger
Er með til sölu 4 úr á verði eins. Var duglegur að safna úrum á sínum tíma en eftir að ég fékk Raymond Weil þá hefur ekki neitt annað úr komist á handleggin á mér.

1. Festina Tour De France. Þetta er alvöru gæða hlunkur, þungt og massívt úr. Það er smá rispa á upphleypta glerinu fyrir ofan dagatalið en annars í top standi. Kostar nýtt með gúmmí ól 50.000kr.
Mynd

2. Kenneth Cole. Þetta úr er ennþá í kassanum og hefur aldrei farið á handlegg. Í ábyrgð ennþá og keypt hjá Úr og Gull
Mynd

3. Guess #1. Þetta er eðal úr í alla staði, með þægilegri gúmmí ól sem fylgir manni hvert sem er. Fallega svart með kopar ívafi.
Mynd

4. Guess #2. Látlaust og fallegt úr. Vatnshelt niður á 100m og fylgir manni hvert sem er.
Mynd

Ætla bara að selja þetta sem einn pakka helst. Ég get svo sem sett eitthvað rugl verð og leyft fólki að prútta svo kaupanda finnst hann hafa grætt en ég bara nenni því ekki. Öll 4 úrinn fara saman á 50.000kr.